Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 14

Íþróttablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 14
10 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Ólafur K. Þorvarðsson forstjóri Sundhallar Reykjavikur 3. Sigurður Bachmann Á. á 1 mín. 38,5 sek. Þetta er í fyrsta sinn sem Einar keppir í bringusundi og sýndi hann þar meS að þar er gott bringusunds- mannsefni á feröinni. 500 m. bringusund, karla. 1. GuSm. Jónsson Æ. á 8. m. 00,8 sek. 2. Pétur Eiríkss. K.R. á 8. m. 47,6 sek. 50 m. skriðsund, karla. 1. Stefán Jónsson Á. á 28,6 sek. í úrslitasundi 28,3 sek. 2. Edvard Færseth Æ. á 28,6 sek. í úrslitasundi 28,4 sek. 3. Óskar Jensen Á. á 29,6 sek. í þessu sundi varð mjög hörð keppni og' góður árangur, enda var þetta aðalsund mótsins. 50 m. bringusund, stúlkur innan 16 ára. t. Unnur Ágústsdóttir K.R. á 44,8 sek. 2. Halldóra Einarsdóttir Æ. á 47,3 sek. 3. Svava Jónsdóttir Æ. á 48,8 sek. Undanfarin ár hafa svo að segja öll kvennsund fallið niður vegna ó- nógrar þátttöku. Þátttaka og árangur þessara stúlkna er vonandi upphaf að vaxandi þátttöku kvenna í þessari fögru og hollu íþrótt. 100 m. baksund, karla. 1. Guðmundur Þórarinsson Á. á 1 m. 28,3 sek. 2. Pétur Jónsson K.R. á 1. m. 28,7 sek. 3. Guðmundur Ingólfsson Í.R. á 1 m. 29,1 sek. Guðm. Ingólfsson er yngstur kepp- enda, hefur góðan sundstíl og getur, ef hann æfir vel, orðið ágætur bak- sundsmaður. 50 m. skriðsund, drengir innan 16 ára. 1. Halldór Bachmann Æ. á 31,4 sek. 2. Ari Guðmundsson Æ. á 32,5 sek. 3. Einar Sigurvinsson KR. 33,4 sek. Þessir piltar eru allir efnilegir og eiga væntanlega eftir að verða sund- meistarar á þessari og lengri vega- lengdum. 4x50 m. boðsund (bringusund). 1. Sveit K.R. á 2 m. 29,6 sek. 2. Sveit Æ. á 2 m. 30,2 sek. Sveit frá Ármann keppti einnig og varð fyrst á tíma 2 m. 28,2 sek., en sund hennar var dæmt ógilt, vegna þess að einn sundmannana stal við- bragði. Eins og að venju fór sundið vel fram.sundfólkið sýndi yfirleitt góðan sundstíl og náði góðum árangri, sér og kennurum sínum til sóma og á- nægju. Þami 10. des. s.l. lést einn af ágætustu forvígismönnum íþrólta- mála vorra, þótt ungnr væri, en það var Ólafur Kalstað Þorvarð- ^rson, forstjóri Sundliállar Reykjavikur. Ólafur er fæddur í Reykjavík 15. jan. 1911 og ólst hann upp hjá foreldrum sinum, Gróu Bjarnadóttur og Þorvarði Þor- varðarsyni prentsmiðjustjóra. Arið 1934 var Ólafur kjörinn til þess af Reykj avíkurbæ, að veita liinni, þá nýstofnuðu Sund- höll, forstöðu. Tókst hann það starf á hendur eftir að hafa siglt til Þýskalands og Danmerkur og kynnt sér þar sundhallarrekstur með fullkomnu nýtízku sniði. Það var mikið verk og vanda- samt fyrir rúmlega tvítugan mann, að færast jafn viðamikið og ábyrgðarmikið starf í fang, sem forstöðu hinnar fyrstu íslensku Sundhallar. En Ólafi tókst það með þvílíkri prýði, að vart varð betur á kosið og sýndi það hvort- tveggja í senn, að maðurinn hafði ekki aðeins brennandi á- huga á starfi sínu, lieldur bar hann og ágætt skyn á öll þau margháttuðu vandamál, er að höndum bar. Það segir sig sjálft, að það er margfalt vandasamara að vera brautryðjandi en að taka við starfi af öðrum, þar sem fengin er reynsla um rekstur og störf í fleiri eða færri ár. Hér varð ekki leitað til neinnar áður fenginnar ieynslu, heldur ekki til starfs- bræðra um úrlausn vandamála, því að aðrar sundliallir voru — og eru ekki til í landinu. Ólafur varð einn og óstuddur að ráða fram úr öllum vandamálum og horfast í augu við erfiðleikana. En honum varð ekki nein skota- skuld úr því, liann var vandan- um og starfi sínu vaxinn. Þegar hann féll að velli, í blóma lífs sins, alltof ungur, og raunveru- lega i upphafi starfs síns, var hann búinn að ávinna sér traust og' virðingu allra liinna mörgu samstarfsmanna sinna. Og það má með sanni segja, að það sé þrekvirki af þrítugum brautryðj- anda. Ólafur K. Þorvarðarson var íþróttamaður og íþróttaunnandi af lífi og sál. í bernsku tók hann þátt í félagsskap skáta, og fyrir knattspyrnu liafði hann alla ævi brennandi áhuga. Sjálfur var hann knattspyrnumaður með á- gætum og lék um f jölda ára í liði knattspyrnufélagsins Fram. Hann var ennfremur þjálfari þess fé- lags og formaður um margra ára skeið. í Knattspyrnuráði Reykja-

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.