Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 11

Íþróttablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 7 ! I 03 C/3 Vinningaskrá Davíð Guðmundsson U.M.S.K.) Guðm. Ágústsson (U.M.F. Vaka) ^ d E '5c ^ O S >c 50 æ fl ‘O -m 'r* c ,5 tí > > £ ísO d) CÖ rt .5 í3 ‘“5 U O HH c« ö K h i/) « X U U 0 JfO >p ö ►“3 3 'P. m m ö 3 tÆ OT. 0) irsi in in 1 o | 0 ! o! o o 10 101 1 1 o 0 101 11 o 11! 0] o 10 0 1 1 10 0 ! o i 111 |0 ! o 01 ! o ! i 10 11 10 ! o 10! 11 í 1 ! 11 0 o ii 10 1 10 li H! 111 11 11! 11 0 ii 10 ! i 10 li Ii 1 11 11 1 o! [0 |0 10 10 li ! o li ! o | 1 12 0 | 3 0 | 3 1 | 8 H9 115 Jón Guðn&son (U.M.F. Dagsbrún) Ur leik vegna meiðsla Sifif. Ingimundars. (U.M.F. Vaka) |0|0I0|Ö|0!0|0|0|0|1|0|1.|2 Sigurður Ingason (Á.) Úr leik vegna meiðsla Sigurður Hallbjörnsson (Á.) .... Steinn Guðmundss. (U.M.F. Ing.) Ingólfur Jónsson (U.M.F. Dagsb.) 111 |i |i |0 10 0 |0 ! o 10 10 101 ll 14 11 11 ! 1 10 |0 11 1 o | 11 10 11 10 11 | 7 |0 li 11 i 0 |0 10 10 10 |0 10 10 10 12 við nágrannafél. í glímu. Glímu- maðurinn má ekki keppa fyrir heimafélag sitt vegna þess, að hann hefur á sama almanaksári keppt í glímu fyrir annað félag. Hvaða áhrif hefur þetta? Félagar lians lieima fyrir missa kjarkinn, því að stuðningur góðs manns er glataður. Gremja myndast og andstaða getur vaxið gegn þvi að menn æfi, er þeir dvelja í Reykjavík. Sér ekki hver íþróttamaður hvað glatað- ist íþróttalega við þetta, eða hvaða vinningur er það fyrir í- þróttalíf æskunnar í Reykjavík, ef að félögin þar byggðu keppi- tilveru sína á aðfengnum kröft- um? Sér ekki hver iþróttamaður, að hvert félag myndi frekar með hinu nýja spori Ármanns ala upp sína eigin menn, en bjóða svo áhugasömum aðkomnum i- þróttamönnum til leiks án nokk- urra skilyrða. I þessu fellst dreng- skapur og heildarhollusta. Á þetta atriði, sem ekki kom beint gangi Skjaldarglímunnar við, finnst oss rétt að benda, og því eytt fyrir það nokkru rúmi. Allir glímumanna gengu vel til leiks. Sigfús og Benóný mættu þó temja sér fjörlegri framkomu. Glímustaðan var allmisjöfn, þrátt fyrir aðfinnslur dómara. I of mörgum glímum kom það fyrir, að glímumenn stóðu ekki í allan hægri fótinn, en tylltu að- eins í tána. Þetta veldur boli og þvingaðri stöðu. Mest áberandi var þetta hjá Sigurði Hallbjörns- syni. Það hefur vaknað hjá ýmsum, er hugsa um glímuna, hvort ekki sé rangt að láta glímuviðureign hefjast úr kyrrstöðu. Er ekki eitt höfuðatriðl glímunnar,glímu-stígið til vinstri? Hefur ekki hvert bragð sína vissu sóknarstöðu? Er hér ekki einn galli, sem þarf að ráða hót á? Allt fram að 1910 urðu menn að hefja glímuviðureign úr stíganda. Væri það ekki til bóta , ef það yrði tekið upp aft- ur, að glámumenn hefðu viður- eignina úr stíganda og þegar stíg- andinn væri orðinn öruggur, gæfi dómarinn merki um sókn? Myndi þetta ekki losa um glimuna? Sóknin var ekki eins inisjöfn og búast hefði mátt við, vegna stærðarmunar glímumanna. Of mikið bar á hábrögðum teknum með vinstri fæti. Enginn glímumannanna tók glímubragð á lofti með hægri fæti. í 56 glímum* töldust þessi *) Aths.: Glímurnar áttu að verða 66, en þeir Sigurður Ingason og Jón Guðnason gengu úr leik vegna meiðsla. brögð hafa verið úrslitabrögð: leggjarbragð á gólfi 2, hælkrókur fyrir báða 3, hælkrókur hægri á hægri 3, en hægri á vinstri 4, krækja 2, krækja á lofti 1, snið- glíma á lofti með vinstri fæti 23, klofbragð með vinstri fæti 7 og sniðglíma. á gólfi 2. Mótbrögð og bragðleysa olli 9 úrslitum. 9 af 14 algengustu glímubrögðunum sáust og sniðglíma á lofti með vinstri fæti oftast beitt. Haraldur Jónsson átti flest úr- slitabragða. Guðmundur Ágústsson, sem vann skjöldinn að þessu sinni, skellti öllum keppinautum sín- um á sniðglímu á lofti með vinstri fæti, nema Finnboga, sem hann skellti á klofbragði með vinstri fæti og Haraldur Jónsson hnaut í gólfið án bragðs. Finnbogi lagði tvivegis á falleg- an hælkrók fyrir báða, einnig Sigurður Hallbjörnsson liælkrók hægri á vinstri mjög vel tekinn. Það bragð, sem vakti sérstaka athygli var klofbragð Haraldar Jónssonar með vinstri fæti. Har- aldur er lágur maður, en sterkur og i klofbragðið leggur hann sér- staka bolfettu, sem veilir bragð- inu feiknar fjaðurmagn um leið og bragðið er sótt hátt með fæt- inum. Finnbogi eyðilagði glímu sína mjög í viðureigninni við Ingólf. Beitti Finnbogi i viðureigninni þrívegis mjög áberandi níði. Þetta var fyrsta viðureign Finn- boga og Ingólfs á mótinu. Finn- bogi sýndi það síðar í glímunni að níð er honum óþarft og mun þar meir hafa ráðið spenningur en glímumennska. Varnirnar voru yfirleitt góðar. Áberandi vörn var eðlilega snið- glímu- og klofbragðsvörnin. 1. verðlaun fyrir fagra glímu hlaut Haraldur Jónsson en 2. verðl. Steinn Guðmundsson.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.