Morgunblaðið - 05.02.2020, Page 24

Morgunblaðið - 05.02.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2020 50 ára Helgi er Reykvíkingur, ólst upp í Fossvogi og býr þar. Hann er með BS-gráðu í vélaverk- fræði frá HÍ og MS- gráðu frá DTU í Kaupmannahöfn. Helgi vinnur við hugbúnaðarþróun hjá Lykli. Maki: Elsa Margrét Finnsdóttir, f. 1971, vinnur hjá Dýrahjálp Íslands. Börn: Arnar Ingi, f. 2000, og Rakel, f. 2002. Foreldrar: Ágúst Karel Karlsson, f. 1932, d. 2018, vélstjóri og forstjóri hjá Tryggingu hf., og Guðríður Sæmunds- dóttir, f. 1931, d. 2009, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Helgi Þór Ágústsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Taktu þér tíma fyrir sjálfa/n þig. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér þótt nágranninn sé á móti öllu, reyndu frekar að skilja af hverju. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki hanka þig á því að verða tvísaga. Stíllinn skiptir máli og þú hefur hann svo sannarlega. Haltu þínu sama hvað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Of miklar upplýsingar gætu flækt málin og komið í veg fyrir að þú fyndir réttu lausnina. Gættu tungu þinnar þegar þú svarar fólki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er eitthvað sem ruglar þig í ríminu. Líttu ekki fram hjá því sem kemur þér fyrst í hug, jafnvel þótt þér finnist það út í hött. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hvernig væri að rétta fram sátta- hönd? Taktu af öll tvímæli um hvað þú vilt og hvert þú stefnir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð góðar hugmyndir varð- andi vinnuna í dag. Tryggðu þér sæti í fremstu röð, þar sem menn veita þér og þínum málum athygli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Til þín er leitað um forustu í ákveðnu máli. Samt skaltu vera við öllu búin/n því sumir vilja ekki gefa sín völd eftir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þegar kemur að aga ertu ósigrandi. Þú færð hugljómun um hvað tekur við hjá þér þegar þú hættir að vinna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gættu þess að leggja vel við hlustir í öllum samskiptum þínum við aðra í dag. Kláraðu það sem þú getur sem allra fyrst, þá geturðu andað léttar í kvöld. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það væri gaman að hóa sam- an gömlu vinunum og eiga með þeim kvöldstund og rifja upp gamlar minn- ingar. Dagurinn á morgun hentar vel til slíks. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft á öllum þínum hug- arstyrk að halda í dag. Farðu á stað sem þú hefur aldrei komið á áður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leggðu orku og áhuga í áform þín svo þau verði pottþétt. Ekki láta í minni pokann þótt það sé auðveldasta leiðin. tískur ráðgjafi. „Vanalega eru tveir til þrír starfsmenn hjá hverjum Evr- ópuþingmanni en vegna stöðu Karen Melchior sem þingflokksformanns Haustið 2019 hóf Ásta störf hjá danska Evrópuþingmanninum Karen Melchior á Evrópuþinginu í Brussel sem skrifstofustjóri og póli- Á sta Guðrún Helgadóttir fæddist 5. febrúar 1990 í Reykjavík og ólst upp að mestu á Seltjarnar- nesi fyrir utan tvö ár í Árósum þegar hún var 8-10 ára. „Ég bjó fyrir ofan Iðunni, sem var þá fataverslun, og eyddi miklum tíma með afa og ömmu í búðinni sem barn, en þau ráku búðina. Þetta var fjöl- skyldufyrirtæki í þrjá ættliði og ég var fjórði ættliðurinn til að vinna á gólfinu. Ég var í skylmingum frá því ég var 12 ára þangað til ég flutti út til Nor- egs árið 2010. Ég vann þar við ýmis verslunar- og þjónustustörf í eitt ár, áður en ég ferðaðist um Tyrkland, Íran og Georgíu, mestmegnis á putt- anum, í tvo mánuði.