Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 6

Morgunblaðið - 29.01.2020, Page 6
 Landspítalinn leggur línur vegna kórónafaraldursins  Fundað með farsóttanefnd  Hugað að leiðum að bráðamóttöku  Engar aðgerðir tryggja að veiran berist ekki hingað, segja almannavarnir Undirbúa að taka á móti smituðum Helgi Bjarnason Sigurður Bogi Sævarsson Viðbrögð við kórónafaraldrinum hafa verið rædd og undirbúin á Landspítalanum síðustu daga. Framkvæmdastjórn sjúkrahússins hefur fundað um málið með far- sóttanefnd spítalans. Allt er unnið í nánu samstarfi við sóttvarnalækni. „Á óvissustigi fundar fulltrúi frá sjúkrahúsinu daglega með al- mannavörnum,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður for- stjóra Landspítalans. „Við undirbú- um þann möguleika – sem er auð- vitað líklegur – að taka á móti smituðum. Við hugum sérstaklega að leiðum að bráðamóttökunni, flutningsleiðum innan spítalans, stöðu gjörgæsludeilda okkar og annars viðbúnaðar, svo sem hlífðar- búnaðar, lyfja, vökva og þess hátt- ar.“ Ferðist ekki til Kína Sóttvarnalæknir mælir með því að ferðamenn sleppi ónauðsynleg- um ferðalögum til svæða þar sem kórónaveiran er faraldur. Það á við um Kína, helst Hubei-hérað, en veiran hefur borist þaðan til ann- arra svæða í Kína og fleiri landa, ekki síst nágrannalanda Kína. Ekki er þó vitað til að faraldur hafi brot- ist út annars staðar en í Kína. Kemur þetta fram á vefsíðu land- læknis. Sóttvarnalæknir hvetur Ís- lendinga á ferðalögum erlendis, sérstaklega þá sem eru í Kína og annars staðar þar sem sýkingar af völdum veirunnar hafa verið stað- festar, til að fylgjast vel með ferða- takmörkunum sem Kínverjar hafa gert innanlands og laga ferðaáætl- anir að þeim eins og þurfa þykir. Ferðafólk upplýst „Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir því að veiran muni berast hingað til lands og því er mikilvægt að grípa til ráðstafana til að hefta útbreiðslu hennar sem mest hér á landi. Eng- ar aðgerðir munu hins vegar tryggja að veiran berist ekki hing- að til lands,“ segir í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra sendi frá sér í gær. Upplýsingum um smitgát vegna kórónaveirunnar hefur verið dreift á ensku og íslensku til ferðamanna sem leið eiga um Keflavíkurflugvöll og aðra alþjóðaflugvelli hérlendis. Kínversk útgáfa er í vinnslu. Undirbúningur er hafinn að dreif- ingu SMS-skilaboða á íslensku, ensku og kínversku til ferðamanna með upplýsingum um hvert fólk geti leitað. Þá kemur fram að fyrir- hugað er að funda í dag með starfs- fólki Keflavíkurflugvallar og koma upplýsingum til starfsfólks annarra flugvalla. Ekki með kórónaveiruna Staðfest hefur verið að tveir Ís- lendingar sem lagðir voru inn á sjúkrahús á Spáni vegna gruns um smit af kórónaveiru hafa ekki smit- ast af umræddri veiru. Það stað- festi utanríkisráðuneytið við mbl.is í gær. Fólkið hafði verið í Wuhan í Kína áður en það kom til Spánar. Utanríkisþjónustan bendir Íslend- ingum í Kína á að láta yfirvöld hér vita um ferðir sínar. Tilgangurinn er að hægt sé að aðvara fólk þegar ástandið breytist. Utanríkisþjón- ustan hefur ekki gripið til sér- stakra ráðstafana vegna sendiráðs- starfsmanna eða íslenskra ríkisborgara í Kína. Hóstað Hnerrað Innan við 1 metra Smitleiðir nýju kórónaveirunnar milli manna Heimildir: Franska heilbrigðisráðuneytið CDC með hlutum (veiran lifir ekki lengur en í þrjár stundir í þurru lofti) með vatni við kynmök Rannsóknir eru nú gerðar til að auka skilning á smiti milli manna Veikur ein- staklingurVeikur Heilbrigður • Deila sömu híbýlum • Óstaðfestar smitleiðir • Bein snerting við smitaðan einstakling Varúðarráðstafanir (sömu og gagnvart inflúensu) Hósta í oln- bogabót Sýktir einstaklingar ættu að bera öndunargrímu (ekki sannað að það komi í veg fyrir smit) Nota einnota þurrkur Þvo hendur reglulega AFP Taíland Fólk notar andlitsgrímur sem aldrei fyrr á lestarstöðvum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2020 Sími 552 2018 info@tasport.is Sjá allar okkar ferðir ogmeiri upplýsingar á 1.