Vísbending


Vísbending - 03.07.2020, Síða 4

Vísbending - 03.07.2020, Síða 4
Ritstjóri: Jónas Atli Gunnarsson Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf., Fiskislóð 31 B, 101 Reykjavík Sími: 551 0708 Net fang: visbending@kjarninn.is Prentun: Kjarninn Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. Aðrir sálmar 4 V Í S B E N D I N G • 2 6 . T B L . 2 0 2 0 framh. af bls. 2 framh. af bls. 3 Illa farið með erlent vinnuafl Mikið hefur verið talað um aðstæður erlendra verkamanna hér á landi í kjölfar hræðilegra frétta í síðustu viku af mannskæðum bruna í húsi við Bræðra- borgarstíg þar sem tugir þeirra áttu lögheimili. Húsið, sem var nálægt því að vera í niðurníðslu, er eitt dæmi af fjölmörgum sem sýnir hversu lítið eftirlit hefur verið með öryggi og réttindum erlends vinnuafls á síðustu árum, en áður hafa borist fréttir um bág kjör þess í bæði ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Sú meðferð sem erlendir verkamenn hafa hlotið á Íslandi er í miklu ósamræmi við framlag þeirra til samfélagsins, en þeir áttu meginþátt í að skapa þann hagvöxt sem landið hefur búið við á síðustu árum. Að smásölu- og heildverslun undanskil- inni hefur tekjuaukning frá árinu 2009 verið mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en hlutfall erlendra starfsmanna í báðum greinunum hefur meira en tvöfaldast á sama tíma. Í fyrra voru svo 30% starfsmanna í byggingariðnaði og nær 40% starfsmanna í ferðaþjónustu með erlendan bakgrunn. Nú blasa hins vegar við tímabundnir erfiðleikar í báðum þessum atvinnugreinum vegna kórónuveirunnar, sem hefur leitt til minni íbúðafjárfestingar og hruns í komu erlendra ferðamanna til landsins. Í þessu umhverfi er hætta á að erlendir verkamenn ákveði að flytja frá Íslandi með jafnskjótum hætti og þeir komu ef þeir telja starfsöryggi sitt vera í hættu. Ef það gerist gæti orðið erfitt að finna vinnuafl í báðum greinum þegar eftirspurn kemst á fullt skrið aftur og tæki þá lengri tíma að vinna úr yfirstandandi niðursveiflu. Ein leið til að koma í veg fyrir að erlent vinnuafl hverfi af landinu í stórum stíl á næstu mánuðum væri með því að tryggja kjör þess og sjá til þess að það nyti sömu réttinda og aðrir hér á landi. Þannig yrði léttara að manna allar stöður þegar vinnu- aflsþörfin eykst aftur. Miðað við slæma frammistöðu okkar í að standa vörð um kjör erlendra starfs- manna á síðustu árum er þó ólíklegt að það gerist, sennilegra er að við munum gjalda okkar eigin sinnuleysis gagnvart þeim í náinni framtíð. kaupmáttaraukningar en miðgildi húsnæð- iskostnaðar (mynd 3.B) hefur þó ekki lækkað mjög mikið. Það að heimilin hafi færri möguleika hvað húsnæði varðar gæt ýtt undir þörfina á að breyta löggjöfinni. Það að hafa möguleikann á að flytja er mikilvægur þáttur varðandi samningsstöðu leigjanda og leigusala. Hlutverk löggjafar er að jafna þá stöðu. Sjöunda vísbending: Samkvæmt lífskjara- rannsókn Hagstofunnar hefur hlutfall mis- munandi heimilisgerða á leigumarkaði breyst talsvert mikið, einkum í tilfelli einstæðra foreldra og hækkaði hlutfall þeirrar heimilisgerðar sem býr á leigumarkaði miðað við í eigin húsnæði úr 32% að meðaltali á árunum 2004-2008 í 50% að meðaltali á árunum 2012-2016. Töluverður munur er einnig á milli kynja en hlutfall einstæðra karlmanna sem er á leigu- markaði jókst úr 35% í 50% yfir sama tímabil en hlutfall einstæðra kvenna breyttist lítið og var um 30% árin 2012-2016 miðað við 26% fyrir hrun. Það hefur einnig orðið mikil fjölgun á láglaunafólki á leigumarkaði. Til að mynda jókst