Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 05.05.1952, Síða 3

Íþróttablaðið - 05.05.1952, Síða 3
3 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ ÍÞRÓTTABLAÐIÐ VIKUBLAÐ Otgefandi: Iþróttablaðið h.f. Ritstjóri: Gunnar M. Magnúss Pósthólf 1063, Reykjavík. Blaðstjórn: Ben. G. Wáge, Guðjón Einarsson, Gunnlaugur J. Briem, Jens Guðbjörnsson og Þorsteinn Einarsson. Verð kr. 65,00 árg. 1 lausasölu kr. 1,50 blaðið. Afgreiðsla á Amtmannsstíg 1. Sími 4955. HERBERTSprent Bankastraeti 3 Eigum við ekki öll að vera dús? Nágranni okkar, hérna skammt frá Amtmannsstíg 1, herra Sigurgeir Sigurðsson, biskupin yfir íslandi, fór einu sinni til Ameríku. Það var stríð og hann flaug í einu vet- fangi milli heimsálfanna og kom til frænda okkar og vina, Vestur-íslendinga, í kynnis- för. Þar þúaði hann hvern ein- asta mann sem var af íslenzku bergi brotinn. Þetta er nú ef til vill ekki í frásögur færandi, en það er frekar í frásögur færandi ef hr. biskupinn þér- ar Islendinga á ísl. grund. ÍJt frá þessari fyrirmynd, er biskupinn gaf í vesturförinni, vill blaðið varpa fram þeirri spurningu til iþróttamanna, hvort þeir vilji ekki taka upp þann sið að þúa hvern og einn og hefja þú-hreyfingu um allt land, kveða niður þéringar, og vera í þessu eins og bræður og systur á fjölskylduheimili þjóðarinnar. Alþjóða-Ólympíunefndin mun koma saman í Helsing- fors 16. júlí, þremur dögum áður en leikarnir hefjast. Af 71 nefndarmanni, hafa nú þeg ar meira en 50 tilkynnt þátt- töku sina. 1700 manna matsali hafa Finnar fyrir gesti sína í sumar. Húsakynni þessi vitna um hið óvenjulega mikla starf, sem Finnar þurfa að leggja í undirbúning leikanna. hafði Erlingur verið aðstoðar- kennari frá 1908-19. X Mörg sundfélög voru stofn- uð. Sundfélagið Grettir, Gáin o. fl. Þegar sundsýningar og sundkeppni hófst fyrir alvöru, tók þjóðin fjörkippi. Alþýðan og æskulýðurinn breiddi faðm sinn móti sundinu. Áhugalið sundsins hafði fest rætur með þjóðinni, og gat því sund- menning þróast stig af stigi. Nú skyldu menn ætla, að sund menningu vorri væri borgið, þegar íþróttafélögin tóku upp sundið á sína arma. Ó, nei. — Iþróttafélögin, er höfðu marg- ar íþróttagreinar á stefnuskrá sinni, áttu eftir að draga úr hraða þróunarinnar. Og það gerðu þau líka freklega með hinu alræmda Allsherjarmóti kringum 1923. En sleppum Allsherj armótinu. Nú kom á- hugalið sundsins að góðum notum. Fámennur hópur, sér- menntaður í sundi, sem skyldi innsta eðli þessara mála, og sá Völsungar 25 ára Um páskaleytið átti Iþrótta- félagið Völsungar í Húsavik 25 ára afmæli. Minntist félag- ið afmælisins með hófi í sam- komuhúsi bæjarins og sátu það um 160 manns. Völsungur hefur unnið mikð og gott starf í þágu íþróttamála og félags- mála bæjarins, og raunar hafa áhrif þess náð víða um hérað- ið. Félagið stundaði einkum knattspyrnu framan af, en tók seinna að iðka aðrar íþróttir, fimleika, fjölíþróttir og skíða- íþróttina. Hefur félagið haft mörgum góðum mönnum á að skipa. Stofnendur voru 23, en nú eru félagsmenn um 200. I fyrstu stjórn voru Jóh. Haf- stein, Jakob Hafstein, Ásbjörn Benediktsson, Benedikt Bjark lind og Helgi Kristjánsson. — Núverandi stjórn skipa: Þór- hallur