Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 30
Sérblað 28. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
AMAZING WESTFJORDS:
Hvalaskoðun, sjóstangveiði
og ægifegurð Ísafjarðardjúps
Ölver er 77 tonna stálbátur sem siglir frá Ísafirði með farþega í hvalaskoðun og
við köllum þetta náttúrulífsferðir.
Náttúran í Ísafjarðardjúpi er afar
heillandi og við sjáum til dæmis
eyjarnar Vigur og Æðey, svo er
það fjallahringurinn og sagan
í Djúpinu. Við leggjum áherslu
á góða leiðsögumenn sem
tala bæði ensku og íslensku og
fræða farþega um söguna hér,“
segir Ragnar Ágúst Kristinsson,
annar eigenda hins nýstofnaða
ferðaþjónustufyrirtækis Amazing
Westfjords. Ísafjarðardjúpið er afar
fýsilegur staður til að skoða dýralíf,
eins og hval (hnúfubak), fugla og seli.
„Nemandi í haf- og
strandveiðastjórnun sem starfar
hjá okkur sem leiðsögumaður taldi
að allt að 70–80 hnúfubakar væru
í Djúpinu síðasta sumar og oft eru
6 til 10 hvalir í kringum okkur í einu.
Það spillir ekki fyrir að það er mikil
veðursæld á þessu svæði,“ segir
Ragnar og bætir því við að maður
upplifi náttúruna og náttúrufegurð
svæðisins frá allt öðru sjónahorni
þegar hennar er notið af sjó.
Mikill meirihluti farþega í
hvalaskoðunarferðunum er erlendir
ferðamenn og margir þeirra koma
frá skemmtiferðaskipum. Hér er hins
vegar um mjög góða afþreyingu og
upplifun fyrir Íslendinga að ræða
og frábært tækifæri til að kynnast
náttúrufegurð Vestfjarða. Ferðirnar
er hægt að bóka beint á vefsíðunni
amazing-westfjords.is. Að sögn
Ragnars verður boðið upp á tvær
tveggja og hálfs tíma ferðir á dag
alla daga vikunnar í sumar, frá 15.
maí og út september á Ölver.
Gaman er að segja frá því að
báturinn Ölver, sem byggður var
sem fiskibátur árið 1990 en var
breytt í farþegabát árið 2017,
dregur nafn sitt af einum af vættum
Ísafjarðardjúps. Þeir voru Ölver,
Straumur og Flosi. Ölver var höfðingi
af svæðinu sem heygður var með
bát sínum á Hvassaleiti á Stigahlíð í
haug sem kallaður er Ölvershaugur.
Flosi er heygður í Ármúlafjalli og
Straumur á Straumnesi, þannig að
það sést á milli þeirra allra.
Sjóstangaveiðiferðir með Rostungi
Amazing Westfjords rekur líka
farþegabátinn Rostung ÍS sem tekur
sjö farþega í einu og verða ferðir í
boði með honum frá miðjum maí
og inn í haustið. Auk þess að skoða
heillandi náttúrufegurðina í Djúpinu
er einnig hægt að renna fyrir þorsk
og fleiri fisktegundir, það mjög
vinsælt sport bæði fyrir Íslendinga
og útlendinga. Upplýsingar og
bókanir í sjóstangaveiði með
Rostungi eru í gegnum netfangið
info@amazing-westfjords.is. eða í
síma 888-1466.
Fyrir utan þessar ferðir eru síðan
alls konar sérferðir boði. „Það er
til dæmis verið að skipuleggja
kirkjuferð norður í Grunnavík , farið
er með vinnu- og vinahópa í matar-
og skemmtiferðir, til dæmis í Vigur,
Hesteyri og fleiri staði eftir óskum,“
segir Ragnar.
Fyrirtækið hóf reglulegar ferðir
sumarið 2017 en fjöldi farþega
hefur margfaldast síðan þá: „Ef
fjölgunin sem stefnir í gengur eftir,
þá spring ég annaðhvort úr monti
eða álagi,“ segir Ragnar að lokum
og hlær. Hann hlakkar til spennandi
túristavertíðar í sumar.
Sjá nánar á vefsíðunni amazing-
westfjords.is