“ Ásta gekk í Valhúsaskóla og síðar í Menntaskólann í Reykjavík, þar sem hún varð stúdent árið 2010 frá forn- málabraut I. Hún var inspector platearum eða hringjarinn í einn vet- ur. Ásta stundaði nám í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 2011-2014 og lauk BA-prófi þaðan. Hún fór í farsi- nám í Teheran sumarið 2012 og í Erasmus-skiptinám við Háskólann í Varsjá veturinn 2012-2013. Vorið og sumarið 2013 var hún í starfsnámi á skrifstofu Ameliu Andersdotter Evr- ópuþingmanns á Evrópuþinginu. Eftir alþingiskosningar 2013 hlaut Ásta kjör sem varamaður Jóns Þórs Ólafssonar. „Árið 2014 flutti ég til Berlínar og 2015 var ég á milli Lond- on, Brussel og Berlínar að vinna fyrir Democratic Society, en það eru fé- lagasamtök sem vinna að því að virkja lýðræði og lýðræðislega þátt- töku í Evrópu og víðar.“ Haustið 2015 tók Ásta sæti á Alþingi og hlaut endurkjör á þingi fyrir Pírata 2017 en bauð sig ekki aftur fram í kosning- unum 2017. Ásta hóf nám við Oxford Internet Institute árið 2018. Samhliða vann hún sem ráðgjafi m.a. við verkefni hjá Chatham House um lýðræði á tímum stafrænna miðla. Hún útskrif- aðist haustið 2019 frá Oxford og hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir meistararitgerðina sína sem fjallaði um sjálfvirka stjórnun efnis á sam- félagsmiðlum. laganefndar á Evrópuþinginu erum við fjögur auk starfsnema. Við erum í samskiptum við flokkinn hennar heima fyrir og í nefndum og sem skrifstofustjóri hef ég umsjón með þessu. Þetta er mjög áhugavert og krefjandi starf og ég fæ að kynnast öllum hliðum Evrópusambandsins. Svo er mjög gaman að vera í þessu alþjóðlega umhverfi í Brussel og mikið rennerí líka af Íslendingum hérna.“ Áhugamál Ástu eru prjónaskapur, lestur og að passa uppáhaldshundinn sinn. „Jólin 2018 spurði fyrrverandi kollegi minn hvort ég gæti passað hundinn Lubba, sem er 11 ára golden retriever, og síðan þá höfum við Lubbi verið bestu vinir. Þegar ég kem til landsins fæ ég oft að passa hann, sama hvort hann þarf pössun eður ei, hann er orðinn eins konar „kjör-hundurinn“ minn! Ég hef alla tíð verið náin föðurafa og -ömmu, enda ólst ég meira og minna upp í búðinni hjá þeim. Við afi og amma höfum líka ferðast mikið Ásta Guðrún Helgadóttir, skrifstofustjóri og pólitískur ráðgjafi Karen Melchior – 30 ára Í Yazd í miðhluta Írans „Þetta var í fyrsta skipti sem ég braut lögin í Íran með því að laumast til að taka sjalið af hárinu á mér þegar ég hélt að enginn sæi til en þarna var 50 stiga hiti. Mér þykir því alltaf vænt um þessa mynd.“ Starfar á Evrópuþinginu Parið Stefán og Ásta. Vinirnir Ásta og Lubbi. 40 ára Hera er Reyk- víkingur, ólst upp í Laugarnesinu og býr í Laugardalnum. Hún er með BA-gráðu í mannfræði frá Há- skóla Íslands og MA- gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá HÍ. Hera er ungliða- og aðgerðastýra hjá Íslandsdeild Amnesty International. Maki: Einar Helgason, f. 1988. Systkini: Lára Sigurðardóttir, f. 1985, og Númi Sigurðarson, f. 1987. Foreldrar: Hanna Halldórsdóttir, f. 1961, leikskólastjóri á Laugasól, búsett í Reykjavík, og Sigurður H. Ragnarsson, f. 1960, húsasmíðameistari, búsettur í Hafnarfirði. Hera Sigurðardóttir Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Til hamingju með daginn Mosfellsbær Björn Óli Þorsteinsson fæddist 3. febrúar 2019 kl. 9.49. Hann vó 3.908 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Thelma Rut Mort- hens og Þorsteinn Ólafsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.