Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Sérfræðingar koma til landsins
Lendingarbúnaður í vél Icelandair var nýr Búnaðurinn var settur undir vélina í janúar Rann-
sókn miðar ágætlega Óvíst er hvað fullnaðarrannsókn tekur langan tíma Votta þarf viðgerðina
Guðni Einarsson
Þór Steinarsson
Lendingarbúnaður þotu Icelandair
sem hlekktist á í lendingu á Kefla-
víkurflugvelli á föstudag var settur
nýr undir flugvélina í janúar sl.
Flugfréttavefurinn The Aviation
Herald greindi frá þessu. Þar var
sagt að bolta, sem hélt lendingar-
búnaðinum saman, hefði vantað.
Flugvélin var flutt í flugskýli síð-
degis á laugardag. Rannsóknar-
nefnd samgönguslysa (RNSA) vinn-
ur að rannsókn á flugvélinni og því
sem fór úrskeiðis.
„Rannsókninni miðar ágætlega,“
sagði Ragnar Guðmundsson, flug-
vélaverkfræðingur hjá RNSA og
stjórnandi rannsóknarinnar. Hann
sagði að RNSA myndi afhenda Ice-
landair flugvélina þegar frumrann-
sókn lyki. Reynt yrði að vinna verkið
fljótt og vel.
„Það var ekki mikilvægur bolti
sem vantaði,“ sagði Ragnar þegar
hann var spurður um það sem The
Aviation Herald hélt fram. Hann
kvaðst ekki vera tilbúinn til að tjá sig
nánar um einstök atriði rannsóknar-
innar. Að sögn The Aviation Herald
var flugvélin búin að fljúga um 70
leggi frá því að skipt var um lending-
arbúnaðinn.
Von á erlendum aðilum
„Þegar verða annaðhvort slys eða
alvarleg flugatvik eru nokkur ríki
sem alltaf taka þátt í rannsókninni.
Það er ríki framleiðanda sem í þessu
tilviki er Bandaríkin. Við erum búnir
að tilkynna þetta til NTSB (rann-
sóknarnefndar samgönguslysa í
Bandaríkjunum). Við höfum einnig
tilkynnt þetta til systurstofnana okk-
ar í öðrum ríkjum sem að öllum lík-
indum koma einnig að rannsókninni
þar með talin Bretland og Kanada,“
sagði Ragnar. Hann sagði of snemmt
að segja hvort þeir sem skiptu um
hjólabúnaðinn komi hingað eða
hvort hlutir verða sendir til þeirra.
Ómögulegt er að segja til um það á
þessu stigi hvað fullnaðarrannsókn
atviksins mun taka langan tíma.
Ragnar sagði það hafa áhrif á gang
hennar ef senda þyrfti hluti í ítarleg-
ar greiningar og rannsóknir. Slík
vinna gæti verið mjög sérhæfð.
Hann sagði að skipt væri um hjóla-
búnað í flugvélum samkvæmt fyrir-
framgerðri áætlun. Fyrirtæki sem
veittu slíka þjónustu ynnu sam-
kvæmt áætlun og væru bókuð langt
fram í tímann. Því gæti þurft að bíða
til að komast að með svona verkefni.
RNSA mun ekki leggja mat á það
hvort hægt verður að laga flugvélina
og gera hana flughæfa á ný. Ragnar
sagði það vera á ábyrgð flugrekand-
ans. Hann þyrfti að afla heimilda hjá
flugmálayfirvöldum sem þyrftu að
votta slíka viðgerð.
Ljósmynd/Aðsend
Óhapp Rannsókn stendur yfir á því hvað olli því að hjólabúnaðurinn gaf sig.
„Við höfum fundið að forvarnargildið
er mjög sterkt. Fólk veit að það
verður tekið á málinu ef það kemst
upp. Og það er það sem þetta snýst
um; að koma í veg fyrir málin áður
en þau verða til,“ segir Gyða Krist-
jánsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi.
Fyrirtækið kynnti fyrir ári til sög-
unnar Siðferðisgáttina, nýja þjón-
ustu fyrir fyrirtæki svo þau geti boð-
ið starfsmönnum sínum farveg ef
þeir verða fyrir óæskilegri háttsemi
á vinnustað. Er þar átt við kynferð-
islega áreitni, einelti, samskiptamál
og annað sem getur valdið fólki van-
líðan á vinnustað. Kveikjan að þessu
var #MeToo-byltingin og umræða
um vinnustaðamenningu og leiðir til
að breyta henni.
