Vísbending


Vísbending - 24.01.2017, Blaðsíða 2

Vísbending - 24.01.2017, Blaðsíða 2
2 V Í S B E N D I N G • 3 . T B L . 2 0 1 7 farið á markað frá þeim árið 2016. Bíla- leigubílar eru alla jafnan meira keyrðir en aðrir bílar á sama aldri, sem lækk- ar verð þeirra í endursölu. Þrýstingur á endursöluverð hefur auk þess ekki verið eins mikill hjá bílaleigum og hjá öðrum seljendum, þar sem leigurnar hafa verið undanþegnar greiðslu vöru- gjalda, undanþága sem þó stendur til að afnema að fullu á árinu 2017. Með þessu hefur skapast valkostur gagnvart nýja bílnum sem ekki var fyrir hendi áður en ferðamannabylgjan kom til; að eignast nýlegan bíl á góðu verði. Aðrir hvatar til bílakaupa Neysla heimila og kaupmáttur hef- ur aukist samfara aðgerðum til lækk- unar skulda, minnkandi atvinnuleysi og miklum launahækkunum. Í tilviki bílafjárfestinga hafa aðrir þættir einnig hvatað þær sérstaklega. Styrking krónu hefur lækkað innkaupaverð bíla sem hefur að einhverju leyti skilað sér til neytenda. Í nýlegri úttekt Morgun- blaðsins greindu starfsmenn tveggja stórra bílaumboða frá því að listaverð hafi lækkað á bilinu 8-16% á árinu 2016, en efri mörk lækkana ríma nokkurn veginn við lækkun á vísitölu meðalgengis með þröngri viðskiptavog, skv. Seðlabankanum, sem reyndist rúm- lega 17%.3 Bílaframleiðendur hafa í nærtíma notið skaplegra hráefnaverðs sem hefur lækkað hvata þeirra til að hækka verð til bílaumboða. Í tengsl- um við rekstrarkostnað bílanna hefur lágt olíuverð ekki verið til að slá á þrá landans í að þeysast um á nýjum bíl, þó auðvitað sé sparneytni nýrra bíla sem og lægri viðhaldsþörf alltaf hluti aðdrátt- araflsins. Sökum verðlækkana nýrra bíla, sem og flæðis nýlegra, ódýrra bíla frá bíla- leigum, hefur hinum almenna seljanda verið gert erfitt fyrir að selja sinn nýlega notaða bíl á ásættanlegu verði og hafa margir vafalaust þurft að afskrifa kaup- verð bíla sinna hraðar en þeir hugðu við kaup. Kröfur til bifreiða að breytast Viðbúið er að kostnaður við framleiðslu bíla, og þar með kaupverð þeirra til notenda, muni leita upp á við næstu ár og áratugi. Mikil gerjun á sér stað í geiranum með aukinni tæknivæð- ingu bifreiða og virðast fyrirtæki sem hingað til hafa einbeitt sér að tölvubún- aði, eins og Apple og Google, stefna á landvinninga. Kröfur um nettengingu ökutækja auk sjálf- og gagnvirkni verða þess valdandi að kostnaður við fram- leiðsluna hækkar, svo ekki sé talað um að eðli viðhalds og varahluta mun taka stakkaskiptum sem kostnaðarsamt gæti reynst að umbylta. Umhverfissjónarmið hafa auk þess þrýst á um þróun og hag- nýtingu sífellt flóknari tæknilausna við framleiðsluna. Stjórnvöld víðs vegar hafa þegar sett sér markmið varðandi orkunotkun bílaflota sinna þjóða. Stjórn Baracks Obama setti fram viðmið þar sem stefnt var að því að lækka meðaleldsneytis- notkun nýrra bíla niður fyrir 4,3 L/100 km (54,4 mílur/gallon) fyrir árið 2025. Þó verður að setja spurningarmerki við það, hvort þessi viðmið verði höfð í heiðri í stjórnartíð nýkjörins forseta, en bílaframleiðendur vestra hafa kvart- að sáran undan pressunni og beitt fyr- ir sig stöðugri ásókn þarlendra í stærri jeppa og pallbíla, sem ávallt munu toga meðal talið upp á við. Lausnin gæti falist í aukinni rafbílavæðingu, sér í lagi í til- viki léttari og smærri bíla sem ætlaðir eru til styttri vegalengda innanbæjar. Frændur okkar Norðmenn hafa gengið öðrum þjóðum lengra í rafbílavæðingu. Þeirra markmið fyrir árið 2025 er metnaðarfyllra en Banda- ríkjamanna, þar sem þeir stefna á að þá verði allir nýir bílar knúnir án jarð- efnaeldsneytis. Til að viðmið markaðar- ins þokist í þessa átt hafa Norðmenn veitt nokkuð víðtækar ívilnanir, s.s. er undanþágu frá greiðslu 25% virð- isaukaskatts af nýjum bílum sem hafa tengimöguleika við rafmagn (e. plug-ins). Voru um 29% allra nýrra bíla sem seldir voru í Noregi árið 2016 með því móti, þar af voru um 15,7% að fullu rafknúnir. Einhverjir hafa séð ofsjónum yfir þeim tekjum sem norska ríkið hefur orðið af með fyrrgreindum aðgerðum, t.a.m. hafa dýrari lúxusrafbílar eins og Tesla átt stærri hluta markaðarins en þekkist annars staðar. Af því hefur verið ályktað að stjórnvöld séu að niðurgreiða lúxus og einkabílavæðingu í stað þess að draga úr álagi á vegi; að umhverfis- áhrifin séu of dýru verði keypt. Að sinni hefur þó langtímasýn í málaflokknum fengið að njóta vafans. Framtak Norðmanna er eftirtektar- vert, sér í lagi þar sem þeir eru sjálfir stórframleiðendur olíu. Samtímis eru þeir einnig umsvifamiklir í fram- leiðslu raforku úr endurnýjanlegum orku gjöfum, þar sem vatnsafl skipar langstærstan sess. Með aukinni notkun rafmagns á vegunum geta Norðmenn þannig frekar notað olíuframleiðslu sína til sköpunar gjaldeyristekna. Staða Íslands gagnvart rafbílavæðingu Þó Ísland framleiði raforku með svip- uðum hætti og Norðmenn, og stjórn- völd hafi fellt niður ýmis konar gjöld af umhverfisvænni bifreiðum, er markaðs- hlutdeild rafbíla ekki eins öflug, t.a.m. voru rafbílar einungis 1,13% seldra bíla árið 2016, en bílar sem höfðu möguleika á rafmagnsvirkni auk olíu framh. af bls. 1 Mynd 3. Stærð og aldursdreifing fólksbíla- flotans (þús. bíla) Heimild: Árbók bílgreina 2014 – Hagtölur um íslenskar bílgreinar. framh. á bls. 4

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.