Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 36
36 28. febrúar 2020 SAKAMÁL Þ ann 15. febrúar, 2003, bönkuðu tveir tólf ára drengir, Evan Drake Savoie og Jake Lee Eakin, upp á hjá leikfélaga sínum, Craig M. Sorger, í Ephrata í Washington í Bandaríkjunum. Sorger, sem var einhverfur og hafði mikinn áhuga á vísindum, tölvuleikj- um og kappakstursbílum, var heima við þegar félagar hans spurðu móður hans hvort hann mætti koma út að leika sér með þeim. Móðir Sorger sá ekkert því til fyrirstöðu og drengirnir þrír ruku út í daginn. Sorger skilar sér ekki heim Þegar dimma tók varð móðir Sorger áhyggjufull. Hún hafði ekkert heyrt til sonar síns eða séð síðan hann hvarf út dyrnar fyrr um daginn. Tekið var að húma að kveldi og henni fannst undarlegt að hann væri ekki kominn heim, ekki síst vegna þess að hann var myrkfælinn mjög. Ekki varð henni rórra þegar hún komst að því að Savoie og Eakin voru löngu komnir heim til sín. Móðir Craigs var enn í öngum sínum þegar henni var sagt að lík hans hefði fundist skammt frá leiksvæði drengjanna. Samhljóða frásagnir Lögreglan talaði við Savoie og Eakin strax þetta sama kvöld. Þeir höfðu svipaða sögu að segja. Savoie sagði að Sorger hefði fall- ið úr tré sem hann var að príla í og Eakin sagði að þeir hefðu allir þrír verið á sömu trjágrein þegar Sorger féll til jarðar. Niðurstaða krufningar átti eftir að leiða ýmislegt í ljós. Barinn og stunginn Áverkar á líki Sorger var engan veginn hægt að rekja til falls niður úr tré. Hann hafði verið barinn um það bil 16 sinnum í höfuð og háls og stunginn 34 sinnum nokkurn veginn á sömu stöðum og hann hafði verið barinn. Einnig hafði Sorger verið stunginn átta sinnum í efri hluta líkamans. Það var greinilegt að frekara spjalls við Savoie og Eakin var þörf. Sögðust saklausir Savoie og Eakin voru handteknir tveimur dögum eftir að Sorger dó. Í upphafi sögð- ust þeir báðir saklausir, en voru engu að síður ákærðir fyrir morð að yfirlögðu ráði. Eftir að hafa lent í öngstræti í frásögn- um sínum, upplýsti Eakin lögregluna að lokum um sinn þátt í morðinu og játaði sig sekan um manndráp. Eakin fékk 14 ára dóm. Vitnaði gegn Savoie Síðan snerist Eakin á sveif með ákæru- valdinu og vitnaði gegn félaga sínum, sem enn sagðist saklaus af morðinu. Savoie þrjóskaðist við en þann 29. apríl, 2006, var hann sakfelldur fyrir morð og fékk 26 ára fangelsisdóm, þyngstu refs- ingu sem hægt var að dæma hann til. Engu ljósi hefur verið varpað á hvað vakti fyrir Savoie og Eakin þennan örlaga- ríka dag árið 2003. ÚLFAR Í SAUÐARGÆRU Leikfélagarnir reyndust ekki allir þar sem þeir voru séðir „Hann hafði verið barinn um það bil 16 sinnum í höfuð og háls og stunginn 34 sinnum nokkurn veginn á sömu stöðum og hann hafði verið barinn Craig Sorger Fór út að leika sér með félögum sínum. Jake Eakin Vitnaði gegn vini sínum. Evan Savoie Fullyrti að hann væri saklaus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.