Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.02.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 ✝ Margrét Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 3. apríl 1949. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 24. janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Jón Krist- inn Ágústsson prentari, f. 9.9. 1917, d. 1.3. 1993 og Halldóra Ólöf Guðmundsdóttir, f. 21.9. 1914, d. 17.6. 1989. Bræður Mar- grétar voru Sigurður Grétar, f. 5.1. 1939, d. 20.12. 2014, Þórir Ágúst, f. 18.10. 1944, d. 6.11. 1944 og Þórir Ágúst, f. 25.12. 1946, d. 13.8. 2008. Hinn 6.11. 1973 giftist Mar- grét eftirlifandi eiginmanni sín- f. 2002. 2) Jón Arnar rafvirki, f. 22.5. 1972. Barn hans með Les- lie Thomas er Alexandra Vikt- oria, f. 2000. 3) Þórhallur Hjálmar hótelstjóri, f. 28.6. 1979. Börn hans með Hildi- gunni Jónasdóttur eru Jónas Thor, f. 2009 og Hrafnhildur Thalía, f. 2011. Langömmu- börnin eru 4. Margrét var fædd og uppalin í Reykjavík. Hún stundaði nám við barnaskóla Austurbæjar og lauk gagnfræðaprófi frá Lind- argötuskóla. Á yngri árum starfaði Margrét með móður sinni í prentsmiðju. Eftir það starfaði hún sem ritari og bók- ari á lögmannsstofum. Síðustu 17 ár starfsferilsins starfaði hún á lögmannsstofu Legalis/ Juris Borgartúni. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 5. febrúar 2020, klukkan 13. Meira: mbl.is/andlat um, Friðjóni Al- freðssyni. Foreldr- ar hans voru Alfreð Friðgeirs- son frá Húsavík, f. 14.7. 1908, d. 26.1. 1993 og Sólrún Jónasdóttir frá Sílalæk, f. 5.2. 1910, d. 11.10. 1986. Börn Margrétar og Friðjóns eru: 1) Halldóra Þórdís hjúkrunar- fræðingur, f. 7.1. 1967. Sam- býlismaður hennar er René Andersen. Börn Halldóru með Þórarni Þórhallssyni eru Mar- grét Rut, f. 1992, Kolbrún Huld, f. 1993, Friðjón Þór, f. 1995 og Ásdís Birna, f. 2002. Börn René eru Sarah, f. 1996 og Christian, Elsku hjartans amma mín, hetjan mín og besta vinkona er látin. Óhjákvæmilega stundin sem ég kveið svo fyrir er orðin að veruleika. Tómleikatilfinningin og söknuðurinn er mikill en minningarnar lifa og ylja. Ég var fyrsta barnabarnið hennar ömmu, ég fæddist á 43 ára afmælisdaginn hennar og var skírð í höfuðið á henni. Amma kallaði mig alltaf elsku bestu afmælisgjöfina sína sem mér þótti mjög vænt um. Við höfum alla tíð verið mjög nánar, amma var stór hluti af mér og mínu lífi. Hún studdi mig í einu og öllu og hafði óbilandi trú á mér sama hvað. Amma mín var fluggreind, góðhjörtuð og með frábæran húmor. Það var svo gaman að grínast í henni og hlæja með henni. Hún var ein- faldlega best. Afmælisdagurinn okkar ömmu var uppáhaldsdagur okk- ar beggja og reyndum við alltaf eftir fremsta megni að eyða honum saman sama hvort til þess þyrfti að rúnta alla leið til Hornafjarðar eða Víkur í Mýr- dal, þegar við fjölskyldan bjuggum þar, eða núna síðast að fljúga alla leið til Spánar til þess að koma ykkur afa á óvart í tilefni 70 ára afmælis ykkar. Þar áttum við yndislegar stund- ir saman sem ég mun aldrei gleyma. Það var svo gaman að geta komið ykkur svona skemmtilega á óvart, þú ljóm- aðir öll. Við áttum óteljandi góða tíma saman. Stelpuferðin okkar til Svíþjóðar og allar notalegu samverustundirnar í Hákoti sem einkenndust af góðum grillmat, spilum, spjalli, hlátri og gleði. Öll