Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 10.02.2020, Síða 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Greina má merki þess að auglýsendur haldi núna fastar um pyngjuna en oft áður. Eftir langvarandi uppgangstímabil eru blikur á lofti í hagkerfinu, og þó að fátt bendi til að samdráttarskeið sé í uppsigl- ingu þykjast margir finna fyrir köldum gusti og því vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig á komandi misserum. Sigríður Theódóra Péturs- dóttir, aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá auglýsingastofunni Brandenburg, segir sinn geira oft finna fyrir því á undan öðr- um ef hik kemur markaðinn: „Hins vegar er það eðli auglýs- ingamarkaðarins að hann tekur breytingum í sífellu og eru þessar breytingar ekki neitt sem þarf að hræðast heldur tækifæri sem þarf að grípa. Auglýsinga- stofur eru breytingafyrirtæki í eðli sínu. Við erum annaðhvort að spila sókn eða vörn. Fyrirtæki koma og fara eða sameinast, markaðir breytast og nýjar vörur gera gamlar úreltar. En það þýðir ekkert að vera hræddur við breytingar í okkar geira. Sá sem er hræddur við breytingar á ekki að vinna á auglýsingastofu. Okkar áskorun núna felst í því að sýna viðskiptavinum okkar virðisaukann í því að vinna með okkur og fjárfesta í markaðs- málum og uppbyggingu vörumerkja til langs tíma.“ Sóknarfæri þegar rólegt er á auglýsingamarkaði Sérfræðingar benda gjarnan á að það sé einmitt besti tíminn til að setja aukinn kraft í markaðs- málin þegar hægir á auglýsingarmarkaðinum. Rökin eru þau að ef aðrir halda að sér höndum í auglýsingakaupum megi semja um betra verð fyr- ir birtingarnar og auglýsingarnar á sama tíma sýnilegri enda minni samkeppni um athygli al- mennings. Er samt hægara sagt en gert fyrir stjórnendur að fylgja þessum ráðum, og jafnvel þótt rökin séu augljós er það ósköp eðlilegt við- bragð að vilja sýna ýtrustu varkárni ef fyrirséð er að þröngt verð í búi á komandi mánuðum. Hvernig veit stjórnandi að hann er að sýna of mikið aðhald og ekki verja nægu fé í markaðsmál? Sigríður Theódóra segir svarið ekki liggja í aug- um uppi, og ekki hægt að setja fram þumalputta- reglu um hvað sé of mikið eða of lítið þegar kemur að fjárfestingu í markaðsmálum. Svarið er breyti- legt eftir þeim fyrirtækjum og þeirri vöru sem um ræðir: „En það á samt alltaf við að halda þarf jöfn- um dampi og ekki hætta að verja peningum í markaðsmál þegar hægir á hagkerfinu. Að byggja upp traust, góða ímynd og sterkt vörumerki er langtímaverkefni sem kallar bæði á þolinmæði, þrautseigju og ekki síst skýra framtíðarsýn,“ segir hún og bætir við að íslenskum fyrirtækjum hætti til að einblína á skammtímaaðgerðir þar sem þau vilja oft sjá árangurinn strax. „En rannsóknir hafa leitt í ljós að langtímastefna skilar betri árangri fyrir vörumerkið til lengri tíma litið.“ Góð blanda er best Eins og lesendur muna áttu hefðbundnir aug- lýsingamiðlar í vök að verjast eftir bankahrunið. Á sama tíma leituðu íslensk fyrirtæki af krafti inn á netið og birtu auglýsingar sínar á leitarvélum og samfélagsmiðlum. Þótti netið bjóða upp á tiltölu- lega ódýra og skilvirka leið til að ná til fólks, enda hægt að beina auglýsingum að nákvæmt skil- greindum markhópum og mæla árangur herferða frá einu augnabliki til annars. Með tíð og tíma var samt eins og máttur netauglýsinga minnkaði sam- hliða því að birtingarnar urðu dýrari. Rann þá upp skeið áhrifavaldanna og ný markaðsfyrirtæki urðu til sem sérhæfðu sig í að auðvelda auglýsendum að koma vörum sínum að hjá bæði stórum og smáum stjörnum á miðlum á borð við Snapchat og Insta- gram. Sigríður Theódóra segir að netið sé vissulega mikilvægur þáttur í birtingastefnu en meta þurfi vandlega markhóp og markmið og velja miðla út frá því. „Mín trú er að það þurfi að vera jafnvægi á milli miðla, þú nærð ekki langtímaárangri með því að einblína á einn miðil,“ segir