Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - nov 2009, Qupperneq 19

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - nov 2009, Qupperneq 19
Nýjar reglur um sjúkra-, iðju- og talþjálfun Breytingar á kostnaðarþátttöku sjúklinga Með nýrri reglugerð heilbrigðisráðuneyt- isins um þjálfun sem tók gildi 1. október sl. urðu breytingar hvað varðar kostnaðarþátt- töku sjúklinga og takmarkanir settar á fjölda skipta í þjálfun. Mun ákveðnari skilyrði en áður eru í reglugerð- inni um hverjir fá samþykkta greiðsluþátttöku eftir að hafa fengið meðferð í 25 skipti. Miðað er við að þeir einstaklingar sem búa við mikla skerðingu á færni fái samþykkta áframhaldandi greiðsluþátttöku frá sjúkratryggingum. Einn- ig einstaklingar sem haldnir eru langvarandi sjúkdómum sem leitt geta til skertrar færni, þeir sem eru að ná sér eftir alvarleg veikindi og slys, eða þurfa þjálfun í heinnahúsi til að koma í veg fyrir dvöl á hjúkrunarheimili eða sjúkrahúsi. Einstaklingar sem þurfa nauðsynlega á þjálfun að halda sem hluta af endurhæfingarferli geta einnig fengið meðferð til lengri tíma. Þjálfari sjúklings getur sótt um viðbótarþjálfun ef skilyrði eru fyrir hendi þ.e. þau sem hafa ver- ið talin upp áður. Breytingin sem tók gildi 1. október hefur í för með sér að kostnaðarþátttaka hjá sjúklingum eykst og getur hún skipt tugum þúsunda hjá lífeyrisþegum sem eru með skerta tekjutrygg- ingu. Þá greiðir stór hópur sjúklinga hærra hlutfall en áður fyrir hvern þjálfunartíma. Hér fyrir neðan eru upplýsingar sem teknar eru af vef Tryggingastofnunar ríkisins www. tr.is. Þar sem hlutfall (%) er gefið upp er átt við greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir hvern þjálfunar- tíma sem kostar í heild samtals kr. 4.083. Greiðsluþátttaka hjá lífeyrisþegum • Aldraðir og öryrkjar sem fá greidda óskerta tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) greiða 20% af heildarverði fyrir fyrstu 25 meðferðarskipti á einu ári en greiða ekkert gjald eftir það út árið. • Aldraðir og öryrkjar sem fá greidda skerta tekjutryggingu frá TR greiða 20% af heildar- verði fyrir fyrstu 25 meðferðarskipti á einu ári og 10% eftir það út árið. Kostnaður eykst mest hjá þeim sem eru með skerta tekjutryggingu. Ljósmynd Bára Snæfeld. • Aldraðir og öryrkjar sem ekki fá greidda tekjutryggingu frá TR greiða 30% af heildar- verði fyrir fyrstu 25 meðferðarskipti á einu ári og 20% eftir það út árið. Greiðsluþátttaka bama undir 18 ára og einstaklinga með umönnunarkort • Börn greiða 20% af heildarverði fyrstu 25 meðferðarskipti en greiða ekkert gjald eftir það út árið. Almenn greiðsluþátttaka • Einstaklingar greiða 70% af heildarverði fyrstu 25 meðferðarskiptin á einu ári og 40% eftir það. fyrir og eftir breytinguna 1. október. í töflunum eru dæmi þar sem annarsvegar er miðað við öryrkja sem er að meðaltali í þjálfun tvisvar í viku í 40 vikur á ári og hins vegar þrisvar í viku miðað við sömu forsendur. Öryrkjabandalagið hefur mótmælt þessum breytingum. ÖBÍ hefur mótmælt þessum hækkunum en eins og sjá má þá eykst kostnaðurinn í öllum dæmum en hlutfallslega mest hjá þeim sem eru með skerta tekjutryggingu en þeir lenda nú í öðrum greiðsluflokki en áður. Þá er kostnaður fyrir þjálfun áfram hlutfallslega mjög hár hjá þeim sem eru ekki með tekjutryggingu. Þessar tölur sýna að umframkostnaður vegna fötlunar Hvað þýðir þetta fyrir þá sem þurfa á þjálfun er minna metinn en áður. að halda? Guðríður Ólafsdóttir Hér að neðan eru töflur með dæmum um félagsmálafulltrúi ÖBÍ hækkanir á þjálfunarkostnaði hjá öryrkjum Þjálfun tvisvar í viku í 40 vikur á ári Árlegur kostnaður fyrir 1. október 2009 Árlegur kostnaður eftir 1. október 2009 Kostnaðarauki á ári eftir 1. október 2009 Öryrki með fulla tekjutryggingu 16.340 kr. 20.425 kr. 4.085 kr. Öryrkimeð skerta tekjutryggingu 16.340 kr. 42.865 kr. 26.525 kr. Öryrki án tekjutryggingar 65.360 kr. 75.560 kr. 10.200 kr. Þjálfun þrisvar í viku í 40 vikur á ári Árlegur kostnaður fyrir 1. október2009 Árlegur kostnaður eftir 1. október 2009 Kostnaðarauki á ári eftir 1. október 2009 Öryrki með fulla tekjutryggingu 16.340 kr. 20.425 kr. 4.085 kr. Öryrki með skerta tekjutryggingu 16.340 kr. 59.851 kr. 43.511 kr. Öryrki án tekjutryggingar 98.040 kr. 108.240 kr. 10.200 kr.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.