Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 16
16 28. febrúar 2020NEYTENDUR
Framtalsskil 101
n Nokkur hagnýt atriði til að hafa í huga þegar þú fyllir út framtalið n Áttu rétt á afslætti?
U
m mánaðamótin er runninn upp sá tími ársins
þegar við þurfum að standa skil á skattfram-
tali okkar. Frestur til að skila inn framtali er til
10. mars, en að vanda er hægt að sækja um við-
bótarfrest. Með rafrænum skilum er oft leikur einn
að skila framtalinu, en þó er mögulega ástæða til að
staldra aðeins við og fara yfir framtalið. Kannski áttu
rétt á ívilnun, kannski er vert að haka við eina ódýrustu
tryggingu landsins og hvað er málið með húsaleiguna,
þarf að gera grein fyrir henni á framtali eða ekki? Hér
eru nokkur hagnýt atriði til að hafa í huga við framtals-
skil. Þessi listi er þó engan veginn tæmandi og DV hvet-
ur skattgreiðendur til að nýta sér ítarlegar framtalsleið-
beiningar sem skatturinn hefur útbúið og finna má á
slóðinni: leidbeiningar.rsk.is
Afsláttur (skattaívilnanir)
Eyðublað RSK 3.05
Vissar aðstæður eða áfall í lífinu getur valdið aukn-
um útgjöldum. Skatturinn tekur tillit til þess með svo-
nefndum ívilnunum, eða lækkun á þeirri upphæð sem
verður grundvöllur útreiknings á tekjuskatti og útsvari.
Allar eiga þessar ívilnanir sameiginlegt að grundvallast
á sérstökum aðstæðum eða áföllum sem geta haft mikil
áhrif á gjaldþol fólks. Til að sækja um eftirfarandi íviln-
anir þarf að fylla út umsókn RSK 3.05 á framtali.
1 Framfærsla annarra
Ertu með foreldri, afkvæmi eða annan venslamann á
framfæri því þeir geta ekki séð fyrir sér sjálfir? Þá gæt-
ir þú átt rétt á afslætti. Þetta á til að mynda við ef þú ert
með barn á framfæri á aldrinum 16–21 árs sem er tekju-
laust eða afar tekjulágt. Einnig getur þetta átt við ef þú
ert með venslamann eða til dæmis foreldri á framfæri
því viðkomandi stendur ekki undir eigin framfærslu.
Hámarkslækkun vegna framangreinds fyrir árið 2020
er 390.000 krónur, ef ungmenni hefur engar tekjur haft.
Tekjur ungmenna skerða lækkunina að því sem nem-
ur þriðjungi tekna þeirra og fellur þessi réttur niður ef
tekjur ungmennis voru yfir 1.170.000 á árinu 2019.
2 Eignatjón
Ef þú hefur orðið fyrir því óláni á síðasta ári að lenda í
verulegu eignatjóni sem þú hefur hvergi getað fengið
bætt, þá gæti það orðið grundvöllur skattafsláttar. Skil-
yrðið er að eignatjónið hafi átt sér stað á framtalsárinu,
það hafi ekki fengist bætt frá tryggingum eða öðrum
aðilum og að um verulegt eignatjón sé að ræða.
3 Veikindi og slys
Ef veikindi, slys, andlát eða ellihrörleiki hafa valdið
miklum útgjöldum eða með öðrum hætti valdið veru-
lega skertu gjaldþoli þá gæti ívilnun komið til álita. Þá
er verið að horfa til þess kostnaðar sem þú hefur sjálf-
ur greitt og er umfram það sem getur talist til venjulegs
kostnaðar vegna til dæmis lyfja og læknisheimsókna.
Eins geta þeir sem eiga langveik börn eða börn með
fötlun sem veldur verulegum útgjöldum átt rétt á af-
slættinum.
4 Tapaðar kröfur
Ef framteljandi tapaði útistandandi kröfum, ótengdum
atvinnurekstri, á árinu þá gæti það orðið grundvöllur
lækkunar. Til dæmis ef framteljandi lánaði kunningja
peninga en tapaði kröfunni vegna gjaldþrots lántaka.
Eða ef framteljandi var ábyrgðarmaður á láni og á ekki
endurkröfu á lántaka.
Ungmenni í námi
Liður 1.3 á framtali
Ef þú ert með ungmenni á framfæri, sem er í námi, þá
getur það gefið þér tilefni til að sækja um ívilnun. Hér
er aðeins átt við lán sem ekki er lánshæft. Þetta úrræði
skerðist svo eftir tekjum ungmennis og fellur niður að
fullu ef tekjur ungmennis voru yfir 1,17 milljónir á síð-
asta ári. Tilgreina þarf nafn skóla á framtali og tilgreina
tekjur ungmennis í dálk 528. Til að sækja um þetta úr-
ræði er grundvallaratriði að framtali ungmennis hafi
þegar verið skilað. Það nægir að annað foreldri
sæki um, en ívilnunin skiptist á milli fram-
færenda.
Ódýr slysa-
trygging
Hakar við reit á
framtali eða breytir í
stillingum á þjónustu-
síðum RSK.
Á framtali er hægt að
óska eftir slysatryggingu við
heimilisstörf. Það kostar aðeins
550 krónur. Með slíkri tryggingu
getur framteljandi tryggt sér rétt
til bóta almannatrygginga vegna
slysa við heimilisstörf, eða sama rétt og
vegna vinnuslysa. Slíkar bætur geta falist
í slysadagpeningum, greiðslu sjúkrakostn-
aðar eftir ákveðnum reglum, örorkubætur ef slys leiðir
til örorku og dánarbætur ef slysið veldur dauða innan
tveggja ára frá slysdegi. Slysatryggingin gildir aðeins ef
framtali er skilað tímalega.