hún og bætir við að sama viðhorf megi núna sjá víða: „Mörg þeirra fyrirtækja sem birtu hvað mest á netinu eru farin að nýta aðra miðla betur, passa upp á breiddina í birtingum og nýta sérstöðu og styrkleika hvers miðils. Amazon, Google og fleiri stór netfyrirtæki eru á meðal stærstu auglýsenda í sjónvarpi er- lendis því þau sjá að það er ekki nóg að auglýsa bara á netinu. Vönduð og vel tímasett sjónvarps- auglýsing getur fangað athygli áhorfenda með allt öðrum hætti en þegar hún er birt á netinu, og þeg- ar fólk les blöðin í dagsins amstri gefur það sér tíma til að staldra við áhugaverða auglýsingu.“ Ná ekki langtímaárangri með því að einblína á einn miðil AFP Blanda Netauglýsingar voru mjög vinsælar, og síðan áhrifavaldar eins og kötturinn Grumpy heit- inn. Nú er meira jafnvægi komið í val á miðlum.  Halda þarf dampi í markaðsmálum fyrirtækja jafnt í upp- og niðursveiflum Sigríður Theodóra Pétursdóttir 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 SÉRSMÍÐI Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins. Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika með vandaðri sérsmíði og flottri hönnun. 10. febrúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.62 126.22 125.92 Sterlingspund 162.39 163.17 162.78 Kanadadalur 94.32 94.88 94.6 Dönsk króna 18.399 18.507 18.453 Norsk króna 13.523 13.603 13.563 Sænsk króna 13.011 13.087 13.049 Svissn. franki 128.67 129.39 129.03 Japanskt jen 1.1438 1.1504 1.1471 SDR 172.11 173.13 172.62 Evra 137.52 138.28 137.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.1059 Hrávöruverð Gull 1564.75 ($/únsa) Ál 1697.0 ($/tonn) LME Hráolía 55.14 ($/fatið) Brent ● Samkomulag hefur náðst um að fjár- tæknifyrirtækið Two Birds kaupi fræðslu- og verðtilboðavefinn Aur- björgu. Í tilkynningu sem send var fjöl- miðlum í gær segir að Two Birds sér- hæfi sig í þróun notendavænna við- skiptalausna á fasteigna- og fjármála- markaði. Fjártæknivefsíðan Aurbjörg hefur frá árinu 2017 safnað saman upp- lýsingum um verðskrá og vaxtakjör banka og kortafyrirtækja og auðveldar neytendum að gera verðsamanburð á ýmiss konar vöru og þjónustu, s.s. hjá fasteignasölum, bifreiðaskoðunum og bensínstöðvum. ai@mbl.is Aurbjörg seld til Two Birds Áfangi Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Two Birds, og Ólafur Örn Guðmundsson, meðstofnandi Aur- bjargar, undirrita kaupsamninginn. Stjórn Credit Suisse ákvað á föstu- dag að Tidjane Thiam skyldi láta af störfum sem bankastjóri. Thiam hefur stýrt bankanum frá 2015 og greinir FT frá að það sé mat margra stórra hluthafa að hann hafi unnið þrekvirki með því að koma skikki á reksturinn, auk þess sem honum tókst að leysa farsæl- lega úr erfiðum málum sem fyrri stjórnendur skildu eftir sig hjá þessum næststærsta banka Sviss. Er það hins vegar mat stjórnar- innar að Thiam hafi sýnt of mikið taktleysi í viðbrögðum sínum við njósnahneyksli sem kom upp í september þegar í ljós kom að starfsmaður bankans hafði fengið njósnara til að vakta fyrrverandi stjórnanda sem hafði fært sig yfir til keppinautarins UBS. Í desember var svo upplýst að einnig hefði ver- ið njósnað um fyrrverandi starfs- mannastjóra Credit Suisse. Innanhússrannsókn hreinsaði Thiam af allri sök en stjórnin leit svo á að hann hefði engu að síður brugðist rangt við málinu og ekki sýnt nægilegan skilning á alvöru þess, og þannig skaðað orðspor bankans. Thomas Gottstein tekur við af Thiam en hann hefur stýrt starf- semi Credit Suisse innanlands. Nú er talið mögulegt að hlut- hafar snúist gegn stjórninni og kjósi burtu formanninn Urs Rohner á næsta hluthafafundi, en skipunar- tíma hans á að ljúka 2021. ai@mbl.is AFP Afleikur Starfslok Tidjanes Thiams hafa valdið titringi í Sviss. Óánægja með brott- rekstur Thiams  Stjórnandi Credit Suisse var látinn fara vegna viðbragða við njósnamáli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.