Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2020, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2020, Page 37
PRESSAN 3724. janúar 2020 Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS 2019 var ár öfgaveðurs og hitameta í Evrópu n Gróðureldar, óveður, hitabylgjur og flóð herjuðu á Evrópu n Kemur sérfræðingum ekki á óvart G róðureldar, flóð og öflug óveður herjuðu á Evrópu á síðasta ári. Einnig hrellti öflug hitabylgja álfuna og hitamet féllu eitt af öðru. Margir sérfræðingar telja erfitt að reyna að halda því fram að öll þessi met séu tilviljun ein. Í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg, Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi féllu hitamet á árinu. Þar mældist hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst. Í öllum löndunum, að Frakklandi undanskildu, féllu metin í júlí, en þá skall öflug hitabylgja á norðurhluta evrópska meginlandsins. Þessi met komu mörgum veður- fræðingum og loftslagssérfræðingum ekki á óvart. Þeir segja þetta draga upp mynd af ákveðinni þróun og hún muni halda áfram og frekari veðuröfgar muni dynja á Evrópu. Nýlega sendi Veðurfræðistofnun Sam- einuðu þjóðanna, WMO, frá sér skýrslu um veðurfar á síðasta ári. Í henni kemur fram að árið var það næsthlýjasta á jörðinni frá því að mælingar hófust. Aðeins 2016 var hlýrra á heimsvísu. Petteri Taalas, forstjóri WMO, sagði í tengslum við birtingu skýr- slunnar að „miðað við núverandi losun á CO2 stefni í að hitastigið hækki um þrjá til fimm gráður fyrir næstu aldamót.“ Margir sérfræðingar telja að helsta ástæðan fyrir hækkandi hita á jörðinni sé aukið magn CO2 í andrúmsloftinu. Rétt er þó að hafa í huga að ekki eru allir þessarar skoðunar en þó virðast fleiri en færri hall- ast að þessari kenningu. Frá því að veður- mælingar og skráning hófst almennt í lok nítjándu aldar hafa ákveðnar sveiflur sést á löngum tímabilum en á síðustu árum hefur þróunin verið öðruvísi. Á heimsvísu hækkar hitastigið frá ári til árs og hitastig sem var áður flokkað sem öfgakennt er nú að verða meðalhitastig. En það er ekki bara hitinn sem hækkar því loftslagsbreytingarnar valda því einnig að veðrið breytist og verður öfgafyllra. Slík veður geta haft mikil samfélagsleg áhrif og því stöndum við frammi fyrir miklum áskorunum. Til dæmis má nefna að lofts- lagsráð Sameinuðu þjóðanna, IPCC, spáir því að flóð, sem áður áttu sér að meðaltali stað á 100 ára fresti, verði árlegur viðburð- ur þegar kemur fram að næstu aldamótum. Gróðureldar eru einnig einn fylgifiskur öfgaveðurs en þeir komu illa við Evrópu á síðasta ári. Verst var ástandið í Portúgal og Katalóníu á Spáni. Í Feneyjum flæddi sjór margoft um götur borgarinnar og hlaust mikil eyðilegging af. Í suðurhluta Frakk- lands rigndi hvað eftir annað gríðarlega og hlaust mikið tjón af og í nóvember létust sex vegna flóða þar. Ekki má gleyma jöklum álfunnar sem bráðna nú vegna hærri hita en áður. Þessu höfum við fengið að kenna á hér á landi og sömu sögu er að segja frá Sviss, Frakklandi og Noregi. n „Eðlileg þró- un Öfgafullar breytingar í lofts- lagi munu halda áfram næstu ár að sögn sérfræðinga. Eðlileg þróun Öfgafullar breytingar í loftslagi munu halda áfram næstu ár, að sögn sérfræðinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.