Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Side 46
46 FÓKUS 28. febrúar 2020 YFIRHEYRSLAN Goddur Guðmundur Oddur Magn- ússon, betur þekktur sem Goddur, fæddist á Akureyri og hefur starfað við kennslu í grafískri hönnun í rúman aldarfjórðung. Hann skrifar nú sögu starfsgreinar sinnar og er titlaður rannsóknar- prófessor Listaháskóla Íslands. Goddur er í yfirheyrslu helgar- innar. Óttast mest Microsoft Office 365 Hvar líður þér best? Mér líður best á Austurlandi, sérstaklega á Seyðisfirði sem er einn besti staður sem ég hef kynnst sem orkuhleðslustöð. Hann er mjög ólíkur öllum stöðum úti á landi sérstaklega að því leyti að vera vinsamlegur útlending- um og fólki með sterkan persónuleika. Maður kemur hlaðinn orku þaðan á haustin og hún heldur manni gangandi í borginni í nokkra mánuði. Hvað óttastu mest? Microsoft Office 365 – valdbeitingu möppudýra og baunateljara af hvaða toga sem er – bókhald, skattheimtu, stjórnendafundi, Excel-skjöl og bara allt sem Microsoft Office 365 kemur nálægt. Hvert er þitt mesta afrek? Að verða edrú fyrir aldarfjórðungi. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Að vera hljóðfæraleikara í sinfóníuhljómsveit sem gaf út sex 12 tommu vínyl-plötur í boxi og ferðaðist og spilaði í fjórum evrópskum borgum, Basel, München, Vínarborg og Innsbrück. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Hégóminn var hans akkílesarhæll. Hvernig væri bjórinn Goddur? Dökkur og laus við allt alkóhól, 0.00%. Besta ráð sem þú hefur fengið? Að tilfinningagreind sé betri en rökhugsun. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Mér finnast húsverk alls ekki leiðinleg, en að halda heimilisbókhald fer í taugarnar á mér. Besta bíómynd allra tíma? Zabriskie Point eftir Antonioni hafði dýpstu áhrifin. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Að vera raunverulega músíkalskur. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að fara í listnám. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Ekki gera þetta! Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér? Sykur, rjómi og örlítið af berjum. Hvað er á döfinni hjá þér? Að plana sem minnst. Íris Hauksdóttir iris@dv.is M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.