Morgunblaðið - 10.02.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.02.2020, Qupperneq 25
gerður Knútsdóttir, f. 23.9. 1950, leikskólasérkennari og fyrrverandi leikskólastjóri. Þau gengu í hjóna- band 15.6. 1972. Foreldrar Val- gerðar voru hjónin Knútur Ragnarsson, f. 18.7. 1925, d. 26.4. 1986, starfsmaður Olíufélagsins hf., og Ágústa Sigurðardóttir, f. 20.3. 1930 d. 10.11. 2014, skrif- stofumaður hjá Húsasmiðjunni. Börn Guðmundar og Valgerðar eru: 1) Friðrik Rafn, f. 22.1. 1974, félagsráðgjafi í Alaska í Bandaríkj- unum, kvæntur Stephine Grant en hún lést 22.12. 2019. Þau ættleiddu dreng, Samuel Úlfar Gudmunds- son, f. 17.11. 2007; 2) Úlfar Kári, f. 24.1. 1980, rafvirki og körfuknatt- leiksmaður, búsettur í Noregi; 3) Rakel Mjöll, f. 15.4. 1983, B.Ed. í kennslufræði frá HÍ, en maður hennar er Haukur Daði Guð- mundsson. Þau eiga tvær dætur, Snædísi Klöru, f. 12.5. 2011, og Hrafnhildi Lilly, f. 17.10. 2014; 4) Rebekka Rán, f. 15.8. 1989, eigin- maður hennar er John C. Overfelt. Sonur þeirra er Charles Guð- mundur, f. 27.11. 2014; 5) Regína Ösp, f. 15.3. 1993, nemi við HÍ, bú- sett í Reykjavík. Bræður Guðmundar eru Örvar Sigurðsson, f. 28.10. 1945, fram- kvæmdastjóri, búsettur í Garðabæ; Jón Sigurðsson, f. 6.3. 1951, fram- kvæmdastjóri í Kópavogi; Sigurður Ómar Sigurðsson, f. 17.7. 1957, framkvæmdastjóri í Reykjavík; Davíð Art Sigurðsson, f. 14.2. 1968, listamaður á Stokkseyri. Foreldrar Guðmundar voru hjónin Sigurður Jónsson, f. 2.9. 1926, d. 27.4. 1998, forstjóri Stjörnulita, og Guðríður Hulda Guðmundsdóttir, f. 18.10. 1923, d. 22.4. 1991, húsmóðir. Guðmundur Sigurðsson Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Borg Finnbogi Ólafsson bóndi á Borg í Skriðdal Guðríður Finnbogadóttir húsfreyja á Bíldsfelli Guðmundur Þorvaldsson bóndi á Bíldsfelli í Grafningi Hulda Guðmundsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði Svanhvít Sigurðardóttir húsfreyja í Geitdal Þorvaldur Guðmundsson bóndi í Geitdal í Skriðdal Hólmfríður Þórunn Ragnheiður Gísladóttir húsfreyja í Miklaholtshelli Sigurður Magnúsdóttir bóndi í Miklaholtshelli í Flóa Margrét Sigurðardóttir Briem húsfreyja á Svanavatni og í Rvík Jón Jónsson b. og sjómaður á Svanavatni á Stokkseyri og sjómaður í Keflavík Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja í Gljákoti Jón Grímsson hafnsögumaður í Gljákoti á Stokkseyri Úr frændgarði Guðmundar Sigurðssonar Sigurður Jónsson forstjóri Stjörnulita DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2020 FYRIR HÚÐ OG HÁR Omega3 SKIN er sérstaklega smíðuð til að viðhalda heilbrigðri húð og gljáa. Hylkin innihalda m.a. omega3 fitusýrurnar EPA og DHA og sjávar kollagen. www.lysilife.is F æ st í a p ó te k u m NÝ TT FRÁ LÝ S IF Y R IR H ÚÐ OG H Á R NÝTT „HANN ER EKKI SVO SLÆMUR – EN ÞÚ HEFÐIR ÁTT AÐ SJÁ ÞANN SEM SLAPP.” „VIÐ ÞURFUM TVEGGJA MANNA HJÓL – OG SVO EITT FYRIR MIG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila þegar aurarnir eru búnir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VERST AÐ VIÐ SKYLDUM EKKI KYNNAST Í MENNTÓ, LÍSA ÉG HEFÐI GETAÐ BOÐIÐ ÞÉR Á BUSABALLIÐ ÉG HELD AÐ ÞAÐ KVÖLD HAFI HÚN VERIÐ AÐ BAÐA KÖTTINN HEFÐIRÐU SAGT JÁ? ÞAÐ TÓK MIG KLUKKUTÍMA AÐ NÁ KJÚLLANUM!ÉG TÓK VEL Á ÞVÍ Í DAG! HRÓLFUR, HVENÆR ÆTLAR ÞÚ AÐ BYRJA Í RÆKTINNI? Gústi Mar yrkir á Leir og kallar„Á Borgarsandi“: Um gamla fjöru geng ég einn góð er förin mín. Marka spor í svartan sand er sólarljósið dvín. Sjórinn ólmast, sandi mokar, á sjónum ekkert hrín. Breiðir yfir einsog tíminn ævisporin mín. Það rímar vel að hér komi staka Péturs Stefánssonar: Í lífs míns skruddu skrifað er og skráð með fögru letri: að lukkan hafi leikið sér og látið vel að Pétri. Skírnir Garðarsson brá á glens og sagði: „Enda ertu ekki dómari í landsrétti, einn fárra Íslendinga, hehe,“ og bætti við: „Það syrtir í ál- ana, drengir, drengir“: Í Strassborg nú stólarnir vökna, og stórmenni alþingis klökkna, því lögfræðiskarinn er lú- ehemm- barinn, þar landsdóms nú álarnir dökkna. Það var bjartara hljóðið í Ingólfi Ómari sem sagði: „Lukkan leikur við okkur Pétur“: Vafin gleði ást og yl engum pínum hrjáður. Lukkan við mig líkast til leikur nú sem áður. Sigmundur Benediktsson segist hafa verið hálfnaður með vísuna þegar Péturs vísa kom og efnið tók þá vinkilbeygju, eftir atvikum: Stilltur er Leir með stolti stendur og huga vendir. Glaður vill andans glóðir greina og flytja reyna. Pétur nú vísu potar piltur í geði stilltur. Vinur frá boðskap vona vermir og gæfu hermir. Tryggvi H. Kvaran orti „Uppkast að biðilsbréfi“: Ég á ósk í eigu minni – ofurlítið grey – að mega elska einu sinni áður en ég dey. Að það sé svo undurgaman, allir segja mér. – Eigum við að vera saman og vita, hvort það er? – Hér eru stökur eftir Dýra: Nóttin víkur völdum frá, vermist andans hagur. Þráin situr alltaf á örmum þínum, dagur. Dagur – hámark hugsunar, helgað nýjum störfum – þú ert ímynd eilífðar, ofin lífsins þörfum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ævisporin og lukkan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.