Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 27
Ingi Valur Þorgeirsson.
til þess að skáka þeim bestu í flokki
fullorðinna?
„Ég þarf tvö til þrjú ár en til þess
þyrfti ég að hætta að vinna og æfa
tvisvar á dag. Ég lýk námi frá Fjöl-
brautaskóla Akraness næsta vor og
þá tekur sama gamla, góða vinnan
við hjá Byggingafélaginu Borg. Auð-
vitaðværi gaman að getaæfttvisvará
dag og helgað sig lyftingum að ein-
hverju leyti en ég sé ekki fram á það á
næstunni. Næsta veturferég hugsan-
lega í nám í byggingatæknifræði í
Tækniskólanum þannigað þaðerum
nóg að hugsa á næstunni."
— Hvað kom til að þú fórst að
lyfta lóðum?
„Þegarég byrjaði árið 1988 var Jón
Páll upp á sitt besta og hann hafði
hvetjandi áhrif á mig. Síðan hef ég
verið í lóðunum."
— Það er töluverð gróska í lyfting-
um í Borgarnesi, ekki satt?
„Jú, við byrjuðum fjórir á sama
tíma en tveir hættu. Villi, sem keppti
með mér á Norðurlandamótinu, er
fluttur í bæinn og líklega æfi ég með
honum ef ég fer í Tækniskólann. En
hérna æfa líka nokkrir kraftlyftinga-
strákar."
— Heillar það þig ekki?
„Nei, mér finnst meira um vert að
geta keppt á Ólympíuleikum. Það er
draumurinn."
— Hver þjálfar þig?
„Iris Grönfeldt hefur leiðbeint mér
undanfarin árog svo hefég líka þjálf-
að mig sjálfur. Guðmundur Sigurðs-
son í Reykjavík hefur leiðbeint mér
töluvert hvað varðar tæknina þannig
að margt hjálpast að í þessum efn-
um."
— Hvers vegna hafa lyftingar
verið í lægð á íslandi undanfarin ár?
„Það hlýtur margt að koma til en
fyrst og fremst virðast menn vera
áhugalausir og ekkert er gert til þess
að rífa upp íþróttina. Það hefur lítil
endurnýjun átt sér stað í íþróttinni.
Sem dæmi um áhugaleysið hef ég
tvívegis orðið íslandsmeistari íkarla-
flokki og í bæði skiptin var ég eini
keppandinn í þyngdarflokknum. Á
síðasta íslandsmóti kepptu 14 menn í
10 þyngdarflokkum. Það þarf að lyfta
grettistaki til þess að rífa þessa íþrótt
upp."
• að GUÐNl GUÐNASON,
landsliðsmaður í körfubolta úr
KR, hafi æft í laumi, einn og sér á
sínum yngri árum og stefnt að því
leynt og Ijóst að verða góður
körfuboltamaður, eftir að félagar
hans leyfðu honum að aldrei að
vera með þegar þeir léku sér í
körfubolta.
• að knattspyrnumaðurinn
IZUDIN DAÐI DERVIC hafi boð-
ið sig til nokkurra liða, m.a. Vals
og Leifturs til þess að setja pressu
á KR um að fá betri samning en
síðastliðið sumar. Það tókst!
• að BELGÍSK FÉLÖG, sem hafa
verið að falast eftir að íslenskir
leikmenn skrifi undir atvinnu-
samning áður en þeir verða 16
ára, séu að bjóða þessum strák-
um allt að tvær milljónir í laun á
ári.
27