skiptin þar sem við mæltum okkur mót í hádeginu á annasömum vinnudögum til þess eins að ná smá tíma saman og allar dýrmætu kvöldstund- irnar sem við áttum saman. Það er svo stutt síðan ég eldaði fyrir okkur síðast, gisti hjá þér, við horfðum saman á mynd og spjölluðum fram á nótt um allt og ekkert. Það voru bestu kvöldin. Ég get ekki þakkað þér nægilega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og einnig fyrir son minn. Þú sást ekki sólina fyrir honum. Það var yndislegt að sjá fal- lega sambandið ykkar á milli blómstra og hversu mikið hann hélt upp á þig. Hann bað oft um að fá að fara í heimsókn til ykk- ar afa, fá að hringja í þig, kaupa blóm til að færa þér og það allt að eigin frumkvæði. Að fara með ykkur afa í Hákot eða í sveitina eins og hann kallaði það var toppurinn á tilverunni þar sem hann var dekraður í botn enda prinsinn þinn, það má allt hjá löngu eins og þú sagðir svo oft. Þið kvöddust alltaf með því að segja „love you“ hvort við annað og þú hafðir reglulega orð á því að þú elskaðir hann til tunglsins og aftur heim. Elsku yndislega amma mín, að kveðja þig er mér og okkur öllum í fjölskyldunni svo þung- bært. Ég vildi óska þess að við hefðum getað átt fleiri stundir saman en á sama tíma hugga ég mig við það að nú sértu ekki lengur þjáð. Baráttan sem þú háðir, naglinn sem þú varst. Þú ert og verður alltaf mín helsta fyrirmynd. Mikið verður afmælisdagur- inn okkar tómlegur án þín en ég skal sjá til þess að halda upp á hann fyrir okkur báðar og skála fyrir okkur í ísköldum mojito. Takk fyrir allt elsku besta amma, ég elska þig alltaf. Þín Margrét yngri. Nú er komið að kveðjustund, mín kæra. Ég minnist Möggu frænku minnar með þakklæti og hlýju. Magga var ein af þeim frænk- um sem mér þótti vænst um. Það var alltaf gott að koma til hennar og Friðjóns, hvort sem það var í borginni eða í sælu- reitinn Hákot. Ég hef átt marg- ar stundir með henni og fjöl- skyldunni frá því að ég man eftir mér. Magga var með stál- minni og hafði mikinn áhuga á mér og mínum, það var alltaf erfitt að kveðja og slíta sig frá henni. Síðustu stundirnar okkar saman eru dýrmætar, síðasta ár mótaðist af því að þú varst að gera allt í síðasta skipti. Að setjast upp í bílinn og fara til ykkar í bústaðinn var aldrei erfitt, þvílík sæla að hitta þig. Við sátum heilu dagana malandi og skoðuðum okkur um á netinu sem var eitt af þínum áhugamálum, að vita hvað allir voru að gera. Hvernig hafa strákarnir þínir það, Fanney? Ætla þeir ekkert að koma? Þeim þótti vænt þetta og voru duglegir að koma til þín. Ég sendi þér reglulega myndir af þeim og litlu stelpunum þeirra og þú varst glöð með það. Vinátta er mér ofarlega í huga þegar ég hugsa til þín, Magga. Þú varst ein besta og nánasta vinkona mömmu og vil ég þakka þér fyrir það, hennar missir er mikill eins og okkar allra. Þinn tími var kominn og núna ertu komin á þann stað þar sem þú getur haldið áfram að fylgjast með okkur öllum og ég veit að þér líður vel, verkja- laus og falleg. Takk fyrir að fá að vera hluti af lífi þínu, takk fyrir mig og mína. Elsku Friðjón, Dóra Dís, Nonni og Þórhallur, ég sendi ykkur mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Hvíldu í friði, mín kæra. Fanney Björnsdóttir. Það var árið 2000 sem Mar- grét, eða Magga eins og