Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 15
FÓKUS 1528. febrúar 2020 EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Ótti við foreldrahlutverkið í brennidepli n Elvar Gunnarsson er maður margra titla n Heillaðist snemma af regluleysi n Glímdi við óvenjulegt skilnaðarferli inu að gera upp gamalt hús og opna gistiheimili. Við fyrstu sýn fagna þau kyrrðinni og horfa fram á við bjartsýnum augum, en dag einn finna þau djúpa holu á kjallara- gólfinu og þar undir býr forn vættur sem aðeins hefur heyrst um í þjóðsögum. Konan gildnar skyndilega og virðist hafa orðið ólétt á svipstundu. Í kjölfarið verpir konan eggi eina nóttina og hægist ekki mikið á atburða- rásinni eftir það. Auk Vivian fer Gunnar Kristinsson með annað aðalhlutverkið en einnig bregður fyrir þekktum leikurum á borð við Halldóru Geirharðsdóttur, Þór Túliníus, Björn Jörund og Halldór Gylfason. „Það sem býr undir þessari kvikmynd er hræðsla við barn- eignir,“ segir Elvar. „Þegar hug- myndin var að fæðast ímyndaði ég mér að mér þætti myndin ekki nógu spennandi nema hún hefði þennan undirtón. Ég fékk félaga minn til að skrifa hluta af handritinu með mér og hann upplifði það þegar hann eignaðist barn, að þá fæddist það í belgnum. Úr því að ég hef sjálfur verið viðstaddur fæðingu dætra minna rennur í gegnum huga minn hugsunin um hvað fæðingar séu skrýtnar og manns- líkaminn almennt.“ Elvar vísar þá í frumraun Davids Lynch, hina víðfrægu Eraserhead, sem fjallar í grunninn um hræðslu við kynlíf og spennu vegna barneigna. Elvar tekur undir það með blaðamanni að máttur góðra hryllingsmynda sé oft falinn í að endurspegla eða varpa ljósi á mannlegar tilfinn- ingar, sem búa í hvaða skepnu eða afli sem persónur mæta. Seg- ir kvikmyndagerðarmaðurinn að það hafi verið meðvitað að segja sögu um konu sem verð- ur skyndilega ólétt og verður þá fjandinn laus vegna alls konar spennu og geti margir mjög auð- veldlega tengt við það. Skilnaður, leiðsögn og búddismi Aðspurður um skilnaðinn segir Elvar að ferlið hafi tekið á, eins og eðlilegt sé, en þegar aðstæður voru sem erfiðastar hvíldi á hon- um sú bölvun að vera í nálægð við fyrrverandi spúsu sína hvert sem hann fór. Hann segir þetta hafa verið ákaflega súrrealískt og að á leið hans til útlanda hafi hann rekið augun í fimm mismunandi aug- lýsingar þar sem Vivian skaut upp kollinum og segir Elvar það hafa verið eins og salt í sárið, á einmitt þeim tímapunkti þegar hugurinn var sem mest að reyna að horfa fram á við frá fyrra lífi. „Þetta var svo furðulegt allt og mér leið eins og eitthvert afl væri að fíflast í mér,“ segir Elvar. Í kjölfar skilnaðarins ákvað Elvar að kúpla sig frá kvikmynda- gerðinni tímabundið og sneri sér að leiðsögumannastarfi og hug- leiðslu í anda búddisma. „Ég slys- aðist í rauninni inn í búddismann og var fyrst, eins og eflaust fleiri, mjög efins með ferlið. Síðan um leið og ég fann þessa hugarró og var kominn í tengsl við tilfinn- ingar og hugarfar sem var mér ókunnugt var kominn allt annar tónn í sjálfan mig,“ segir Elvar og varpar ljósi á það sem dró hann að því að gerast leiðsögumaður. „Ég er mikið sagnfræðinörd og það fylgir svolítið leikstjórastarf- inu að vera góður að stýra eða leiðbeina stórum hópum. Þess vegna var það nokkuð magnað hvernig leiðsagnarstarfið sam- einaði þetta tvennt og það er búið að vera æðislegt.“ n Á tökustað Elvar ásamt Gunnari Kristinssyni við tökur á Möru/It Hatched. Drungalegt Plakat myndar- innar vakti gífurlega athygli á samfélagsmiðlum þegar það var afhjúpað á sínum tíma. Hönnuður er Ómar Hauksson. Vivian Ólafsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.