-5. október tasport.is Elton John í Barcelona Innifalið: Flug, skattar og gjöld. 20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur. Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat í 4 nætur.Miði á Elton John tónleikana 2. október. Rúta á tónleikana og til baka. Rúta til og frá flugvelli í Barcelona. Íslensk fararstjórn. Frekari upplýsingar í síma 552 2018 eða info@tasport.is Verð frá 156.800 Elton John er þessa stundina á ferð og flugi út um allan heimmeð Farewell YellowBrick Road tourinn. Þetta er síðasta tónleikaferðalagið hjá Elton ogmá búast við að nú verði öllu tjaldað til. Hann verðu í Palau Sant Jordi tónleikahöllinni í Barcelona. r Örfá sæti laus „Ríkisútvarpið er kjölfesta í þjóðlífi og ég hlakka til starfa þar. Verkefnin eru líka spennandi og aldrei hafa ver- ið til staðar fleiri dreifileiðir til að koma í loftið því frábæra efni sem RÚV framleiðir,“ segir Stefán Eiríks- son borgarritari, sem í gær var ráðinn útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins. Við starfinu tekur hann 1. mars næstkom- andi. Í íþróttafréttum á Morgunblaðinu Stjórn Ríkisútvarpsins var sam- hljóða um að velja Stefán í útvarps- stjórastarfið. Hann er lögfræðingur að mennt og var 2006 til 2014 lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Á háskólaárum sínum var hann svo í blaðamennsku, fyrst á Tímanum á ár- unum 1990 til 1991 og svo í íþrótta- fréttum á Morgunblaðinu um fimm ára skeið eftir það. Starfaði í stjórnar- ráðinu eftir laganám og eftir árin í lögreglunni gerðist Stefán fram- kvæmdastjóri velferðarsviðs Reykja- víkurborgar. Embætti borgarritara hefur hann gengt frá 2016. „Auðvitað bý ég frá gamalli tíð að reynslu úr blaðamennskunni. Fjöl- miðlun hefur hins vegar breyst mikið á síðustu árum með nýrri tækni. Sjálf- ur kem ég þó einkum að nýju starfi með reynslu af stjórnun og stefnu- mótun, eins og stjórn RÚV lagði áherslu á að nýr útvarpsstjóri hefði,“ segir nýi útvarpsstjórinn. Aðspurður segist Stefán hlusta mikið á Rás 1 og hafa sérstaka ánægju af tónlistarþætti Kristjáns Kristjánssonar Á reki. Þætti Unu Margrétar Jónsdóttur Ljóðabókin syngur reyni hann sömuleiðis alltaf að ná. „Svo þarf ekki að koma á óvart að ég hef sem fyrrverandi lögreglustjóri gaman af sakamálaþáttum eins og Ófærð og Brot sem er gæðaefni, eins og auðvitað flest í dagskrá RÚV,“ segir Stefán. sbs@mbl.is Hlustar á KK í útvarpi og horfir á sakamálaþættina  Stefán Eiríksson verður næsti útvarpsstjóri RÚV Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útvarpsstjóri Fjölmiðlun hefur breyst, segir Stefán Eiríksson. Guðmundur Gunnarsson, sem í vik- unni hætti störfum sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjarri að hann verði á fullum launum frá bænum út kjörtímabilið. Hann hefur komist að samkomulagi við bæjar- stjórn um starfslok sín og bíður samningur þar að lútandi nú sam- þykktar bæjarstjórnar. Oft hafa bæjarstjórar verið á fullum launum út kjörtímabil þó að þeir láti af störfum fyrr og hefur það ósjaldan verið gagnrýnt. Fátt hefur verið staðfest um til- drög þess að Guðmundur lét af störfum, utan hvað bæjarstjórn og bæjarstjóri hefðu haft ólíka sýn á tiltekin en ótilgreind mál. Sjálfur vildi Guðmundur í samtali við mbl.is í gær ekki tiltaka hver ástæða brott- hvarfs síns væri nema hvað eðlilegt væri þegar slíkt gerðist „að fólk hafi meiningar og skoðanir“. Ekki á launum út kjörtímabilið  Guðmundur útskýrir ekki starfslokin Guðmundur Gunnarsson Þórdís Sif Sigurðardóttir Guðmundur hefur verið áberandi eftir snjóflóðin sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði. Hann var ráðinn bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ haustið 2018. Þórdísi Sif Sigurðardóttur, bæjarritara í Ísafjarðarbæ, hefur verið falið að gegna embætti bæjar- stjóra þar til ákveðið verður hvernig ráðningu nýs bæjarstjóra verður háttað. sbs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.