Snædal, form., Aðal- steinn Karlsson, Guðm. Há- konarson, Höskuldur Sigur- geirsson og Lúðvík Jónasson. Blaðinu er kunnugt um að mikill áhugi er meðal hinna yngri manna í félaginu til þess að efla gengi þess í framtíð- inni. Jónas Geir Jónsson, í- þróttakennari, sem hefur ver- ið kennari félagsins í 20 ár, var kjörinn heiðursfélagi fyrir mikið og gott starf. Að lolcnu sundmeistaramóti Islands, sem fram fer í Hvera- gerði 10. og 11. maí n. k. verð- ur aðalfundur Sundsambands Islands haldinn í Hveragerði. S. S. I. fól Héraðssambandinu Skarphéðni að sjá um fram- kvæmd Sundmeistaramóts Is- lands. Áskrifendur blaðsins eru beðnir að til- kynna afgreiðslunni um bú- staðaskipti. Hafið samband við afgreiðsluna á Amtmanns- stíg 1. Friðrik í fararbroddi. Það mega teljast nokkur tíðindi, að Friðrik Guðmunds- son kastaði nýlega kringlunni 47.22 m. á innanfélagsmóti, er KR hélt. I fyrsta lagi er þetta einhver bezti árangur, sem Friðrik hefur náð, í öðru la-gi er þetta svo snemma vors, að enn betri árangurs má vænta. Friðrik er sennilega fyrstur í- þróttamanna okkar, sem náð hefur hinu tilskylda marki FRl til þátttöku í Ólympíu- leikunum, en það er í kringlu- kasti 47 m. Á þessu móti kastaði Þor- steinn Löve kringlunni 45,55 m. Vænta má, að hann sæki lengra fram, ef að líkum læt- ur. Þá má enn geta þess, að Ólafur Þórðarson kastaði 40, 98 m. og Svavar Helgason 39.22 m. allir úr KR. Tafla yfir norsku leikina 29. apríl. A-deild. Leik. u j t mörk St. Odd 7 5 0 2 17-10 10 Brann 7 4 1 2 18-10 9 Asker 6 4 0 2 16- 8 8 Viking 7 3 2 2 15-11 8 Skeid 7 3 1 3 16-12 7 Válereng. 6 2 1 3 13-13 5 Arstad 7 1 2 4 10-29 4 Örn 7 0 3 4 B-deild. 9-21 3 Leik. u j t mörk St. Fr.stad 7 7 0 0 19- 6 14 Strömmen 7 4 0 3 18-12 8 Kvik 7 3 2 2 12-10 8 Sparta 7 3 2 2 10-10 8 Sarpsborg 6 2 1 3 6-6 5 Sandfjord 6 2 1 3 5-6 5 Lyn 7 1 2 4 8-13 4 (Snögg 7 0 2 5 6-21 2 Bandarísku hlaupararnir Fred Wilt (til hægri) og Don Gehrmann eru líklegir til þess að keppa á Ólympíuleikun- um í sumar. Myndin er tekin af þeim í janúarlok í vetur, en þá þreyttu þeir harða keppni í mílu hlaupi. F. Wilt var á undan, þangað til á seinustu metrunum, að Gehrmann rudd- ist fram fyrir og sigraði á 4:09,3 mín., aðeins metra á undan. nú, að menn gátu haft vald á þróun sundmenningarinnar til ills eða góðs, lét til sín taka. Þetta áhugalið sundsins taldi nauðsynlegt að stofna sund- félag, sem hefði ekkert á stefnuskrá sinni nema sund. (Sjá grein Jóns Pálssonar, „Tildrög að stofnun S.fél. Æg- is“ í Ægir 10 ára). Ægir stóð ekki lengi óstuddur. Ármann og KR hófu einnig upp hið rétta merki sundsins. Sund- laugar Reykjavíkur urðu að háskóla -sundsins, þar sem all- ar nýjungar í sundi og sund- málum voru ræddar. XI. Eftir þetta hefst nýtt tíma- bil í sögu sundmenningar Is- lendinga. Þróunin heldur á- fram stig af stigi. Hver sigur- inn rak annan. Sundhöll Rvík- ur var reist. Lögboðin sund- skylda í öllum skólum lands- ins knúin fram 1940. Þeir ein- staklingar, sem báru ægis- hjálminn í glímunni við vald- hafana, voru Erlingur Páls- son, Ben. G. Wáge, Guðmund- ur Kristinn og Ingibjörg H. Bjarnason, svo nokkur nöfn séu nefnd. Eftir þessa miklu sigra, var næsta sporið að ráða mann til þess