Vísbending


Vísbending - 24.01.2017, Blaðsíða 1

Vísbending - 24.01.2017, Blaðsíða 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál V Í S B E N D I N G • 3 . T B L . 2 0 1 7 1 24. janúar 2017 3. tölublað 35. árgangur ISSN 1021-8483 1 32 4Bílaleigur eru orðnir um-svifamiklir markaðsaðilar á fólksbílamarkaði á Íslandi. Rafbílavæðing landsins er skammt á veg komin þrátt fyrir kjöraðstæður. Vatnsaflsvirkjanir skipa mikil- vægan sess í framleiðslu raforku hérlendis. Hvernig er sveiflan? framh. á bls. 2 Mynd 1. Nýskráningar fólksbíla og meðalaldur Á síðustu þremur árum hefur sala á nýjum bílum í V-Evrópu auk-ist að meðaltali um 6% á ári, sem er um tvöfalt heimsmeðaltal yfir sama tímabil.1 Á Íslandi hefur aukn- ingin hins vegar verið 36,6%. Fjölgun ferðamanna hefur haft sitt að segja um söluaukninguna, en aðrir þættir hafa þar einnig komið til. Þróunin fram á veginn er áhugaverð, þar sem glittir í ný viðmið varðandi umhverfisáhrif, útbún- að og þjónustunet bifreiða. Bílaflotinn Mikil aukning var í sölu fólksbíla á árunum fyrir hrun, þegar krónan var sterk, atvinnustig hátt og aðgengi að lánsfjármagni var með besta móti, en hámarkinu var náð árið 2005 þegar 18.058 nýir bílar voru skráðir. Með þessari miklu aukningu tókst að slá nokkuð á meðal aldur fólksbílaflotans eins og sést á mynd 1. Frá þessum tíma hefur öldrun flotans verið hröð; færri eldri bílar hafa verið afskráðir en nýrri keyptir. Á þessu hefur nú orðið viðsnúningur og árið 2016 var metár í skráningum nýrra fólksbíla, en þá seldust 18.442 bílar. Nú er gert ráð fyrir að meðalaldur standi í liðlega tólf árum. Ef aldur flotans er borinn saman við nýjustu upplýsingar frá Samtökum bílaiðnaðarins í Evrópu (ACEA) sést að meðalaldur á Íslandi er með hærra móti. Að meðaltali voru fólksbílar í Evrópu- sambandinu 9,6 ára gamlir árið 2014, eða um þremur árum yngri en þeir ís- lensku. Hlutur ferðaþjónustu Fjölgun ferðamanna hefur verið mæld í tugum prósenta frá árinu 2011; á milli 2015 og 2016 fjölgaði ferðamönnum um u.þ.b. 500 þúsund og var heildar- fjöldinn árið 2016 nálægt 1.800 þús- undum. Til viðmiðunar má nefna að á árunum 2005-2011 var fjöldinn að jafnaði 400 – 600 þúsund á ári. Aukn- ing síðasta árs jafngildir því heilum árgangi túrista á landinu áður. Bílaleigur hafa aukið umsvif sín sam- hliða þessari þróun og síðasta sumar voru um 150 bílaleigur starfandi á landinu, sem leigðu út 22 þúsund bíla á háönn yfir sumartímann, sem er umtalsverð breyting frá árinu 2005 þegar fjöldi bíla var nær 4.000. Aukin eftirspurn hefur gert bílaleig- urnar að umsvifamiklum markaðsaðila í kaupum og sölum bíla. Má ætla að bíla- leigubílar hafi í ár náð að verða á bilinu 8-10% af heildarfólksbílaflotanum, en sama hlutfall var nær 2,5% árið 2006. Síðustu þrjú ár hefur hlutfall bílaleiga í kaupum á nýjum bílum numið um helmingi, t.a.m. voru þeir 48% þeirra 18.442 bíla sem keyptir voru nýir árið 2016, eða 8.846. Hlutur heimila Kaup heimila á nýjum bílum hafa einnig aukist, þó að þau hafi ekki náð sömu hæðunum og árið 2005; kaup- hegðunin er líkari því sem var árin 2004 eða 2008. Ef leiðrétt er fyrir hlut bílaleiga í fólksbílaflotanum er fjöldi íbúa á hvern fólksbíl svipaður stöðunni árið 2006, eða í kringum 1,56 miðað við lágpunktinn1,52 árið 2007. 2 Valkostur gagvart „nýja bílnum“ Ef gert er ráð fyrir að bílaleigur losi um 30% flota síns við lok háannar að hausti munu um 6-7 þúsund nýlegir bílar hafa Markaður fyrir fólksbíla á uppleið Heimild: Samgöngustofa. Heimild: Samtök bílaiðnaðarins í Evrópu (ACEA), 2014. Mynd 2. Meðalaldur fólksbíla á Íslandi og í samanburðarlöndum árið 2014

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.