Morgunblaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 26
AFP Flug Serge Gnabry flýgur glaður á Stamford Bridge í gærkvöld. Lewandowski búinn að skora ellefu mörk í keppninni á tímabilinu, í að- eins sex leikjum. Tapið er það stærsta hjá Chelsea á heimavelli í Evrópukeppni og þarf liðið á krafta- verki að halda á erfiðum útivelli í næsta mánuði. Ekki bætti úr skák að Marcos Alonso fékk beint rautt spjald fyrir að slá Lewandowski í andlitið og Jorginho fékk gult spjald fyrir mótmæli. Verða þeir báðir í banni í seinni leiknum. Jafnaði markamet Napoli og Barcelona skildu jöfn, 1:1, í Napoli. Dries Mertens kom Napoli yfir í fyrri hálfleik með 121. marki sínu fyrir félagið. Er hann nú markahæstur í sögu þess, ásamt Marek Hamsik. Í þriðja sæti í er Diego Maradona með 115 mörk. Antoine Griezmann jafnaði fyrir Barcelona á 57. mínútu og er spænska liðið því í fínni stöðu fyrir seinni leikinn á heimavelli. Markið hjá Griezmann er það fyrsta sem hann skorar á útivelli í keppninni í þrjú ár. Síðari leikir einvíganna fara fram 18. mars næstkomandi. Þýsk kennslustund í Lundúnum  Chelsea átti ekki möguleika gegn Bayern  Griezmann kom Barcelona til bjargar FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Bayern München vann sannfærandi 3:0-útisigur á Chelsea í fyrri leik lið- anna í 16-liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í gærkvöld. Staðan í leikhléi var markalaus, þrátt fyrir að Bayern hafi verið töluvert betri að- ilinn. Þýska liðið nýtti sér yfir- burðina í seinni hálfleik og keyrði yf- ir Chelsea með þremur mörkum. Bayern hefur unnið alla sjö leiki sína í keppninni til þessa og getur liðið farið alla leið, miðað við yfir- burðina sem það sýndi í gær. Serge Gnabry, sem fékk aldrei almennilegt tækifæri hjá Arsenal, skoraði tvö fyrstu mörkin og Robert Lewand- owski bætti við því þriðja korteri fyrir leikslok, en pólski framherjinn lagði upp bæði mörkin á Gnabry. Gnabry hefur skorað sex mörk í Meistaradeildinni á leiktíðinni og hafa þau öll komið í London, en hann gerði fjögur mörk á útivelli gegn Tottenham í riðlakeppninni. Þá er 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020 Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, fyrri leikir: Chelsea – Bayern München.................... 0:3 Serge Gnabry 51., 54., Robert Lewan- dowski 76 – rautt spjald: Marcos Alonso 83. Napoli – Barcelona.................................. 1:1 Dries Mertens 30. – Antoine Griezmann 57. England B-deild: Cardiff – Nottingham Forest.................. 0:1 Huddersfield – Bristol City..................... 2:1 Luton – Brentford.................................... 2:1 QPR – Derby ............................................ 2:1 WBA – Preston......................................... 2:0 Staðan: WBA 35 19 12 4 64:36 69 Leeds 34 18 8 8 49:30 62 Nottingham F. 35 16 11 8 46:33 59 Fulham 34 16 9 9 48:37 57 Brentford 35 16 8 11 57:31 56 Preston 35 16 8 11 49:40 56 Bristol City 35 15 8 12 49:51 53 Blackburn 34 14 9 11 50:40 51 Swansea 34 13 12 9 44:42 51 Cardiff 35 12 14 9 48:48 50 Millwall 34 12 13 9 40:39 49 QPR 35 13 7 15 53:59 46 Sheffield Wed. 34 12 9 13 44:41 45 Derby 35 11 12 12 43:48 45 Birmingham 34 12 9 13 45:52 45 Reading 34 11 9 14 41:38 42 Hull 34 11 8 15 48:53 41 Charlton 34 10 9 15 44:48 39 Huddersfield 35 10 9 16 41:56 39 Stoke 34 11 4 19 43:53 37 Middlesbrough 34 8 13 13 34:44 37 Wigan 34 8 10 16 34:50 34 Luton 35 10 3 22 42:70 33 Barnsley 34 7 10 17 41:58 31 C-deild: Sunderland – Fleetwood ........................ 1:1  Ísak Snær Þorvaldsson var allan tímann á varamannabekk Fleetwood.  