Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 43
KYNNING Fyrirtækjalausnir24. janúar 2020 KYNNINGARBLAÐ MOTTA.IS: Mottuhreinsun – Mottuleiga Motta.is býður upp á mottuþrif fyrir einstaklinga. Við erum búin afar vönduðum þvottavélum og tækjakosti sem gerir okkur kleift að þrífa mottur úr nánast hvaða efni sem er. Notaðar eru einungis vistvænar sápur og starfsmenn fyrirtækisins búa yfir mikilli þekkingu og reynslu í þrifum og viðhaldi á hvers kyns mottum. Mottan verður eins og ný eftir þrif. Við tökum við mottum í útibúum okkar á Nýbýlavegi 32 í Kópavogi og á Kalmansvöllum 4 á Akranesi. Ef fólk hefur ekki tök á að koma með mottuna til okkar þá bjóðum við upp á að mottan sé sótt og send aftur heim að dyrum. Haltu gólfinu snyrtilegu og hreinu með mottuleigu Motta.is Mottuleiga Motta.is er frábær kostur fyrir húsfélög, fyrirtæki og stofnanir þar sem umgengni er mikil. Motturnar frá Motta.is eru efnismiklar og sérstaklega hannaðar til að taka við miklu magni af bleytu og óhreinindum. Góð motta getur auðveldlega sparað þrif á öðrum gólfflötum. Til þess að mottur gegni tilætluðu hlutverki er mikilvægt að halda þeim tiltölulega hreinum. Mottur sem eru ekki þrifnar reglulega hætta fljótt að taka við og fólk flytur með sér óhreinindi að utan inn í húsin. Mottuleiga Motta.is sér um að skipta út óhreinum mottum fyrir hreinar. Ef um er að ræða leigu á fleiri mottum þá gerum við hagstæðan þjónustusamning við húsfélög eða fyrirtæki um mottuskipti. Motturnar fást í fjölbreyttum stærðum sem henta flestum. Einnig býður Motta.is upp á möguleikann að sérpanta mottur í öðrum stærðum ef viðskiptavinur óskar eftir því. Allajafna eru motturnar í stöðluðum litum hjá okkur, en ef viðskiptavinur óskar eftir því er hægt að láta sérútbúa mottu í nánast hvaða lit sem er. Þá erum við með sérstaklega áprentaðar mottur og hefur verið sérlega vinsælt hjá fyrirtækjum að láta prenta lógó á mottuna. Vel merkt lógómotta er í senn augnayndi og myndræn auglýsing fyrir fyrirtækið. Nánari upplýsingar fást á vefsíðunni motta.is Húsfélagaþjónustan ehf. Nýbýlavegur 32, 200 Kópavogi og Kalmarsvellir 4, 300 Akranesi. Sími: 555-6855 / Tölvupóstur: motta@motta.is / Facebook: Motta.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.