Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
» Smíðavinna
» Múrvinna
» Málningarvinna
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar tillögur að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra
2012-2024.
Lambalækur – Aðalskipulagsbreyting
Um er að ræða breytingu á landnotkun á rúmlega 25 ha svæði úr jörðinni Lambalækur í Fljótshlíð, þar sem frístundasvæði (F) er
breytt í íbúðarbyggð (ÍB). Hin nýja íbúðarbyggð mun sameinast íbúðarsvæði ÍB-366. Á sameinuðu íbúðarsvæði verður gert ráð fyrir allt
að 18 íbúðarhúsum.
Grenstangi – Aðalskipulagsbreyting
Um er að ræða breytingu á landnotkun á rúmlega 4 ha svæði úr jörðinni Grenstangi í A-Landeyjum, þar sem frístundasvæði (F) er
breytt í íbúðarbyggð (ÍB). Á íbúðarsvæðinu verður gert ráð fyrir allt að 8 íbúðarhúsum.
Hamar – Aðalskipulagsbreyting
Um er að ræða breytingu á landnotkun á 2,0 ha spildu á lóðinni Hamar, A-Landeyjum, úr landbúnaðarsvæði (L) í svæði undir verslun-
og þjónustu (VÞ).
Kirkjuhvoll – Aðalskipulagsbreyting
Fyrirhugað er að breyta landnotkun á um 0,3 ha af íbúðarbyggð (ÍB114) og um 0,5 ha af landbúnaðarsvæði (L) í svæði fyrir
samfélagsþjónustu (S).
Útskák – Aðalskipulagsbreyting
Um er að ræða breytingu á landnotkun á rúmlega 5 ha svæði sem nefnist Útskák sem er upprunalega úr landi Kirkjulækjarkots.
Breytt er landnotkun úr landbúnaðarlandi (L) í íbúðarbyggð (ÍB) og frístundabyggð (F). Íbúðarbyggðin er með allt að fimm lóðum og
frístundabyggðin með allt að fimm lóðum.
Ystabæliskot – Aðalskipulagsbreyting
Um er að ræða um 20 ha spildu úr Ystabæliskoti L163695, þar sem landnotkun verður breytt úr landbúnaðarsvæði (L) í íbúðarbyggð
(ÍB). Gert verður ráð fyrir 5 íbúðarhúsum á svæðinu.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi
eystra.
Grund – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagið tekur til ríflega 10 ha spildu úr jörðinni Miðey land í A-Landeyjum, sem kallst Grund. Gert er ráð fyrir afmörkun þriggja
íbúðarlóða ásamt byggingarreitum auk byggingarreits utan um núverandi sumarhús á jörðinni.
Hamar – Deiliskipulagstillaga
Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir byggingu allt að 7 gistiskálum, hver um sig 35-60 m2 og aðstöðuhúsi allt að 250 m2.
Heildarbyggingarmagn getur verið allt að 700 m2. Mænishæð getur verið allt að 6 m.
Kirkjuhvoll – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan tekur til allt að 3.000 m2 stækkunar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli. Gert er ráð fyrir stækkun á
Heilsugæslustöðinni um allt að 370 m2 og allt að 24 íbúðum fyrir 60 ára og eldri. Íbúðirnar verða í raðhúsum og parhúsum á einni
hæð og er gert ráð fyrir að hluti þeirra verði með bílskúr.
Útskák – Deiliskipulagstillaga
Deiliskipulagstillagan nær til Útskákar, um 5 ha landspildu úr landi Kirkjulækjarkots í Fljótshlíð. Tillagan tekur til afmörkunar fimm
íbúðarlóða og fimm frístundalóða.
Ofangreindar deiliskipulagstillögur og tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 er hægt að skoða á
heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2020. Hverjum
þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn
athugasemdum til 8. apríl 2020. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra,
Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Jóga
60+ með Grétu kl. 12.15 og 13.30. Söngstund við píanóið með Helgu
kl. 13.45. Engin veitingasala vegna verkfalls en kaffi á könnunni. Bóka-
spjall með Hrafni kl. 15. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Velkomin.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13
til 16. Þar er boðið upp á stólaleikfimi og í heimsókn kemur Brynja
Baldursdóttir með umfjöllun úr Íslendingasögunum. Kaffi og með því
á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Stóladans með Þóreyju kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Menn-
ingarklúbbur kl. 11. Brids kl. 12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl.