Gyða segir í samtali við Morgun-
blaðið að þjónustunni hafi verið vel
tekið fyrsta árið og augljóst sé að
þörf sé á þjónustu af þessu tagi. Um
tíu fyrirtæki hafa nýtt sér þjón-
ustuna fyrir starfsfólk sitt og segir
Gyða að viðkomandi fyrirtæki hafi
hjálpað starfsfólki Hagvangs að
móta starfsemina. Bjartsýni ríki um
að Siðferðisgáttin muni í framtíðinni
styðja vel við öflugt forvarnarstarf
hjá fyrirtækjum sem leggja sífellt
aukna áherslu á heilbrigðara starfs-
umhverfi fyrir sitt fólk. „Því trúum
við því að Siðferðisgáttin sé öflugt
forvarnartæki. Það hafa alls konar
mál komið inn á borð til okkar og við
sjáum að þetta er komið til að vera.
Þetta er ekki tímabundinn plástur,“
segir Gyða sem kveðst hafa orðið vör
við áhuga á þjónustunni, jafnvel þótt
hún hafi ekki verið auglýst sérstak-
lega. „Við höfum fengið fyrirspurnir
frá þó nokkuð mörgum starfsmönn-
um fyrirtækja og stofnana um það
hvernig hægt sé að koma þjónust-
unni á framfæri við stjórnendur þar.
Það þykir þörf á því.“ hdm@mbl.is
Glíma við alls konar mál
Tíu fyrirtæki
hafa leitað til Sið-
ferðisgáttarinnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forvörn Gyða Kristjánsdóttir segir
Siðferðisgáttina mikilvægt tæki.
Alls seldust
19.954 lítrar af
þorrabjór fyrstu
tvær vikurnar
síðan hann var
settur í sölu.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá
Vínbúðunum
varð ríflega 15%
samdráttur í
sölu frá fyrra
ári.
Mest hefur selst af Þorra Kalda,
alls 8.632 lítrar. Næstvinsælasti
þorrabjórinn er Bóndi, þá Víking-
vetraröl og fjórði vinsælasti bjór-
inn er Linda B, samstarfsverkefni
Víkings og RVK Brewing. Segull
67-þorraöl er í fimmta sæti yfir
mest selda þorrabjórinn.
hdm@mbl.is
Þorra Kaldi vinsæl-
astur þetta árið
Þorrabjór Kaldi
nýtur vinsælda.
Reykjavíkurborg áformar að leggja nýjan 500
metra göngu- og hjólastíg samsíða Bústaðavegi
frá Veðurstofuvegi að Skógarhlíð. Gert er ráð
fyrir aðskildum göngu- og hjólastígum þar sem
hvor stígur um sig er 2,5-3 metrar á breidd.
Grafin verða undirgöng undir Litluhlíð til að
tengja nýju stígana við Skógarhlíð. Samhliða
þeirri framkvæmd verður Litlahlíð mjókkuð í
samræmi við drög að deiliskipulagi sem nú er í
kynningu.
Áform þessi voru kynnt í skipulags- og sam-
gönguráði í síðustu viku og þar óskað heimildar
til verkhönnunar og gerðar útboðsgagna fyrir
verkið. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í
sumar.
Fleiri hjólastígar eru á teikniborðinu, til að
mynda frá Miklubraut að Bústaðavegi og yfir í
Elliðaárdal.
Nýr hjólastígur og undirgöng við Hlíðarnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veðurstofan gaf út gula viðvörun í
gær vegna norðan hríðarveðurs við
Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Strönd-
um, Norðurlandi vestra og Norður-
landi eystra.
Veðurfræðingur Vegagerð-
arinnar varaði í gærkvöld við veðr-
inu og sagði að frá því seint í gær-
kvöld, eftir kl. 22, og í nótt væri
útlit fyrir hríðarveður norðanlands
og á Vestfjörðum. Reikna má með
strekkingsvindi og því að snjór
fjúki í skafla.
Því eru líkur á ófærð á vegum nú
með morgninum, einkum í Skaga-
firði, Eyjafirði og austur með
ströndinni.
Gul viðvörun fyrir
norðan og vestan