Vísbending


Vísbending - 03.07.2020, Page 3

Vísbending - 03.07.2020, Page 3
V Í S B E N D I N G • 2 6 . T B L . 2 0 2 0 3 framh. á bls. 4 Hallarekstur, skuldir og ný peningahagfræði 1 Í þessari grein verður fjallað vítt um þessa nýju sýn. Hugmyndin er fengin að miklu leyti úr nýrri bók Stephanie Kelton (prófessor við Stony Brook háskóla og fyrrum aðalhagfræðingur fjárlaganefndar bandarísku öldungardeildarinnar), The deficit myth. Grein Ólafs Margeirssonar í SÍBS blaðinu í júní 2020 er einnig höfð hér til hliðsjónar. 2 Viðtal við Ben Bernanke í 60 minutes 3 Fundur fjárlaganefndar fulltrúardeildar Bandaríkjaþings (https://www.youtube.com/watch?v=DNCZHAQnfGU) 4 Dæmi miðað við lokað hagkerfi. Hið sama á við í opnu hagkerfi. 5 Athugið að hér er átt við um skuldir ríkisins í íslenskum krónum. 6 Reinhart, C. M. and Rogoff, K. S. (2010b). Growth in a Time of Debt. Working Paper 15639, National Bureau of Economic Research, http://www.nber.org/ papers/w15639. 7 Thomas Herndon & Michael Ash & Robert Pollin, 2014. „Does high public debt consistently stifle economic growth? A critique of Reinhart and Rogoff,“ Cambridge Journal of Economics, Oxford University Press, vol. 38(2), pages 257-279. Nú sigla fjölmörg hagkerfi inn í djúpa kreppu af völdum kórónuveirunnar. Ríkisstjórnir landa hafa kynnt björg- unarpakka til að styðja við heimili og fyrirtæki. Með þeim er reynt að koma í veg fyrir að niður- sveiflan verði of djúp og/eða of langvarandi. Flestir hagfræðingar virðast sammála um að ríkið styðji við heimili og fyrirtæki þó ekki hafi náðst full sátt um útfærslu stuðningsins. Nú þegar atvinnuleysi er í hæstu hæðum á Íslandi, og á mögulega eftir að aukast með haustinu, er strax farið að tala um hvernig snúa eigi við hallarekstri ríkissjóðs og draga úr skulda- söfnun. Í því samhengi er talað um að halli á rekstri ríkissjóðs ryðji úr vegi einkafjárfestingu ásamt því að skuldir ríkisins hafi neikvæð áhrif á hagvöxt. Hagfræðingar leggja því margir til að ríkissjóður skili afgangi, annað hvort með því að draga úr útgjöldum, hækka skatta eða sambland af þessu tvennu, og eru þannig að vísa í að ríkis- sjóður skuli rekinn líkt og heimili eða fyrirtæki. Það er einn stór munur á heimilum og fyr- irtækjum annars vegar og ríkissjóði hins vegar. Ríkissjóður Íslands er útgefandi gjaldmiðils á meðan heimili og fyrirtæki eru notendur gjaldmiðilsins. Sem útgefandi gjaldmiðils eru ríkissjóði í raun engin fjárhagsleg takmörk sett hvað varðar aukningu ríkisútgjalda þótt tak- mörk þegar kemur að aðföngum, t.d. vinnuafli og hrávörum, séu vitanlega til staðar. Nútíma peningahagfræði Nútíma peningahagfræði (e. modern monetary theory), hér eftir MMT, breytir því hvernig við hugsum almennt um hallarekstur ríkisins. Í stað þess að tala um að ná jafnvægi í ríkisfjármálum ættum við að beina spjótum okkur að því að ná jafnvægi í hagkerfinu. Í því felst að útgjöld ríkisins geti verið hver sem er svo lengi sem þau leiði ekki af sér verðbólgu1. Hið hefðbundna viðhorf í hagfræði er að skattgreiðendur séu ávallt þeir sem endi á því að greiða fyrir útgjöld ríkisins. MMT bendir á að það er í raun útgefandi gjaldmiðilsins, ríkis- sjóður sjálfur, sem fjármagnar allan reksturinn, ekki skattgreiðendur. Skattar eru mikilvægir, bara ekki til að fjármagna útgjöld ríkisins. Þegar fyrrum bankastjóri Seðlabanka Banda- ríkjanna, Ben Bernanke, var spurður hvort skattgreiðendur hefðu greitt fyrir björgun á bandarískum bönkum eftir hrunið 2008 svaraði hann því til að svo væri ekki. Hann benti á að bankarnir væru með reikning hjá Seðlabank- anum og að Seðlabankinn hefði „notað tölvuna til að auka innstæðuna á þeim reikningum“2. Annar fyrrum Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Alan