Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.02.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2020  Norðmaðurinn Viktor Hovland fagnaði dramatískum sigri á opna Pu- erto Rico-mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi um helgina, en hann er aðeins 22 ára gamall. Þetta var fyrsti sigur hans á mótaröðinni og í fyrsta sinn sem kylfingur frá Noregi nær þeim árangri. Hovland var með eins höggs forystu fyrir lokahringinn og tryggði sér ekki sigur fyrr en á 18. og síðustu holu mótsins. Hann fékk þrefaldan skolla á 11. holu og virtust þá vonir hans úti en hann sneri taflinu snarlega við, fékk örn á 15. holu og tryggði sigur á mótinu með löngu pútti og fugli á 18. holu.  Rúnar Arnórsson hafnaði í 42. sæti á Lumine Hills Open-mótinu í Nordic Golf-mótaröðinni í golfi. Rúnar lék fyrstu tvo hringina á einu höggi undir pari, en hann lék þriðja hringinn á fimm höggum yfir pari í gær og lék hringina þrjá því samanlagt á fjórum höggum yfir pari.  Martin Schwalb hefur verið ráðinn þjálfari þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen. Hann tekur við af Kristjáni Andréssyni sem var rek- inn um síðustu helgi. Íslendingarnir Alexander Petersson og Ýmir Örn Gíslason leika báðir með Löwen. Schwalb gerði Hamburg óvænt að Evr- ópumeisturum árið 2013 og þýskum meisturum tveimur árum áður.  Georginio Wijnaldum, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, er ekki á förum frá félaginu strax en hann ætlar sér þó að klára ferilinn í heimalandinu. Wijnaldum á 18 mánuði eftir af samningi sínum við Liverpool og greindu enskir fjölmiðlar frá því í síðasta mánuði að hann gæti verið á förum frá Englandi en leikmaðurinn sagði það af og frá í viðtali við Sky Sports. Hann vill landa Englands- meistaratitlinum með Liverpool og skrifa svo undir nýjan samning í sum- ar.  Áhugi Manchester United á sóknar- manninum og fyrirliða Aston Villa, Jack Grealish, er orðinn mikill sam- kvæmt Manchester Evening News. United vill nýjan, skapandi sóknarsinn- aðan leikmann og er Grealish þar fyrstur á lista. United hafði áhuga á að kaupa Grealish í félagsskiptaglugg- anum í janúar en nýliðar Villa voru ekki tilbúnir að láta fyrirliðann fara enda liðið í harðri fallbaráttu í úrvalsdeild- inni.  Framkvæmdastjóri enska knatt- spyrnufélagsins Manchester United, Ed Woodward, segir félagið hafa lagt grunninn að því að verða sigursælt á nýjan leik undir stjórn Ole Gunnars Solskjær. „Við höldum áfram að endurnýja liðið, bæði með leik- mönnum sem við kaup- um og leikmönnum sem koma upp úr ung- lingastarfinu okkar. Grunnurinn að árangri til langs tíma er til staðar og við höldum ótrauðir að þeim mark- miðum með Ole,“ sagði Wood- ward í samtali við enska fjöl- miðla. Eitt ogannað FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur lært meira á undan- förnum mánuðum en á sex ára at- vinnumannaferli, en þessi 22 ára gamli miðvörður er að jafna sig eftir krossbandsslit. Mosfellingurinn gekk til liðs við enska B-deildarfélagið Reading árið 2016 en var lánaður til Viking í Noregi í ágúst 2018. Hann sló í gegn í Noregi, sem varð til þess að norska félagið keypti hann í desember 2018 eftir að því hafði tekist að tryggja sér sæti í efstu deild. Axel Óskar sleit hins veg- ar krossband eftir þrettán mínútna leik í fyrsta leik sínum með Viking í efstu deild, gegn Kristiansund þann 31. mars 2019, og missti því af öllu síð- asta tímabili með Viking. „Það eru tæpir tíu mánuðir síðan ég gekkst undir aðgerð vegna kross- bandsslita og áður en ég fór undir hnífinn var mér tjáð að ég yrði frá í kringum níu til