Vísbending


Vísbending - 24.01.2017, Síða 3

Vísbending - 24.01.2017, Síða 3
V Í S B E N D I N G 3 . T B L . 2 0 1 7 3 Hér á landi fer raforkufram-leiðsla nánast eingöngu fram með virkjun endurnýjanlegra auðlinda; um 75% með vatnsaflsvirkj- unum og um 25% með jarðvarma- virkjunum. Raforka, sem framleidd er með vatnsafli, hefur verið flokkuð sem endurnýjanlegur orkugjafi og framleiðslan felur ekki í sér losun gróðurhúsalofttegunda, sem gerir hana umhverfisvæna. Vatnsaflsvirkjanir í hnotskurn Uppistöðulón þjóna vatnsaflsvirkjun- um og þau eru ýmist manngerð eða til staðar frá náttúrunnar hendi. Við gerð vatnsaflsvirkjana þarf að huga að lónum og stíflum. Vatn safnast í lón þar sem stífla heldur aftur af vatninu. Flæði vatns er stýrt í gegnum stöðvarhús virkjunar. Með því að stjórna rennsli í gegnum stíflu er mögulegt að nýta það eftir þörfum og stýra þannig framleiðslu rafmagns eftir því sem eftirspurn krefur. Unnt er að bregðast við breytingum í eftirspurn eftir raforku með hliðrunum gegnumflæðis til samræmis. Síðan er það inntak, stjórnhlið, sem og fallgöng með rörum, sem leiða vatn að stöðvar- húsinu. Þá færa fallgöng vatn í hverfil vatnsaflsvirkjunarinnar. Með eftirfarandi jöfnu má reikna orkugetu vatnsaflsvirkjana:1 E=η*γ*((Q’ * hn)/f ) E = ex works (kWh/a) η = the efficiency of the power station (here set at 0.87) γ = the specific gravity of water (here set at 9.81 *103 kN/m3) Q’= the regulated (used) volume of water (m3/a) hn= net (effective) head f = factor for conversion between units (3.6*106 Ws/kWh) Spennubreytir í stöðvarhúsi virkj- unar hækkar og lækkar spennu áður en orka er flutt um raforkukerfi landsins. Í framhaldinu fer orkan af orkukerfi yfir á einstakar línur, þar sem spennubreyt- ar færa orku af línu á þeirri spennu sem hentar til heimilisnota. Þegar vatn kemur inn í virkjun snýr það blöðum vatnshjóls/hverfils. Misjafn- ar tegundir vatnshjóla/hverfla eru nýttar í vatnsaflsvirkjunum, hver með sína eig- inleika sem henta misjöfnum aðstæðum. Vatnshjólið/hverfillinn er tengdur rafal að ofan. Í stöðvarhúsinu er hverfill, raf- all og spennubreytir. Rafallinn framleið- ir rafmagn. Rafall er milli túrbínu og spennubreytis innan stöðvarhúss í vatns- aflsvirkjun. Eftir að vatnsaflið hefur ver- ið nýtt til raforkuframleiðslu rennur það sem affallsvatn út um affallsrör. Að lok- um færa rafmangslínur rafmagn frá virkj- un inn á raforkukerfið landið um kring. Við virkjanamat gefur lóðrétt fallhæð og styrkur vatnsflæðis vísbendingu um mögulega rafmagnsframleiðslu. Virkjanir hérlendis Virkjun vatnsafls framh. á bls. 4 Helga Kristjánsdóttir hagfræðingur Heimild: Kristjánsdóttir (2015). Sustainable Energy Resources and Economics in Iceland and Greenland. Springer. New York. Mynd 1. Virkjunarferlið Mynd 2. Heildarmagn endurnýjanlegra auðlinda ferskvatns (ma. m3) Í milljörðum rúmmetra. Heimild: Alþjóðabankinn (2014).

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.