Íþróttablaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 26
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Myndir: Gunnar Gunnarsson
í litlum lyftingasal í íþróttamiðstöð-
inni í Borgarnesi, innan um almenn-
ing og metnaðargjarnt frjálsíþrótta-
fólk, leynist einn efnilegasti íþrótta-
maður þjóðarinnar. Það fer ekki
mikið fyrir honum enda kappinn
hógvær — jafnvel hlédrægur og lítið
fyrir að blása upp afrek sín með lóð-
in. Ingi Valur Þorgeirsson var kjör-
inn Lyftingamaður ársins á síðasta
ári þrátt fyrir ungan aldur en hann á
sannarlega framtíðina fyrir sér. í síð-
asta mánuði varð hann Norður-
landameistari unglinga og eftir að
hafa stungið gullpeningnum í vasann
hélt hann heim á leið til þess að
halda áfram að hamast með lóðin.
„Hann er ótrúlegur," heyrðist
hvíslað í íþróttamiðstöðinni þegar
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ lagði lóð sitt á
vogarskálina til að kynna þennan
metnaðargjarna en hógværa íþrótta-
mann. Hann er aðeins tvítugur að
aldri og hefur þar með lokið keppni í
VINUR
LÓÐANNA!
Rætt við Borgnesinginn Inga Val Þorgeirsson Norðurlanda-
meistara unglinga í ólympískum lyftingum
unglingaflokki. Ætli það hafi komið
honum á óvart að verða Norður-
landameistari?
„Neee, ekkert sérstaklega því ég
vissi hvað helsti andstæðingur minn
átti best," segir Ingi Valur. „Hann var
nýbúinn að setja Norðurlandametog
ég vissi að ég ætti að geta orðið
meistari."
— Hvaða þyngdum varstu að lyfta
á Norðurlandamótinu?
„Ég snaraði 127 kg og jafnhenti
157 kg í 83 kg flokki."
— Var þetta þinn besti árangur?
„Já, á móti en ég hef snarað 132 kg
og jafnhent 160 á æfingu."
— Hvað hefurðu þyngst mikið frá
því þú byrjaðir að lyfta?
„Þegarégbyrjaði 15 áragamall var
ég 52 kg þannig að ég hef bætt á mig
31 kg. Éghefþvíþyngstum rúmlegaó
kg á ári. Þegar ég var 15 ára var ég
örugglega 20 sentímetrum lægri en
ég er núna þannig að þú getur rétt
ímyndað þér hvort ég hafi ekki verið
lítill."
— Hvað er framundan hjá þér?
„Norðurlandamót karlaferfram 5.
des. og ég reikna með að keppa á því.
Möguleikarnir á að skáka þessum
fullorðnu körlum er engir því tveir,
sem keppaá mótinu, eiga um 315 kg í
samanlögðu en ég á 285 kg. Ég verð
afskaplega ánægðuref ég lyfti 300 kg
í samanlögðu og það gæti dugað mér
í 3. sæti. Annars er þetta kannski full
mikil bjartsýni því tíminn fram að
mótinu er skammur."
— Hvað telurðu þig þurfa mörg ár
26