Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - nov 2009, Qupperneq 22

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - nov 2009, Qupperneq 22
22 Hópmynd úr sumarferð 2009. Bergmál, líknar- og vinafélag Bergmál, líknar- og vinafélag, hefur undan- farin 15 ár staðið fyrir hvíldar- og orlofsvik- um fyrir krabbameinssjúklinga og aðra sem búa við langvarandi veikindi. Starfsemin hefur þrettán sl. ár verið að Sólheimum í Grímsnesi. Orlofsvikurnar hafa verið tvær. Sitt hvor sjúklinga- hópurinn hefur verið í hvorri viku, flest árin um 50 manns. Öll dvölin er sjúklingunum að kostn- aðarlausu. Vegna vaxandi starfsemi að Sólheim- um hafði þrengst að starfssemi félagsins þar, svo félaginu var nauðsynlegt að byggja hús sem hýst gæti starfsemina. Bygging hússins hófst árið 2007 og það var tekið í notkun í júní 2009. Ákveðið hefur verið að gefa aðildarfélögum innan Öryrkjabandalags íslands og eldri borgurum kost á að taka húsið á leigu gegn vægu gjaldi þann tíma sem orlofsvikurnar eru ekki starfræktar. Leigjendur hafi með sér handklæði, sápu, sæng- urver, lök og koddaver. Þó er hægt að fá það leigt á staðnum ef nauðsyn krefur. Húsið, sem er 560 fermetrar, fjórtán 2ja manna herbergi með WC og sturtu, eldhús, búr, setustofa og þvottahús er leigt með húsgögnum og lausamunum. Fullkom- in aðstaða er fyrir fatlaða. Umverfið á Sólheimum er einstaklega fallegt og staðsetningin býður upp á fjölbreyttar skoðunarferðir. Upphaflega var Bergmál kór gamalla nemenda Hlíðardalsskóla í Ölfusi, sem langaði til að rifja upp gömul kynni. Þessi hópur hittist einu sinni í mánuði yfir vetrartímann í nokkur ár, annað hvort á einkaheimilum eða í tónlistarstofu skóla á höf- uðborgarsvæðinu. Hópurinn kallaði sig Bergmál. Allir meðlimir áttu það sameiginlegt að hafa verið í kór hjá Jóni Hjörleifi Jónssyni kennara í Hlíð- ardalsskóla. Þetta vár „bergmál” æskudaganna! Þegar einn af aðalhvatamönnum þessa starfs greindist með krabbamein og lést af þess völd- um, var ákveðið að stofna félag sem styddi við bakið á fólki sem greinst hefði með krabbamein. Það var einlæg ósk þessa vinar okkar að eitthvað slíkt yrði gert. Það hafði hann skrifað í bók sem kom í Ijós við dauða hans. Þessi maður var Ólafur Ólafsson bassasöngvari. Bergmál, líknar- og vinafélag, var svo stofnað árið 1994. Frá þeim tíma hefur félagið boðið upp á orlofsvikur fyrir krabbameinssjúklinga og annað langveikt fólk, haldið úti „opnu húsi” einu sinni í mánuði yfir veturinn og boðið félögum og skjól- stæðingum árlega til aðventuhátíðar og árshátíð- ar í Háteigskirkju, auk sumarferðar. Fjár hefur ver- ið aflað með styrkjum frá opinberum aðilum og einkaaðilum, auk sjálfsaflafjár með jólakortasölu, minningarkortum og eftir öðrum leiðum sem ein- kenna slíka starfsemi á íslandi. Allt starf meðlima félagins er sjálfboðaliðastarf. Reynir Guðsteinsson Málefli - ný hagsmunasamtök Nýtt aðiidarféiag öbí Málefli, hagsmunasamtök í þágu barna og unglinga með tal- og málþroskaröskun eru nýstofnuð. Þann 16. september sl. voru þau stofnuð í fyrirlestrarsal Háskóla íslands, Bratta. Stofnfélagar voru um 100 talsins. Undirbúningur að stofnun þessara samtaka hefur verið í umræðunni æði lengi milli einstakra talmeinafræðinga og foreldra en það var ekki fyrr en snemma í vor sem blásið var til fram- kvæmda og 10 manns gáfu sig fram til að vinna að stofnuninni sem ákveðið var að fram skyldi fara á haustdögum. Hóþur okkar skjólstæðinga ertalsvert falinn í skólakerfinu og ekki eins sýni- legur og sumir aðrir hópar sem bera fötlun sína utan á sér. Fötlun okkar skjólstæðinga liggur í máli og tali og oft alvarlegum námserfiðleikum s.s. lesblindu. Helstu einkenni barna sem ekki læra málið á eðlilegum tíma og á eðlilegan hátt vegna málþroskaröskunar eru erfiðleikar við að ná tökum á orðaforða, málskilningi, setn- ingafræði, málfræði, hljóðkerfinu og málnotk- un. Þegar börnin fara í skóla breytast einkenni vandamálanna og taka á sig mynd sértækra námserfiðleika og þau eiga erfiðara með að læra lestur og glíma auk þess við ýmsa náms- erfiðleika bæði í íslensku og stærðfræði. Tal- og málþroskaröskunin getur líka valdið því að þeg- ar fer að reyna meira á að nota málið í félags- legum samskiptum þá draga þau sig gjarnan út úr og fá ekki tækifæri til að þroska félagsfærni sína. Afleiðingar tal- og málþroskaröskunar eru því margbreytilegar og hafa víðtæk áhrif. Samtökin eru tengd Menntavísindasviði Há- skóla íslands þar sem Jón Torfi Jónasson er forseti og tengjast Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi sem Hrafnhildur Ragnars- dóttir veitir forstöðu. Með þeirri tengingu sjáum við fram á að rannsóknir á þessum hópi barna verði efldar. Markmið samtakanna er: Að vekja athygli á nauðsynlegri þjónustu við börn með tal- og málhömlun, að fræða aðstandendur um tal- og málhömlun, að vinna að auknum „réttindum" barna með tal- og málhömlun, að hvetja til rannsókna á tal- og málhömlunum. Hólmfríður Árnadóttir ritari Máleflis

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.