Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Side 17
Veislur framundan
28. febrúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
FORMAL STÚDENTSHÚFUR:
„Lækkuðum verð um 40%“
Fyrirtækið Formal Stúdentshúfur var stofnað árið 2008 af þremur nýstúdentum
sem fannst verð á útskriftarhúfum
alltof hátt og að tími væri kominn á
virka samkeppni á þessum markaði,
en áratugum saman sat sama
fyrirtækið að öllum markaðnum án
nokkurrar samkeppni.
Formal kom eins og ferskur
andblær inn á markaðinn og
lækkaði strax verð á útskriftarhúfum
um 40% og var því vel tekið af
útskriftarnemendum. Síðastliðin
12 ár höfum við því veitt
samkeppnisaðilum okkar mikið
aðhald og haldið niðri verði á
þessum mikilvæga lið hverrar
útskriftar. Formal hefur alla tíð
verið leiðandi á markaðnum
þegar kemur að vörunýjungum
tengdum útskriftarhúfum. Áður
hafði einungis verið seld ein
útfærsla af stúdentshúfum,
en með tilkomu Formal gátu
útskriftarnemar fengið ártalshnappa
í húfurnar, nafnabróderingu í
húfukoll, útskriftarglös með nafni
og margt fleira til þess að gera
útskriftarhúfuna að enn fallegri og
eigulegri grip. Einnig bjóðum við upp
á barmmerki flestra skóla, sem hægt
er að næla í húfu eða barm.
Að sögn Ingimars Ísakssonar,
eins eigenda Formal, „þá er stærsta
breytingin sem við höfum gert
á útskriftarhúfunum að styrkja
hana að ofan þannig að hún haldi
lögun sinni og sitji fallegar á höfði
útskriftarnema. Eftir að hafa
skoðað hundruð ljósmynda af
útskriftarnemum, var húfan oftar
en ekki mjög aflöguð og krumpuð
á höfði nemenda sem okkur fannst
mjög óspennandi. Það vildum
við laga og bæta. Þessi breyting
hefur mælst mjög vel fyrir hjá
útskriftarnemum og er þessi lögun
húfunnar orðin sérstaða okkar.
Áætlað er að um 3.000–3.500
nemendur útskrifist í vor úr hinum
ýmsu menntaskólum um land
allt. Með húfu frá Formal mun
útskriftarnemandinn því líta vel út
á öllum þeim fjölda ljósmynda sem
alla jafna eru teknar á þessum
ánægjulega degi.“
Formal býður upp á allar gerðir
útskriftarhúfa sem notaðar eru á
Íslandi. Húfan er framleidd eftir
íslenskri hönnun og er mikið lagt
upp úr þægindum, efnisgæðum
og saumaskap. „Húfurnar koma í
14 stærðum og eru í grunninn eins
gerðar, með mismunandi lituðum
kollum. Vínrauðir kollar fyrir iðnnema,
fjólubláir fyrir Keili, gráir kollar fyrir
starfsbraut og hvítir fyrir stúdenta.
Að okkar mati á að vera hægt að
nýta húfurnar oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar. Sumir fara í
fleiri en eitt útskriftarnám og í
mörgum tilfellum samnýta systkini
húfurnar. Sáraeinfalt er að skipta
út húfukollum í stað þess að kaup
nýja húfu, og við bjóðum upp á slíka
þjónustu fyrir okkar viðskiptavini.“
Formal býður upp á sérstaka
pakka þegar kemur að kaupum
á útskriftarhúfum. Bronspakki,
Silfurpakki, Gullpakki og
Platínumpakki. Pakkarnir innihalda
allir útskriftarhúfu og mismikið
af skemmtilegum aukahlutum
sem gera útskriftardaginn enn
eftirminnilegri. „Ódýrasti pakkinn hjá
okkur er Bronspakkinn sem kostar
8.490 og svo hækka pakkarnir í
verði eftir því sem fleiri aukahlutum
er bætt við. Svo eigum við að
sjálfsögðu útskriftarhúfur á lager
fyrir þá sem eru á síðustu stundu að
ákveða sig hvort þeir vilji húfu eður
ei. Við getum útvegað húfu með allt
að klukkustundar fyrirvara, en ef fólk
vill láta bródera í kollinn tekur það
aðeins lengri tíma.“
Við svörum fyrirspurnum og
tökum við pöntunum einstaklinga
og hópa á vefsíðu okkar formal.
is, í tölvupósti: formal@formal.is,
á Facebook síðu okkar eða í síma
555-7600 og auk þess erum við
með verslun í Sundaborg 5, en
opnunartíma er hægt að sjá á
vefsíðu okkar. Einnig er hægt að
finna okkur á Facebook-síðunni:
Formal stúdentshúfur og á
Instagram @studentshufur.
Ingimar Ísaksson