Íþróttablaðið - 01.05.1968, Síða 7
megi virðast, vinnur það örar og lakar, ef því
er fengið lítið að starfa. Þjálfaður maður, sem
æfir sig reglubundið, mun hafa hvíldarpúls
um 60, en óþjálfaður kyrrsetumaður um 80.
Hægt er að kanna eigið ástand með því að sitja
kyrr í 5 mínútur og taka svo púlsinn. Sé hann
80 eða meira, er ástandið slæmt og rík ástæða
til að hefja þolþjálfun.
Þegar hjartað styrkist vegna þolþjálfunar,
þarf meiri áreynslu til að þreyta það. Það kemur
skýrt í ljós á þjálfunartímabilinu. Pyrstu vik-
urnar eða mánuðina, meðan verið er að byggja
upp þolið, er líklegt, að þreytu gæti hverju
sinni, en þegar frá líður, mun auðvelt að ná
30 stigum á viku án þess að fixma fyrir því.
Eitt af athyglisverðustu áhrifunum af þol-
þjálfun er vöxtur æðakerfisins og blóðmagns-
ins. Þetta opnar nýjar leiðir og eykur súrefnis-
upptökuna, en það er ljós vottur um heilbrigði
hjartans. Þegar leiðunum fjölgar fyrir blóð-
rásina er líka minna í húfi, ef einhverjar æðar
skyldu láta sig, og möguleikar þjálfaðra á
heilsubót eftir æðasjúkdóm eru mun meiri.
Lokaorö.
Hvenær sem tími er til, er hægt að stunda
æfingar. En ekki er rétt að taka á sig náðir
strax að lokinni æfingu, heldur gefa líkamanum
að minnsta kosti eina klukkustund til að jafna
sig.
Æfingar ætti ekki að stunda rétt á eftir mál-
tíð, helzt á að láta líða tvær stundir á milli.
Búast má við, að harðsperrur, veðurfar eða
annað mótlæti verði því valdandi, að mönnum
hætti til að láta hugfallast. Það mun væntan-
lega koma fyrir alla. Mikilvægt er að gefast
aldrei upp, og þá mun ánægja manna af æfing-
um koma í ljós.
HEIMSMEISTARAMÓT
STÚDENTA 1970
(vetrarleikirnir) fara fram í Finnlandi. Skíða-
og skautakeppnin fer fram i Rovaniemi, ísknatt-
leikskeppnin í Tammerfoss.
Frá
Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
Aðalfundur KR var haldinn í KR-heimilinu mánudag-
inn 11. des. sl. Formaður KR, Einar Sæmundsson, setti
fundinn, en fundarstjóri var Sigurður Halldórsson og
fundarritari Gunnar Felixson.
Áður en gengið var til dagskrár, minntist formaður
KR þriggja félaga, er látizt höfðu á árinu: Þorsteins
Daníelssonar, Grétars Björnssonar og Benedikts Jakobs-
sonar. Heiðruðu fundarmenn minningu þeirra með því
að rísa úr sætum.
Gunnar Sigurðsson flutti skýrslu aðalstjórnar, Þor-
geir Sigurðsson las reikninga félagsins og Sveinn
Björnsson skýrslu og reikninga hússtjórnar.
t skýrslu hússtjórnar kom m.a. fram, að hafnar eru
nú umfangsmiklar framkvæmdir á vegum KR. Má þar
fyrst nefna byggingu nýs íþróttahúss, helmingi stærra
en þess, sem fyrir er. Á sl. ári fékk KR verulega
stækkun á landrými sínu. Er í ráði að girða íþróttasvæð-
ið í vor og lagfæra gras- og malarvelli. Lýsingu hefur
verið komið upp á malarvelli, og var kveikt á henni í
í fyrsta sinn kvöldið, sem aðalfundurinn fór fram. Þá
hafa verið gerðar ýmsar lagfæringar á félagsheimilinu.
Sjálfboðavinna hefur verið mikil á félagssvæðinu í
haust: 536% klst., sem metnar eru á ca. 40 þús. kr,-
Þakkaði Sveinn Björnsson öllum þeim, er tekið hefðu
þátt í þessu starfi, og lét í ljós þá von, að eftir 15 mán-
uði, á 70 ára afmæli KR, yrði hið nýja íþróttahús
komið í notkun, a.m.k. að einhverju leyti, því að þörfin
fyrir það væri brýn.
Aðalstjórn KR hélt 11 bókaða stjórnarfundi á árinu
auk 4 formannafunda. Fastanefndir störfuðu eins og
áður: Hússtjórn og rekstrarnefnd skíðaskála og skíða-
lyftu. Út kom KR-blað á árinu, skemmtilegt og vandað,
árshátíð var haldin að venju. Sumarbúðastarfsemin
hélt áfram sl. sumar í skíðaskálanum í Skálafelli, og
komust miklu færri börn að en vildu. Hannes Ingi-
bergsson og kona hans sáu um sumarbúðirnar eins og
undanfarið.
I aðalstjórn KR voru kjörnir: Einar Sæmundsson,
formaður, Sveinn Björnsson, Gunnar Sigurðsson, Þor-
geir Sigurðsson, Birgir Þorvaldsson og Þórður B. Sig-
urðsson. Hússtjórn kýs síðan einn fulltrúa í stjórnina.
Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum skýrðu
formenn deilda félagsins frá helztu verkefnum, sem
framundan eru í hverri deild. Formenn deildanna eru
nú: Knattspyrnudeild: Ellert B. Schram. Fimleikadeild:
Árni Magnússon. Frjálsiþróttadeild: Einar Frímanns-
son. Handknattleiksdeild: Sveinn Kjartansson. Körfu-
knattleiksdeild: Helgi Ágústsson. Sunddeild: Erlingur
Þ. Jóhannsson. Skíðadeild: Valur Jóhannsson. Glímu-
deild: Sigtryggur Sigurðsson. Badmintondeild: Óskar
Guðmundsson.
171