hún var jafnan kölluð, kom til starfa hjá okkur Gunnari Jóhanni Birgissyni, sem þá rákum lög- mannsstofu í Eymundssonhús- inu í Austurstræti undir nafn- inu Lögmenn Austurstræti. Margrét hafði þá langa reynslu af störfum fyrir lögmenn og hóf sinn feril sem ritari á lögfræði- skrifstofu Guðmundar Ingva Sigurðssonar, Jónasar A. Að- alsteinssonar o.fl. og starfaði síðan hjá öðrum lögmönnum áð- ur en hún kom til okkar. Við áttum eftir að eiga langa sam- fylgd því hún fylgdi lögmanns- tofunni þegar hún flutti úr Austurstræti í Lágmúla og hét þá Legalis og síðan þegar Leg- alis sameinaðist öðrum lög- mönnum og varð Juris og flutti í Borgartúnið. Síðustu árin og allt til haustsins 2017, starfaði Magga svo hjá innheimtufyrir- tækinu Gjaldskilum, sem er í eigu lögmannsstofanna Juris og Lex, og þóttist hún þá vera bú- in að loka hringnum því Lex á rætur sínar að rekja til lög- mannsstofu Guðmundar Ingva og fleiri sem áður var minnst á. Hún gerði oft grín að sjálfri sér og furðaði sig á því að hún skyldi hafa eytt svona stórum hluta ævinnar í að vinna fyrir lögmenn, en hún kunni í raun vel við það, og það var mikill fengur fyrir lögmannastéttina að fá að njóta starfskrafta Möggu svo lengi. Ég var að segja einum kollega mínum frá andláti Möggu og hvað hún hefði unnið lengi og hjá mörg- um lögmönnum og varð honum þá að orði hvort hún hefði ekki örugglega byrjað hjá Njáli á Bergþórshvoli. Magga hefði haft gaman af þessu tilsvari. Maður fann strax að með Möggu var kominn til starfa starfsmaður með dýrmæta reynslu og ekki var verið að hanga yfir hlutunum, verkin voru unnin hratt og vel. Þá var enn unnið með diktafón og stefnur og greinargerðir lesnar inn og síðan vélritaði Magga þetta upp. Allt sem hún gerði var gert af vandvirkni. Hún vatt sér beint í verkið. Það var alveg sama hvað maður bað Möggu um að gera það leysti hún vel og snarlega. Magga var líka skemmtilegur samstarfs- félagi og húmorinn var á rétt- um stað. Því fengum við að kynnast í vinnunni og eins á fjölmörgum samkomum starfs- manna þar sem hún og Friðjón voru fastagestir. Þau kunnu að njóta stundarinnar. Ég átti svo eftir að hafa meiri samskipti við Möggu, því hún og Friðjón, eiginmaður hennar, fluttu í íbúð á næstu hæð fyrir neðan tengdaforeldra mína Elsu og Steinarr og hitti ég þau oft í heimsóknum til þeirra. Tengdaforeldrar mínir nutu líka þessa nábýlis í ríkum mæli en þau gátu ávallt leitað til þeirra ef einhverja aðstoð þurfti og þá var ekki að spyrja að hjálpsemi og greiðvikni þeirra hjóna. Fannst mér gott að vita af tengdaforeldrum mín- um í nábýli við þau Möggu og Friðjón. Við andlát Möggu rifjast upp margar góðar minningar. Ein minning stendur þó upp úr en það var þegar gamlir sam- starfsmenn sem unnið höfðu lengi saman hjá Lögmönnum Austurstræti, Legalis, Juris og Gjaldskilum hittust í sumarbú- stað mínum í Kjósinni í júní- byrjun 2017 og eyddum við saman helgi ásamt mökum í blíðskaparveðri. Það var sér- lega ánægjulegt að fá þau í heimsókn og sýna þeim sveit- ina. Þar voru Magga og Friðjón í essinu sínu enda fann maður glöggt hversu áhugsöm þau voru um allt sem viðkom sum- arbústaðnum og sumarbústað- alífi enda áttu þau sumarbústað við Laugarvatn sem þau unnu mjög og reyndu að dvelja þar sem oftast. Varð þeim tíðrætt um þennan