Greenspan, svaraði spurningu um greiðslu- getu almannatryggingakerfisins þar í landi á þann veg að „ekkert stæði í vegi fyrir því að ríkið myndi búa til eins mikið af peningum og það vildi. Spurningin væri hvernig við búum til kerfi sem tryggir að framleiddar séu þær vörur og þjónusta sem bæturnar [úr almannatrygginga- kerfinu] eru notað til að kaupa á þeim tíma sem þær eru greiddar út“3. Þarna vitnar Greenspan í þá staðreynd að það eru engin takmörk á útgjöldum rík- isins. Það þarf ekki að skattleggja eða taka lán fyrir útgjöldunum. Það er því ekki upphæð útgjaldanna sem slík sem skiptir máli heldur hvort náist jafnvægi í hagkerfinu, þ.e. fullt atvinnustig og stöðugt verðlag. Ruðningsáhrif útgjalda ríkisins Hagfræðingar telja margir hallarekstur ríkisins af hinu slæma og benda m.a. á ruðningsáhrif því til stuðnings. Skilgreiningin á ruðnings- áhrifum er þegar útgjöld ríkisins eru umfram tekjur sem leiðir til þess að ríkið þarf í kjölfarið að fjármagna hallann með lántökum. Með lán- tökunum er gengið á framboð lánsfjár (sparnað einkaaðila) sem á að leiða til hærri vaxta og minni fjárfestinga einkageirans. Þessu er í raun öfugt farið líkt og eftirfarandi dæmi sýnir4. Ef útgjöld ríkisins eru 1.000 og skatttekjur 800 er halli á rekstri upp á 200. Flestir hagfræðingar stoppa hér þó aðeins hálf sagan sé sögð. Halli ríkisins er afgangur einkageirans líkt og einfaldar bókhaldsreglur, debit og kredit, benda okkur á. Eins og MMT sýnir fram á eykst sparnaður einkageirans með viðvarandi halla á rekstri ríkis- sjóðs, öfugt við það sem almennt er haldið fram. Það er því afgangur á rekstri ríkissjóðs sem étur upp sparnaðinn, ekki hallarekstur. Athugið að afgangur eða jafnvægi í ríkis- rekstri geta einnig haft jákvæð áhrif. Þetta snýst um að ná jafnvægi í hagkerfinu. Ef jafnvægi í ríkisrekstri hefur jákvæð áhrif á hagkerfið, þ.e. fullt atvinnustig og stöðugt verðlag, er í raun engin ástæða til að kalla eftir afgangi eða hallarekstri. Aðalatriðið er að koma í veg fyrir að afgangurinn eða hallinn verði of mikill, einmitt vegna þess að afgangur á rekstri ríkissjóðs er halli (lægri fjárhagslegar eignir) á rekstri einkageirans og halli á rekstri ríkissjóðs er afgangur (auknar fjárhagslegar eignir) einkageirans. Skuldir ríkisins, hagvöxtur og byrði á komandi kynslóðir Þegar ríkið er rekið með halla er honum alla jafna mætt með útgáfu skuldabréfs sem eykur við skuldir ríkissjóðs. Þó þetta hljómi sem rétta leiðin er í raun óþarfi að gefa út skuldabréfið. Ef ríkið er með halla upp á 200 og gefur ekki út skuldabréf heldur einkageirinn eftir 200, t.d. í formi innstæðna. Ef gefið er út skulda- bréf upp á 200 heldur einkageirinn eftir 200 í formi skuldabréfs sem hann kaupir með téðum innstæðum. Halli ríkissjóðs leiðir því alltaf til aukningar á hreinum fjáreignum einkageirans og að tala um skuldir ríkisins er í raun rangnefni. Ríkissjóður Íslands gæti greitt upp allar sínar skuldir strax á morgun. Eigendur skuldabréf- anna myndu þá eiga innstæður (sem jafnan bera lægri vexti en skuldabréfin) í stað skuldabréfa5. Í ljósi þess hvað skuldir ríkisins eru í raun og veru, þ.e. peningaleg eign einkageirans, er í raun furðulegt að tala um neikvæð áhrif skulda ríkisins á hagvöxt, sérstaklega í löndum sem gefa út sinn eigin gjaldmiðil. Árið 2010 kom út rannsókn eftir Reinhart og Rogoff um að háar skuldir ríkisins héldust í hendur við lít- inn hagvöxt6, sérstaklega þegar skuldahlutfallið væri komið yfir 90%. Þremur árum síðar var birt rannsókn sem benti á alvarlega villur hjá Reinhart og Rogoff7. Eftir að leiðrétt var fyrir þeim villum kom í ljós að 90% þröskuldurinn hafði enga sérstaka þýðingu. Viðar Ingason hagfræðingur VR

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.