að framkvæma lögin um sundskylduna. Til þess var Þorsteinn Einarsson ráðinn. XII. „ Til eru þeir menn, sem á mjög lævíslegan hátt falsa sögu sundsins, er þeir koma höndum undir. Byggist sögu- fölsunin helzt á því, að vagga sundsins hafi ekki verið hér í Reykjavík. Hvers vegna má vagga sundsins ekki hafa verið í Reykjavík? Björn Jónsson, ritstjóri Isafoldár var búsett- ur í Reykjavík. En að vísu var Páll Erlingsson bóndi. En hann settist að í Reykjavík. Það getur vel verið, að sum- ir eigi erfitt með að þola það, að eitthvað nýtilegt komi frá kaupstöðunum en menn verða alténd að bera virðingu fyrir staðreyndum. — Auðvitað verða þessar hlægilegu sögufalsanir öllum gleymdar áður en langt um líður. XIII. Slælega hefur verið haldio á sunflmálum vorum, siðan þau gengu úr höndum áhuga- Iiðs sundsins. I 12 ár hefur ,,ríkið“ haft þau með höndum. Á einstaka stað út á landi hef- ur „ríkið“ aðeins gert lög- boðna skyldu sína við fólkið og ekkert þar fram yfir. En víðast hvar hefur þröngsýni og íhaldssemi ráðið um sund- laugabyggingar. I Reykjavík hefur ekkert verið gert, ekkert, — ekkert. Aðeins svik á svik ofan. Nú er ekki hægt að setja þessi mál í samband við hina efnahags- legu þróun. Ekki til afsökun- ar. Því að framan af er þetta tímabil talið mesta blómaskeið efnalegrar þróunar, framfara, framkvæmda og víðsýni, á ýmsum sviðum, síðan landið Pétor heppir erlendis. Pétur Kristjánsson hinn frækni sundgarpur, sem nú er aðeins 17 ára að aldri, fór 15. apríl sl. á vegum Sundsam- bands Islands til þátttöku í unglinga sundmeistaramóti Norðurlanda. Með honum fór þjálfari hans, Þorst. Hjálm- arsson. Mótið fór fram í Osló dagana 26. og 27. apríl. I aðal- keppninni í 100 m. skriðsundi varð Pétur þriðji í röðinni á 1:1,9 mín. Fyrstur varð Sví- inn Olander á 1:0,3 mín. og annar Ikonen frá Finnlandi á 1:1,3 mín. Þess má geta, að áður en Pétur fór í för þessa synti hann þessa vegalengd á 1:0,6 mín„ en Svíinn, er vann þetta sund í fyrra, svam spölinn á 1:1,9 mín. Þann 20. apríl keppti Pétur í sundi fullorðinna í Osló. Varð hann fyrstur á 100 m. skriðsundi á 1:0,3 mín. eða sama tíma og Olander sigraði á. Ástæða er til að fagna á- gætum árangri þessa uíiga sundmanns, sem vonandi á eftir að njóta sín enn betur. Myndin, sem hér fylgir, er af Pétri er hann var 15 ára gam- all, en þá hafði hann unnið sína fyrstu stórsigra. byggðist. Miðað við ýmsar framkvæmdir eftir stríð, á dugnaður áhugaliðs sundsins á kreppuárunum fyrir stríð, sér enga hliðstæðu. En hvers vegna var ekkert gert fyrir sundið hér í bæ á þessum árum eftir stríð? Því er fljót svarað. Áhugalið sundsins fær engu að ráða. Hvorki hér í Reykjavík eða úti á landi. — „Ríkið“ virðist vinna að því að einangra áhugalið sundsins hér í Reykjavík. Það eina, sem ríkið hefur gert í sundmálum hér í höfuðstaðnum, er að víkja mönnum þeim, er mesta reynslu og þekkingu hafa á sundmálum, úr þýðingarmikl- um nefndum. XIV. Hvenær verður reist full- komlega nothæf æfingalaug í Reykjavík? Hvenær verður Sundlaug Vesturbæjar reist? Verður stór hluti af reykvísk- ingum, að senda börn sín upp í sveit til að læra að synda? Framhald á bls.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.