fjöldi fólks á leigumarkaði í neðsta fimmtungi tekjudreifingarinnar um 98%, þ.e. hlutfallið fór úr 9,6% árið 2004 í 19% árið 2016. Löggjöfin á Íslandi og Norðurlöndunum Í rannsókn okkar er nánar farið í löggjöfina á Íslandi og hún borin saman við löggjöfina á hinum Norðurlöndunum. Meðal samanburðar- landanna er Svíþjóð með sterkustu löggjöfina fyrir leigjendur. Þar er leiguverð ákvarðað út frá svokölluðu notagildi sem tekur mið af leigu sambærilegra íbúða. Þetta er svipað í grunninn og í Noregi og Finnlandi þar sem leiga á að vera svipuð og fyrir aðrar íbúðir en sænska kerfið er þó örlítið frábrugðið og hefur leitt til þess að leiga er langt undir jafnvægisverði þar í landi, einkum í stærri borgum. Svíþjóð glímir við mestu vandamálin í tengslum við afleiðingu af því sem búast má við af slíkri löggjöf, t.a.m. eru biðlistar eftir leiguíbúðum þar mjög langir. Hins vegar virðist vera þróun í átt að einhverjum tilslökunum, a.m.k. hvað varðar breytingar á leigu milli samninga en of snemmt er að segja til um þá þróun og hvaða áhrif hún kann að hafa. Í Danmörku eru svipuð réttindi hvað varðar húsnæðisöryggi og í Svíþjóð en ekki er tilgreint til hversu langs tíma leigjandi leigir íbúðina og leigusali getur lent í talsverðum vandræðum með að segja upp samningi. Í Danmörku, Finn- landi og Noregi er leyfilegt að láta leiguverð fylgja vísitölu. Í Danmörku er það hins vegar einungis leyfilegt fyrir hluta markaðarins. Til að bera saman löggjöf Norðurlandanna er einblínt á þrjá flokka: hækkun á leigu á samningstíma, hækkun á leigu á milli samn- inga og húsnæðisöryggi leigjanda. Í saman- burði við önnur Norðurlönd hefur Ísland líklegast veikustu löggjöfina hvað varðar þessar þrjár víddir í samanburði við hin Norður- löndin en hún er nokkuð svipuð löggjöfinni í Noregi. Með þeim breytingum sem hafa verið kynntar á húsaleigulögum í ár gæti hins vegar löggjöfin færst meira í áttina að hinum Norðurlöndunum. Þrátt fyrir mögulegt tilefni til breytingar á löggjöfinni er slíkt vandmeðfarið og nauðsyn- legt er að læra af reynslu annarra landa í þeim efnum. Almennt er það samdóma álit hagfræðinga að aukið framboð leysir fleiri vandamál á leigumarkaði í stað hertra reglna. Of harðar reglur geta dregið úr framboði. Með auknu framboði jafnast samningsstaða milli leigjanda og leigusala og heldur aftur af hækkun leigu. Hins vegar er ekki ávallt hægt að tryggja nægilegt framboð og nauðsynlegt að ákveðin réttindi séu tryggð og jafnvægi á samningsstöðu ríki milli beggja aðila. Tafla 1 Samanburður á leigulöggjöf á Norðurlöndunum Heimild: Helgason og Kopsch (2020) Land Á samningstíma Milli samninga Húsnæðisöryggi Ísland (núv.) Veik Veik Veik/Miðlungs Ísland (frumv..) Veik/Miðlungs Veik/Miðlungs Miðlungs Danmörk Miðlungs/Sterk Veik/Sterk Sterk Finnland Miðlungs Veik Miðlungs Noregur Veik/Miðlungs Veik Veik Svíþjóð Sterk Sterk Sterk Skuldir ríkisins geta því ekki verið byrði á komandi kynslóðir. Gott dæmi um þetta er árin eftir seinni heimsstyrjöldina. Á þeim tíma voru skuldir bandaríska ríkisins 120% af landsfram- leiðslu. Þetta var á þeim tíma þegar millistéttin varð til, tekjur heimila, leiðréttar fyrir verðbólgu, hækkuðu mikið næstu áratugi og næsta kynslóð naut mun betri lífskjara án meiri íþyngjandi skattbyrði en kynslóðin á undan. Næstu 1-2 árin geta verið erfið fyrir íslenskt efnahagslíf. Atvinnuleysi gæti haldist hátt og fjárfesting einkageirans lág. Á þeim tíma er ekki skynsamlegt að tala um afgang í ríkisrekstri.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.