Gjafir
Liður 2.3.6 á framtali
Ótrúlegt en satt þá eru gjafir skattskyldar tekjur í aug-
um skattsins. Að sjálfsögðu eltist skatturinn þó ekki
við hefðbundnar afmælis- og jólagjafir, eða með öðr-
um orðum þá eru hefðbundnar tækifærisgjafir undan-
þegnar skattlagningu, ef verðmæti þeirra er ekki meira
en almennt gerist um slíkar gjafir.
Vinningar í veðmáli eða keppni
Liður 2.3.6 á framtali.
Slíkir vinningar eru skattskyldir, nema þeir séu sér-
staklega undanskildir skattskyldu með lögum en slíkt á
til dæmis við um vinninga í Lottó.
Vinna við eigin íbúðarhúsnæði
á vinnutíma
Liður 2.3.6. á framtali og Húsbyggingarskýrsla RSK
3.03
Ef þú varst að vinna við eigið húsnæði á hefð-
bundnum vinnutíma þá telst það til tekna og þarf að
gera grein fyrir slíkri vinnu á framtali. Sama á við um
skiptivinnu, gjafavinnu og eigin vinnu við aðrar fast-
eignir en íbúðarhúsnæði, til dæmis sumarbústað.
Vinna við eigin íbúðarhúsnæði sem fer fram utan
hefðbundins vinnutíma er hins vegar skattfrjáls.
Kaup og sala eigna
Fyllt út með eyðublaði RSK 3.02.
Varstu að kaupa og/eða selja eignir árið 2019 án
þess að það tengdist atvinnurekstri? Þá þarftu
að fylla út eyðublað 3.02. Söluhagnaður af bæði
lausafé og fasteignum er skattskyldur, nema í
þeim tilvikum þar sem eignanna var ekki afl-
að gagngert í þeim tilgangi að hagnast. Ef þú
ert að selja fasteign innan tveggja ára frá því að
þú keyptir hana þá er hagnaður af sölu hennar
skattskyldur. Hagnaður verður þá skattlagður
eftir reiknireglum um fjármagnstekjuskatt.
Greidd leiga
Fyllt út með greiðslumiða RSK 2.02
Í framtali er hægt að gera grein fyr-
ir þeirri leigu sem þú hefur greitt
til leigusala á árinu. Þetta
er mikilvægt að gera
ef þú ert á eða
að fara að
taka náms-
lán þar
sem greiðsl-
umiðinn veit-
ir sönnun fyrir því
að þú sért á leigu-
markaði. Með greiðslu-
miðanum er einnig hægt að
samkeyra þær upplýsingar sem
þú gefur upp við upplýsingar sem
leigusali gefur upp á framtali, svo ekki
sé um svartar óuppgefnar leigugreiðslur að
ræða.
Leigutekjur
Eyðublað RSK 3.25 og reitur 510 á fram-
tali, nema um skammtímaútleigu á gisti-
rými, s.s. Airbnb, sé að ræða, í þeim tilvik-
um skal færa tekjur í reit 511 á framtali eða
á rekstrarblöð.
Ef þú leigðir út íbúðarhúsnæði, sem fell-
ur undir húsaleigulög og leigjandi býr í, þá
skaltu færa brúttótekjur í reit 510 á framtali.
Af þeirri fjárhæð teljast þó aðeins 50 pró-
sent til tekna en hin 50 prósentin eru skatt-
frjáls. Síðan þarf að gera grein fyrir tekjunum
á eyðublaði RSK 3.25.
Ef um Airbnb er að ræða þá þarf að gera
grein fyrir þeim tekjum í reit 511.
Ef þú ert leigusali en ert einnig sjálfur að
leigja húsnæðið sem þú býrð í þá geturðu talið
leigugjöld þín frá leigutekjunum. Þessi mis-
munur skráist í reit 510. Neikvæður mismunur
færist ekki á framtal.
Ef þú leigir út þrjár íbúðir eða fleiri þá er
um atvinnurekstur að ræða og þú þarft að færa
starfsemina inn á rekstrarblað RSK.
Ný sambúð
Fyllt út með eyðublaði RSK 3.27
Ef þú skráðir þig í sambúð á síðasta ári þá
færðu stjörnumerkingu við fjölskyldumerkingu
á forsíðu framtalsins. Ef þú færð slíka stjörnu þá
þarftu að fylla út eyðublað RSK 3,27 og gera grein
fyrir upphafsdegi sambúðar samkvæmt Þjóðskrá
og hvort, ef skilyrði eru uppfyllt, óskað er eftir sam-
sköttun. Ef þú varst áður einstætt foreldri og varst
að hefja sambúð með öðrum en hinu foreldri barns
þá heldur þú áfram réttinum til að fá barnabætur
sem einstætt foreldri í ár.
Ef vinnuveitandi fór í þrot
Liður 1.4 á framtali
Ef vinnuveitandi þinn fór í þrot á árinu og þú átt
inni launagreiðslur þá getur þú gert grein fyrir þeim
undir lið 1.4 á framtali. Launin eru ekki færð til tekna.
Hafir þú fengið greiðslur frá ábyrgðarsjóði launa þarf
þó að gera grein fyrir þeim sem tekjum.
Eitthvað óskýrt?
Starfsfólk skattsins býður upp á þjónustu mánudaga
til fimmtudaga frá 09.00–15.30 meðan á framtalsfresti
stendur. Þú getur haft samband í síma 442-1414. n
Erla Dóra
erladora@dv.is