Spánn Barcelona – Valladolid ....................... 43:28  Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna- hópi Barcelona. Danmörk GOG – Bjerringbro/Silkeborg........... 32:29  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson 4. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 16 skot.  Þráinn Orri Jónsson skoraði ekki fyrir Bjerringbro/Silkeborg. Ungverjaland Pick Szeged – Tatabánya................... 36:25  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1 mark fyrir Pick Szeged.   NBA-deildin Cleveland – Miami ................... (frl.)125:119 Philadelphia – Atlanta ..................... 129:112 Washington – Milwaukee ........ (frl.)134:137 Brooklyn – Orlando.......................... 113:115 Houston – New York........................ 123:112 Dallas – Minnesota........................... 139:123 Utah – Phoenix ................................. 111:131 L.A. Clippers – Memphis................... 124:97   Knattspyrnumaðurinn Hörður Ingi Gunnarsson, leikmaður ÍA í úrvals- deild karla, verður á reynslu hjá norska liðinu Start næstu vikuna, en þetta kom fram á heimasíðu ÍA í gær. Jóhannes Harðarson er þjálf- ari Start, sem tryggði sér sæti í efstu deild Noregs eftir umspil í byrjun desember. Hörður er uppal- inn hjá FH í Hafnarfirði en hann hefur leikið með ÍA undanfarin tvö ár. Bakvörðurinn á að baki 28 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað tvö mörk. Á reynslu í Noregi KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Mustad-höll: Grindavík – Skallagr ..... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Valur.......... 19.15 DHL-höllin: KR – Breiðablik.............. 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Haukar ........... 19.15 ÍSHOKKÍ Heimsmeistaramót kvenna, 2. deild B: Akureyri: Ástralía – Króatía .................... 13 Akureyri: Nýja-Sjáland – Úkraína..... 16.30 Akureyri: Ísland – Tyrkland .................... 20 Í KVÖLD! „Þetta tímabil hefur verið ákveð- inn rússíbani, ég skal alveg viður- kenna það, og það hafa komið tímar þar sem maður hefur hreinlega spurt sig af hverju maður er í þessu yfir höfuð. Það hefur verið gríðar- legt álag á manni og við erum bara nokkrir úr liðinu sem höfum ekki misst úr leik. Það hefur verið mikið um meiðsli hjá félaginu og þess vegna hefur ábyrgðin verið meiri á mér en oft áður. Eins hefur annar skotbakvörðurinn okkar verið mikið meiddur og það hefur því verið ákveðin pressa á mér líka. Ég held alveg örugglega að ég sé sá leik- maður í liðinu sem er búinn að spila flestar mínútur á tímabilinu og auð- vitað tekur maður því fagnandi. Það má hins vegar ekki gleymast heldur að maður er mennskur og líkaminn er ekki gerður úr stáli. Það hefur verið mikið um ferðalög hjá mér á tímabilinu þar sem maður gistir á mismunandi hótelum með mismun- andi kodda, nær að borða misvel og það tekur allt sinn toll af manni. Þetta er samt vinna sem maður vill vera í og það eru ákveðin forréttindi að spila körfubolta og ferðast um heiminn þannig að maður reynir að kvarta ekki of mikið.“ Ekki tilbúinn að taka ákvörðun Martin hóf atvinnumannaferil sinn í Frakklandi en hann gekk til liðs við Alba Berlín árið 2018. Hann hefur nú þegar verið orðaður við stærri lið, en nokkur tilboð hafa bor- ist í íslenska landsliðsmanninn, þrátt fyrir að það sé ennþá nóg eftir af tímabilinu. „Það hafa einhver tilboð borist en það er aðallega áhuginn sem maður hefur fundið mest fyrir kannski. Það eru margir að spyrja út í núverandi samning minn við Alba Berlín, hvað sé mikið eftir af honum, og annað slíkt en þessi mál fara iðulega í gegn- um umboðsmann minn. Það er ennþá bara febrúar þannig að ég er ekki alveg tilbúinn að taka neina ákvörðun um næstu skref á þessum tímapunkti. Það eina sem maður get- ur gert er bara að halda áfram að standa sig vel og þá kemur hitt af sjálfu sér. Ég er mjög einbeittur á að standa mig vel fyrir Alba Berlín og ég ætla mér að verða þýskur meist- ari með liðinu. Ég vil ná sem lengst og gera sem mest úr ferlinum og ég er alltaf með það á bak við eyrað. Ég hef hins vegar reynt að lifa í núinu, það hefur reynst mér vel, og ég reikna með því að halda því áfram. Það hefur alltaf verið draumur að spila á Spáni og ég hef sagt það margoft. Það hefur hins vegar stækkað sjóndeildarhringinn hjá mér að spila í Evrópudeildinni á þessari leiktíð og ég er ekkert bara að horfa til Spánar í dag. Markmiðið er fyrst og fremst að vera áfram í Evrópudeildinni, í liði sem er að berjast um titla, og það er það sem ég er helst að horfa á. Svo skiptir líka miklu máli að vera með þjálfara sem treystir manni og leggur ríka áherslu á það að fá mig til félagsins. Ég er bara 25 ára, ég á nóg eftir og eins og ég horfi á þetta þá á ég ennþá eftir að toppa. Það er þess vegna mikilvægt að skrefin séu rétt og maður má ekki festast of mikið í að horfa á einhverja peninga eða ein- hver nöfn á blaði,“ sagði Martin enn fremur í samtali við Morgunblaðið. Mikilvægt að taka rétt skref  Martin Hermannsson hefur átt frábæra viku með félagsliði sínu Alba Berlín Ljósmynd/@albaberlin Bestur Martin Hermannsson fór fyrir sínu liði í úrslitaleiknum gegn Oldenburg og var valinn bestur í leikslok. KÖRFUBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Þetta var vægast sagt góð vika en maður þarf líka að vera fljótur aftur niður á jörðina enda nóg eftir af tímabilinu,“ sagði bikarmeistarinn og körfuknattleikskappinn Martin Hermannsson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Martin og liðsfélagar hans í Alba Berlín unnu 89:67-sigur gegn Olden- burg í úrslitaleik þýsku bikarkeppn- innar í Berlín 16. febrúar síðastliðinn en Martin var stigahæstur í leiknum með 20 stig og var valinn besti leik- maður úrslitaleiksins. „Það mætti alveg segja að það sé ákveðnu fargi af manni létt að hafa unnið þennan bikarmeistaratitil. Síð- asta tímabil var erfitt þar sem við töpuðum alls þremur úrslitaleikjum og það sat þungt á manni. Að sama skapi var jákvætt að komast í alla þessa úrslitaleiki en þegar allt kem- ur til alls man enginn hver það var sem endaði í öðru sæti. Það var þess vegna hrikalega sætt, ekki bara fyrir okkur sjálfa, heldur líka fyrir alla í kringum liðið og stuðningsmennina auðvitað, að fá loksins titil í hús. Í þessum þremur úrslitarimmum sem við töpuðum var ósigurinn alltaf tæp- ur. Við töpuðum sem dæmi barátt- unni um meistaratitilinn í Þýskalandi 3:0-gegn Bayern en við töpuðum öll- um þremur leikjunum með minna en fimm stiga mun. Það var erfitt að ganga í gegnum þetta allt í fyrra en að sama skapi lærði maður líka hell- ing af þessum töpum. Ég reyndi að taka það með mér inn í úrslitaleikinn gegn Oldenburg núna og þessir ósigrar munu hjálpa manni í barátt- unni um þann stóra næsta vor.“ Tímabilið ákveðinn rússíbani Martin fylgdi eftir frammistöð- unni í bikarúrslitaleiknum með frá- bærri frammistöðu gegn Zenit frá Pétursborg í Evrópudeildinni þann 20. febrúar í Rússlandi þar sem Alba Berlín vann 83:81-sigur. Íslending- urinn skoraði 24 stig, gaf sjö stoð- sendingar og var valinn leikmaður 25. umferð Evrópudeildarinnar, en enginn Íslendingur hefur áður verið valinn leikmaður umferðarinnar í Evrópudeildinni, þeirri sterkustu í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.