tólf mánuði. Öll end- urhæfing hefur gengið afar vel og þar sem tímabilið byrjar ekki fyrr en í apríl tók ég þá ákvörðun fyrir áramót að taka minn tíma í að ná mér góðum og fara ekki of geyst af stað. Ég er byrjaður að æfa af fullum krafti með liðinu og fór í æfingaferð með því til La Manga á Spáni í síðasta mánuði. Ég er ekki enn byrjaður að taka þátt í spilköflum í lok æfinga en annars hef ég bara verið að æfa eins og aðrir leik- menn liðsins. Ég mun svo hitta lækn- inn sem skar mig upp á næstu dögum og þá fáum við lokasvar við því hvort ég sé í raun bara klár í slaginn með Viking. Ég vona að það samtal muni ganga vel og vonandi, ef allt gengur að óskum, get ég farið að einbeita mér al- farið að fótboltanum eftir þann fund.“ Lærdómsríkur tími Viking átti frábært tímabil í Noregi á síðustu leiktíð. Liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar og þá varð liðið norskur bikarmeistari eftir 1:0-sigur gegn Haugesund í úrslitaleik á Ulle- vaal-vellinum í Ósló. „Ég meiddist auðvitað eftir þrettán mínútna leik í fyrsta leik tímabilsins á síðustu leiktíð þannig að það er orðið ansi langt síðan ég spilaði heilan fót- boltaleik. Þetta hefur verið langur en jafnframt lærdómsríkur tími og ég hef lært að meta fótboltann á allt annan hátt. Ég ætla ekki að ganga svo langt að segja að þetta hafi verið skemmti- legur tími en ég er fullur tilhlökkunar núna yfir því að byrja að spila og get satt best að segja ekki beðið. Liðinu gekk hrikalega vel á síðustu leiktíð og það var gríðarlega mikil upplifun að sjá liðið verða bikarmeistari úr stúk- unni sem dæmi. Þegar ég kom fyrst til Viking á láni lék liðið í norsku B- deildinni og ég var að koma frá B- deildarliði á Englandi. Sjálfur var ég spenntari fyrir því að vera áfram á Englandi í sannleika sagt en svo áttaði maður sig á því hversu stórt þetta er hérna. Við Íslendingar vanmetum norsku deildina að mínu mati og hversu flott deild þetta er. Bikarsig- urinn gerði það að verkum að við munum spila í Evrópukeppni á næstu leiktíð og það er líka frábær tilhugsun fyrir mig að vera að koma til baka úr meiðslum fyrir svona stórt tímabil.“ Axel er meðvitaður um það að hann muni ekki ganga beint inn í byrj- unarlið Viking eftir árs fjarveru en ís- lenski unglingalandsliðsmaðurinn er meðvitaður um eigin hæfileika líka. „Ég er ekki að fara að labba beint inn í liðið en markmiðið er að sjálf- sögðu að brjóta sér leið inn í byrj- unarliðið. Ég á ekki von á því að byrja fyrsta leik en það kemur vonandi þeg- ar fer að líða á tímabilið. Ég mun spila síðustu tvo æfingaleiki liðsins fyrir tímabilið, gegn Start og Haugesund, og ég er strax farinn að hlakka til. Zlatko Tripic, sem var fyrirliði liðsins á síðustu leiktíð, er farinn til Tyrk- lands og Viljar Vevatne, sem spilar sem vinstri miðvörður, var gerður að fyrirliða eftir að Tripic fór. Ég hef spilað sem vinstri miðvörður hjá Vik- ing, sem er kannski ekkert verra fyrir mig, en miðvarðaparið á síðustu leik- tíð stóð sig frábærlega þannig að það verður enginn göngutúr í garðinum að koma sér aftur í liðið. Að sama skapi veit ég upp á hár hvað ég get og ég mun smella vel inn í þetta lið eftir nokkra leiki.