Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 32
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á listverslun.is Verkfærasett 108 stk Mikið úrval af verkfæratö Vasaljós og lugtir, yfi 30 ði Lyklabox í miklu úrvali r ger r Límbyssur ViAir 12V loftdælur í miklu úrvali Startkap Hleðslutæki 12V 6A lar Hjólatjakkur 2T m/tösku Hjólafesting á bíl Jeppatjakkur 2.25T 52cm AirBrush loftdæla GAGNLEGT Bílrúðu- sköfur Verð frá kr. 395 Rúðuvökvi 995 frá 3.995 19.995 frá 995 4.995 5.995 frá 1.495 12.995 frá 795 skum Snjósköfur Verð frá kr. 1.495 Mikið úrval af myndlista- vörum alltaf Hljómsveitin ABK Group kemur fram á djasskvöldi Kex hostels ann- að kvöld kl. 20.30 en hana skipa Ari Bragi Kárason á trompet, Phil Doyle á saxófón, Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Valdimar Olgeirsson á bassa og Einar Scheving á tromm- ur. Sveitin mun leika frumsamin lög eftir hljómsveitarstjórann Ara Braga í bland við lög eftir nokkra af uppáhaldshöfundum hans. ABK Group á Kex MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valsmenn eru komnir í annað sæti úrvalsdeildar karla í handknattleik, Olísdeildarinnar, eftir öruggan sex marka sigur gegn toppliði Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði í sautjándu umferð deildarinnar í gær. Baráttan á toppi deildarinnar er afar hörð, en aðeins munar fimm stigum á ÍBV sem er í sjöunda sæti deildarinnar og Haukum sem eru í efsta sætinu. »27 Valsmenn taplausir síðan í október ÍÞRÓTTIR MENNING Lovísa Thompson, landsliðskona Ís- lands í handknattleik og leikmaður Vals í úrvalsdeild kvenna, fór á kostum þegar Íslands- og bikar- meistararnir heimsóttu HK í Kórinn í fimmtándu umferð Olísdeildar kvenna á laugardaginn. Lovísa gerði sér lítið fyrir og skoraði fjór- tán mörk í leiknum, sem lauk með 25:23-sigri Vals. Valskonur eru í öðru sæti deildarinnar með 25 stig, þremur stigum minna en topplið Fram sem hefur aðeins tapað einum leik í deildinni í vetur. » 26 Lovísa fór á kostum gegn HK í Kórnum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bæklingurinn „Réttur minn til að velja“ (retturminn@gmail.com) sem Lilja Björk Ólafsdóttir á Dalvík tók saman og gaf út í kjölfar andláts for- eldra sinna hefur verið prentaður í um 30.000 eintökum og komið mörg- um að gagni. „Ég hef sent bækling- inn út um allt land, til dæmis á heilsu- gæslustöðvar og útfararstofur, og hef fengið mjög góð viðbrögð,“ segir hún. Lilja Björk hugsaði bæklinginn sem verkfæri til þess að takast á við dauðann. Fólk getur skráð niður val um meðferð við lífslok og skipulagt eigin útför með því að merkja við ýmsa valkosti. „Ég vona að bækling- urinn opni á umræðu um þessi mál,“ segir hún. Faðir Lilju Bjarkar greindist með briskrabbamein og dó fjórum mán- uðum síðar 1998. Hún segir að and- látið hafi ekkert verið rætt fyrirfram á þessum tíma og það hafi komið í hlut sex systkina og móður þeirra að ákveða allt í sambandi við útförina. „Mamma veiktist og dó átta árum seinna. Þá hafði hún gert ráðstafanir um hvað skyldi gera eftir andlát sitt og þegar hún dó á Spáni var eft- irleikurinn ekkert mál fyrir okkur. Hún hafði sagt okkur frá andláti Íslendings á Spáni og vildi læra af reynsl- unni. Við kistu- lagninguna hafði ekkert verið hugsað um umbúnaðinn og kistan hafði verið lóðuð aftur og ekki borist til Íslands fyrr en eftir marga mánuði með tilheyrandi kostnaði og sálarstríði afkomenda. „Ef ég dey úti á Spáni vil ég láta brenna mig þar,“ sagði hún og við fórum eftir því. Komum svo heim með öskuna án vandræða.“ Ákvörðun mikilvæg Ákvarðanir um lífslokameðferð og útför skipta miklu máli, að mati Lilju Bjarkar, bæði fyrir viðkomandi ein- stakling og aðstandendur hans. „Eft- ir að mamma dó ákvað ég að kanna hvort ég gæti ekki fyllt út form fyrir börnin okkar að fara eftir en fann ekkert og ákvað þá að útbúa þennan bækling.“ Í þessu sambandi bendir hún á að Landlæknisembættið hafi verið með svonefnda lífsskrá en ferlið hafi verið fráhrindandi. Eftir undirskrift hafi viðkomandi haldið einu eintaki, um- boðsmaður hans fengið annað, læknir hans það þriðja og landlæknisemb- ættið hið fjórða. „Mér fannst þetta allt of flókið og því einfaldaði ég hlut- ina. Þetta er bara verkfæri sem fólk getur notað að vild. Það þarf ekki að fylla alla reiti út og endalaust má breyta auk þess sem bæklingurinn getur bara legið ofan í skúffu þar til yfir lýkur.“ Hjónin Lilja Björk og Óskar Óskarsson kostuðu verkefnið og fengu marga til liðs við sig. „Úr varð fjölskylduverkefni með hjálp ýmissa annarra.“ Lilja Björk var fimmtug síðsumars 2012 og það var vendi- punkturinn. „Þá ákváðum við að þetta yrði okkar framlag til þess að gefa til baka og fyrsta prentun kom út síðar á árinu. Það eina sem við vit- um er að við munum deyja og það þarf ekki að vera feimnismál.“ Á Dalvík Hjónin Lilja Björk Ólafsdóttir og Óskar Óskarsson gáfu út bæklinginn fólki til aðstoðar. Rétturinn til að velja  Umræða um dauðann  Tilgangur bæklingsins er að hjálpa fólki að taka ákvarðanir um lífslokameðferð og útför

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.