stað og átti hann greinilega góðan stað í hjarta þeirra beggja. Magga glímdi við krabba- mein síðustu árin en hún vildi vinna og ætlaði sér ekki að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum. Magga er einn minnisstæðasti samstarfsmaður sem ég hef kynnst. Ég minnist hennar með miklu þakklæti. Ég sendi Frið- jóni og fjölskyldu þeirra inni- legar samúðarkveðjur og bið þeim Guðs blessunar. Sigurbjörn Magnússon. Elsku Magga okkar, hún var kannski lítil og pen í útliti en hún var svo stór kona í öllum öðrum skilningi. Hún var sann- kölluð hversdagshetja, þrjósk og sterk kona en elskaði hlát- urinn og gleðina umfram allt. Ekkert var verið að staldra við erfiðleika og leiðindi. Hún Magga var svo hrein og bein, sagði skoðanir sínar umbúða- laust og gat vissulega „tuðað“ en gerði það allt einhvern veg- inn þannig að maður hló bara, og hún hló svo sannarlega með. Hún hafði svo mikinn húmor al- veg fram á síðasta dag og það var ekkert heilagt þegar kom að því að hlæja aðeins til að létta lundina. Magga var í rauninni aldurs- laus og eignaðist vini í okkur, sem gætum allar verið dætur hennar miðað við aldursmun. Hún var enda alltaf ungling- urinn í hópnum, elskaði snakk, kók og hamborgara. Kannski kál á hamborgarann en annars voru ávextir og grænmeti bara fyrir börn. Þegar við buðum henni með okkur á Gló í hádeg- inu bað hún okkur vinsamlegast að bjóða sér bara með þegar við ætluðum að borða „alvörumat“, t.d. American Style. Enda færð- um við henni einn slíkan ham- borgara á líknardeildina í haust og hún hreinlega stundi af ánægju, þótt lystin væri ekki mikil. Við eignuðumst líka góðan vin í Friðjóni enda var engin Magga án hans. Hún elskaði hann skilyrðislaust og hann hana. Hann var hennar stoð og stytta í einu og öllu, eins og reyndi heldur betur á síðustu ár. Stærra og fallegra ástar- samband er vandfundið og við hugsum með okkur að við vilj- um verða eins og Magga og Friðjón þegar við verðum stór- ar. Þau hjónin elskuðu að fara í Hákot og tóku yfirleitt eitt eða fleiri barnabörn með. Þau voru nefnilega þessi amma og afi sem báðu um að fá börnin til sín. Segir svo margt um þetta eðalfólk. Það er óendanlega sorglegt að Magga skuli ekki hafa fengið að njóta lengra ævikvölds með Friðjóni sínum, börnum, barna- börnum og barnabarnabörnum. Minning Möggu mun hins vegar alltaf lifa enda skildi hún eftir svo mikið af gleði og hamingju að það dugar næstu kynslóðum. Við þökkum innilega fyrir samfylgdina, þvílík gæfa að hafa kynnst þessari frábæru konu. Ástvinum Möggu, og sér- staklega eilífðarkærastanum Friðjóni, vottum við innilega samúð. Edda Andradóttir, Gréta Hilmarsdóttir, Guðrún M. Eysteinsdóttir. Elsku Magga, mín kæra vin- kona. Þá er þessari baráttu þinni við krabbameinið lokið eftir hetjulega baráttu í mörg ár. Það er svo merkilegt að ég man enn þá hvernig og hvar við hittumst fyrst fyrir algjöra til- viljun. Það var 17. júní og við á leið í bæinn í strætó. Þú varst svo hress og skemmtileg, lífið og gleðin í algleymingi. Upp frá þessum fyrsta fundi okkar varðst þú mín besta vinkona og hélst þessi vinátta okkar alla tíð. Ég þakka þér allar skemmti- legu stundirnar í Miðdalnum. Í sumarbústað pabba þíns í prentaralandinu. Við vorum ungar þegar við fórum að flækj- ast þangað einar, en oftast