“ Aldrei verið í betra formi Axel, sem er uppalinn hjá Aftureld- ingu í Mosfellsbæ, segir að liðsfélagi sinn hjá Viking á síðustu leiktíð, lands- liðsmaðurinn Samúel Kári Friðjóns- son, hafi hjálpað sér mikið á erfiðum tímum. „Það var þvílíkt sjokk í byrjun að hugsa til þess að ég yrði ekkert með næsta árið. Eftir leikinn gegn Kristi- ansund, þar sem ég meiddist eftir þrettán mínútur, fór ég í viðtal við Eurosport þar sem ég var spurður hvað ég yrði lengi frá. Ég svaraði því til að ég yrði frá í mesta lagi tvær vik- ur, sem reyndist síðan frekar fjarri lagi. Ég er bjartsýnn að eðlisfari en þetta var erfitt. Ég fékk hjálp frá íþróttasálfræðingi sem dæmi og það hjálpaði mér mikið. Það hjálpaði mér líka mikið að Samúel Kári Friðjóns- son, sem lék með Viking á síðustu leiktíð, hafði sjálfur lent í sambæri- legum meiðslum, en hann var að fá góðan samning í þýsku 1. deildinni á dögunum. Hann komst í gegnum þessi meiðsli og það sýndi mér per- sónulega hversu vel er fylgst með norsku úrvalsdeildinni og að það er ýmislegt hægt í þessu.“ Miðverðinum líður mjög vel í Nor- egi og segir að það sé mikill munur á Stavanger þar sem hann býr, og Reading, þar sem hann lék í þrjú ár. „Síðasta tímabil var algjört draumatímabil fyrir félag sem var í raun nýliði í efstu deild. Þetta tímabil verður mun erfiðara og samkvæmt fyrstu spám er okkur spáð þriðja til fimmta sæti. Þjálfarinn hefur hins vegar gefið það út að markmiðið sé fyrst og fremst að festa liðið í efstu deild á nýjan leik. Viking er stórlið í Noregi og eina ástæðan fyrir því að það féll fyrir þremur árum var fjár- hagsvandræði. Hvað mig sjálfan varð- ar lít ég ekki á tíma minn hjá Viking sem einhvern stökkpall en að sjálf- sögðu ætla ég mér að spila í sterkari deild einhvern tímann á ferlinum. Ég þarf hins vegar að gefa mér góðan tíma að ná fullri heilsu og fyrri styrk áður en ég fer að plana framtíðina eitthvað sérstaklega. Að sama skapi er ég í mun betra formi núna en þegar ég meiddist, bæði líkamlega og and- lega, og ég elska að vera í Stavanger. Skandinavía er frábær staður fyrir unga knattspyrnumenn og umhverfið hér er sem dæmi mun fjölskyldu- vænna en á Englandi. Þú færð mun meiri tíma til að þroskast og læra að verða betri knattspyrnumaður,“ bætti Axel Óskar við í samtali við Morgun- blaðið. Ný sýn eftir erfið meiðsli  Axel Óskar Andrésson nálgast endurkomu á knattspyrnuvöllinn eftir langa fjarveru Morgunblaðið/Eggert Endurkoma Miðvörðurinn Axel Óskar Andrésson hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands en hann á að baki 18 leiki fyrir U21 árs landsliðið. Fjölnir vann níunda sigur sinn á leiktíðinni í Hertz-deild karla í ís- hokkí í gærkvöld er liðið lagði SR á útivelli, 5:2. Staðan fyrir þriðju og síðustu lotuna var 2:2, en Fjölnis- menn voru sterkari á lokakaflanum. Þeir Úlfar Andrésson og Viktor Svavarsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Fjölni og Michal Stoklosa gerði eitt mark. Styrmir Maack og Gunn- laugur Þorsteinsson skoruðu mörk SR. SA, sem hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn, er í toppsæt- inu með 36 stig. Fjölnir er í öðru með 27 stig, en SR er án stiga. Fjölnismenn sterkari í lokin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Pökkur Það var hart barist á svell- inu í Laugardalnum í gærkvöld. Íslendingar voru áberandi er GOG vann 32:29-heimasigur á Bjerr- ingbro-Silkeborg í dönsku úrvals- deildinni í handbolta í gærkvöld. Viktor Gísli Hallgrímsson lék af- ar vel í markinu hjá GOG og varði 16 skot. Óðinn Þór Ríkharðsson átti einnig góðan leik fyrir GOG og skoraði sex mörk og þá skoraði liðs- félagi þeirra Arnar Freyr Arnars- son fjögur. Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað hjá Bjerringbro- Silkeborg, sem er í fjórða sæti með 27 stig. GOG fór upp í 30 stig og annað sætið með sigrinum. Íslendingar í stuði í Danmörku Morgunblaðið/Hari Stuð Óðinn Þór Ríkharðsson var í stuði og skoraði sex mörk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.