12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13-14. Opið hús, t.d. vist og brids eða
bíó kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinna kl. 9-13.30. Bónusrútan kl. 13. Vatnsleikfimi kl.
14.30. Leshópur Boðans kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi með Rás 1 kl. 9.40. Námskeið í tálgun kl. 9.30-12. Spila-
dagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Matur og síðdegiskaffi fell-
ur niður ef það verður ekki búið að leysa verkfallið hjá Eflingu.
Breiðholtskirkja Kyrrðarstund kl. 12, hádegisverður kl. 12.45,
félagsstarf kl. 13.45.
Bústaðakirkja Hattadagur verður á öskudaginn, komdu með
skemmtilegt höfuðfat og það verða veitt verðlaun fyrir frumlegasta /
flottasta höfuðfatið. Gréta Jakobsdóttir næringarfræðingur hjá Heilsu-
borg kemur og fræðir okkur um mataræði á efri árum. Kaffið góða á
sínum stað, spilin og hugvekjan. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk
Bústaðakirkju.
Dalbraut 18-20 Samverustund með presti í setustofu kl. 14.
Dalbraut 27 Botsía í parketsal kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið og kaffisopi kl.
8.50-11. Púslum saman kl. 9-16. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12.
Tálgun kl. 13.30-16. Zumba fellur niður í dag sökum Íþrótta- og leikja-
dags eldri borgara í Íþróttahúsi Seljaskóla kl. 13-16.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Postulínsmálun kl. 9.
Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10.30. Bókband kl. 13.
Myndlist kl. 13.30. Hattaball með Vitatorgsbandinu kl. 14. Frjáls spila-
mennska kl. 13-16.30. Heitt á könnunni í setustofunni. Verið öll hjart-
anlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl.
13. Frí vatnsleikfimi kl. 7.10/7.50/15.15. Frí kvennaleikfimi Ásgarði kl.
9.30. Frí kvennaleikfimi Sjálandi kl. 10.30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11.
Leir Smiðja Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba salur Ísafold kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Qigong kl. 9-10, leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30.
Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-
16. Döff félag heyrnarlausra kl. 12.30-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn kennslutími, kl. 13
félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Gjábakki ATH! Zumba hefst aftur þriðjudaginn 3. mars kl. 13.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, gönguhópur kl. 10.30, postu-
línsmálun, kvennabrids og silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra
komna kl. 16 og 17, línudans fyrir byrjendur kl. 18.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn
og allir velkomnir. Botsía kl. 10–11. Hádegismatur kl. 11.30–12.30.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl. 8-12. Línudans kl. 11. Bingó
kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinnn kl. 16. Pútt Hraunkoti kl. 10-
11.30.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Frjáls spilamennska kl. 13.
Handavinnuhópur kl. 13-16. Verði verkfall verður ekki hægt að kaupa
mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni. Rútuferð verður frá félagsmiðstöð-
inni Hvassaleiti 56-58 kl. 12.30 á Íþrótta- og leikjadag eldri borgara í
Íþróttahúsinu Seljaskóla.
Korpúlfar Aðalfundur Korpúlfa kl. 13 í Borgum, venjuleg aðalfundar-
störf, Bræðrabandið og Korpusystkin. Qigong kl. 16.30 í Borgum, allir
velkomnir í ókeypis prufutíma.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista-
smiðja, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.
10.30-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 13.30, heimildarmyndasýning
kl. 16. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla kl. 9 og 13. Leir Skóabraut kl. 10.
Botsía Skólaabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund
í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna með
leiðbeinanda kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. áður
auglýst ,,gaman saman” á morgun fimmtudag er frestað. Nánar aug-
lýst fljótlega.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomn-
ir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Enskunámskeið kl. 10.30 og 12.30 Umsjón Margrét
Sölvadóttir. Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10, kaffi
og rúnnstykki eftir göngu. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórn-
andi Gylfi Gunnarsson.
með
morgun-
Nú u
þú það sem
þú eia að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA