Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 25

Morgunblaðið - 26.02.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020 Námskeið sem gefa réttindi um gjörvalla Evrópu Öll ökuréttindi - Öll vinnuvélaréttindi Klettagörðum 11 (ET-húsinu) - 104 Reykjavík - Símar 588 4500, 822 4502 - www.meiraprof.is - rektorinn@gmail.com Skjót leið til starfsmenntunar Skapaðu þér þitt eigið góðæri www.meiraprof.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VERTU EKKERT AÐ FARA ÚR. ÉG EYK BARA STYRKINN.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... framtíð okkar saman. Ó, JÁÉG ER EKKI Í VONDU SKAPI EN ÉG LÍT ÞANNIG ÚT ÉG LÍKA ÞAÐ GAMAN AÐ VERA KÖTTUR HÆGÐU Á ÞÉR, PABBI! ÞÚ KLÁRAR Á UNDAN OKKUR! ENGAR ÁHYGGJUR HUNANG… HANN Á EFTIR AÐ FÁ SÉR ÞRISVAR Í VIÐBÓT Á DISKINN! „ÞEIR ERU ÚR LEÐRI – ÞEIR MUNU VÍKKA.” gegnum hana og það er af nógu að taka þar. Við erum varla hálfnuð.“ Fjölskylda Eiginkona Jóhannesar er Rósa Björk Sveinsdóttir, f. 7.5. 1980, hag- fræðingur við Seðlabanka Íslands. Þau eru búsett í Reykjavík. For- eldrar Þóru eru Sveinn Þórarinsson, f. 23.7. 1940, verkfræðingur, og Ólöf Birna Blöndal, f. 11.11. 1942, mynd- listarmaður og tónlistarkennari. Þau eru búsett á Egilsstöðum. Börn Jóhannesar og Rósu eru Ólöf Halla Jóhannesdóttir, f. 21.11. 2008; Stefán Haukur Jóhannesson, f. 18.8. 2011; og Margrét Frida Blöndal Jóhannesdóttir, f. 17.4. 2016. Samfeðra systkin Jóhannesar eru Árni Haukur Jóhannesson, f. 30.10. 1983; Ingibjörn Jóhannesson, f. 26.7. 1989; Aron Melsteð, f. 12.8. 1993; Elín Huld Melsteð Jóhannesdóttir, f. 18.11. 1997; Sigrún Ósk Melsteð Jó- hannesdóttir, f. 28.5. 2001 Haukur Atli Jóhannesson, f. 17.9. 2007. Bróð- ir Jóhannesar sammæðra er Daniel Willemoes Olsen, f. 26.5. 1990. Foreldrar Jóhannesar eru Ingi- björg Halla Guttesen Fríðudóttir, f. 7.7. 1962, verkakona í Reykjavík, og Jóhannes Haukur Hauksson, f. 27.5. 1962, mjólkurfræðingur á Húsavík. Jóhannes Haukur Jóhannesson Guðný Sigurðardóttir húsfreyja á Grímsstöðum Karl Kristjánsson bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum Hulda Karlsdóttir húsfreyja á Húsavík Haukur Haraldsson mjólkurfræðingur á Húsavík Jóhannes Haukur Hauksson mjólkurfræðingur á Húsavík Ásdís Baldvinsdóttir húsfreyja í Klambraseli og á Húsavík Haraldur Jóhannesson bóndi í Klambraseli íAðaldal og verkamaður á Húsavík Gutti Guttesen trésmiður áAkureyri Óli Jógvan Guttesen málarameistari í Þórshöfn Kristian Guttesen ljóðskáld og kennari í Rvík Johanne Zachariasen húsfreyja á Mykinesi Ivar Zachariasen bjó á Mykinesi í Færeyjum Elías Zachariasen skósmíðameistari í Hafnarfirði og á Selfossi Frida Guttesen verkakona í Hafnarfirði Elsebeth Elena Guttesen húsmóðir í Þórshöfn Hjálmar Guttesen sjómaður í Þórshöfn í Færeyjum, sonur Jens Christians Guttesen (kallaður Kisan) málarameistara, myndlistarmanns og trompetkennara í Þórshöfn. Margt tónlistarfólk í Færeyjum er afkomendur„Kisunnar“, m.a. María Guttesen söngkona og Regin Guttesen píanóleikari Úr frændgarði Jóhannesar Hauks Jóhannessonar Ingibjörg Halla G. Fríðudóttir verkakona í Reykjavík Matthías Johannessen segir í bóksinni „Njála í íslenskum skáld- skap“ að séra Brynjólfur Halldórsson prófastur á Kirkjubæ (d. 1737) sé fyrsti verjandi Hallgerðar lang- brókar, sem nokkuð kveður að: Hallgerður gullhærða, góðættað fljóð, mætti ofkúgun, ýfð þegar auðsvipti nauðgiftist. Brynjólfur hagar vörn sinni kæn- lega, dregur hið jákvæða fram í dags- ljósið en sleppir hinu. Vildi þó ekki ganga lengra en sæmilegt þótti á öld rétttrúnaðarins: Á lesti þótti langbrók gjörn er lífs varð margra skaði flestu má þó finna vörn að fráteknum þjófnaði. Árni Böðvarsson (d. 1776) orti: Enginn hafi það eftir mér, allir heldur lofi víf. Máske hún hafi séð að sér og síðan hlotið eilíft líf. Í riti Jóns Helgasonar um Jón frá Grunnavík er smásaga um það, að Þorvaldur á Sauðanesi í Vöðlusýslu sem uppi var á 17. öld, hafi verið að kveða rímur af Gunnari á Hlíðar- enda. Honum þótti sagan eigi vel út- skýra skapnað hans og yfirlitu. Gunn- ar vitraðist honum þá milli svefns og vöku og kvað Þorvaldur vísu þessa: Andlitsfagur, augnablár, ásjón fegurðin vafði réttnefjaður, með rauðgult hár, rósir í kinnum hafði. Pétur Stefánsson birtir mynd af sér á Boðnarmiði með þessari stöku: Eitt má gera opinbert, þá ákvörðun niður letra; hárið er klippt og skeggið skert og skapið er miklu betra. Halldór Halldórsson svaraði og sagði: „Mér finnst eins og þarna sé stutt í brosið, eða hvað?“ Slíkri fegurð fögnum öll og fríðum vangamosa. Hér er státið stefjatröll er stundum sjá má brosa! Hallmundur Guðmundsson dró „Vorljóð úr vísnabíngnum“: Kæpir urt’ á kaldan stein á köldu vori ísa. Líkast verður aðeins ein, ort um hana vísa Að lokum er hér gömul vísa: Heims af kvölum hef ég nóg, harma bítur ljárinn, margt eitt bölið bætir þó blessaður rauði klárinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Gunnari, Hallgerði og fleira fólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.