var annað hvort foreldra þinna á staðnum. Þetta var dásamlegur tími. Oft gengum við niður á Laugarvatn. Fórum í gufubað og keyptum okkur svo brauð, gúrkur og tómata (þá var sum- arið sko komið og svo aftur labbað heim. Undir kvöld fórum við með brúsa í Miðdal í kring- um mjaltir á bænum til að fá mjólk. Þegar við urðum eldri, komn- ar með menn og börn þá hitt- umst við sjaldnar. Báðar upp- teknar, komnar í fulla vinnu og gáfum okkur ekki eins mikinn tíma til að hittast, nema kannski til að fara út að borða saman í hádeginu. Alltaf var jafn gaman hjá okkur. Við störfuðum saman í JC Árbæ í nokkur ár. Þar varst þú ótrúlega kröftug og gaman að fá þig og Friðjón í félagið. Orkumikil, drífandi og bráð- skemmtileg bæði tvö. Það voru sótt ýmis námskeið og verið með allskonar uppákomur. Engin stórvægileg vandamál. Allt hugsað í lausnum eins og svo oft er sagt. Eftir að þú veiktist jukust samskipti okkar aftur. Enn og aftur var það hádegishittingur- inn og reyndar gott betur. Þeg- ar ég hitti þig síðast og þú varst komin á líknardeildina fékkst þú aðstoð við að komast fram. Það var vitað að ég myndi bíða á meðan, þú snerir þér við um leið og þú stóðst upp með aðstoð tveggja kvenna og sagðir að ég mætti prófa súrefnið þitt á meðan. Húmorinn alltaf í fínu lagi og svo sannarlega þér líkt. Ég mun sakna þín, elsku vin- kona. Hvíldu í friði. Ég votta þér, Friðjón minn, Dóru, Jóni Arnari, Þórhalli Hjálmari og fjölskyldum mína innilegustu samúð. Þóra Pétursdóttir. Margrét Jónsdóttir, Magga, er fallin frá eftir langvarandi og erfið veikindi. Hún hafði unnið með okkur í hátt á annan ára- tug, hjá Legalis, Juris og Gjaldskilum. Það eru því marg- ir samstarfsmenn, gamlir sem nýir, sem kveðja nú góða sam- starfskonu og vinkonu. Magga var góður starfsmað- ur, iðin og samviskusöm. Hún fór aldrei heim fyrr en bunkinn á borðinu hennar var búinn. Hún hafði mikla reynslu og þekkingu í sínu starfi, sem hún nýtti til að kenna og leiðbeina öðrum. Magga var enn betri sam- starfsmaður, var einhvern veg- inn allra og aldur skipti þar engu máli enda var hún alltaf unglingurinn í hópnum. Hún hafði einstaklega góða nærveru, mikinn húmor og vildi fyrst og fremst bara lifa, njóta og hafa gaman. Það var alltaf mikið hlegið með fjörkálfinum Möggu. Síðustu ár hafði Magga glímt við erfið veikindi en hún lét ekki deigan síga. Hélt bara áfram að hafa gaman, ferðast og njóta lífsins með Friðjóni sínum og fjölskyldunni. Það fór enda ekki fram hjá neinum hvað hún elskaði Friðjón sinn, og alla þeirra afkomendur. Hún var stolt af þeim öllum og naut þess að deila fréttum af þeim með okkur hinum. Þeirra missir er mestur. Samstarfsfólk og vinir Möggu þakka samfylgdina af heilum hug og senda ástvinum hennar innilegar samúðarkveðj- ur. F.h. samstarfsfólks hjá Leg- alis, Gjaldskilum og Juris, Edda Andradóttir. Margrét Jónsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRLEIF SKARPHÉÐINSDÓTTIR, áður til heimilis á Seljalandsvegi 42, Ísafirði, lést á Eyri, Ísafirði, fimmtudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 8. febrúar klukkan 14. Konráð Jakobsson Helga Konráðsdóttir Sigmar Þór Óttarsson Brynjar Jón Konráðsson Guðbjörg Konráðsdóttir Þorsteinn Birgisson Skarphéðinn Konráðsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.