Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
Umsóknartímabil er frá 8. febrúar til 29. febrúar.
Sæktu um á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is. Þar færðu líka
nánari upplýsingar um störfin sem eru í boði.
Hlökkum til að sjá þig í sumar!
kopavogur.is
Fjölbreytt og spennandi sumarstörf
fyrir 18 ára og eldri
Við leitum að fólki í sumarstörf
í leikskólum,
vinnuskóla,
garðrækt,
umönnun fatlaðra,
á bæjarskrifstofurnar,
í upplýsingatæknideild
bæjarins,
sundlaugarnar
og fleiri skemmtilega
vinnustaði.
HVAÐ DREYMIR
ÞIG UM AÐ GERA
Í SUMAR?
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
• Ber ábyrgð á íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda-
málum í Snæfellsbæ
• Hefur umsjón með íþróttamannvirkjum í Snæfellsbæ
og sér um starfsmannahald í íþróttahúsi, sundlaug
og félagsmiðstöð
• Fjárhagsáætlanagerð og fjárhagslega umsýsla
• Skipulag hátíða á vegum Snæfellsbæjar í samvinnu
við markaðs- og kynningarfulltrúa
• Situr fundi íþrótta- og æskulýðsnefndar og
ungmennaráðs
• Stendur einstaka vaktir í íþróttahúsi og sundlaug
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Æskilegt að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafi
háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegum verkefnum
• Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahalds
• Frumkvæði og metnaður er kostur
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum
sveitarfélaga er kostur
• Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
• Góð almenn tölvukunnátta
Snæfellsbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í 100% starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og æskulýðsmálum, forvörnum og ungmennastarfi.
Við hvetjum alla, óháð kyni, til að sækja um starfið.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
Umsóknarfrestur til og með 28. febrúar nk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 1. apríl
Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á neðangreind netföng.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið. Umsækjendur eru beðnir að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í
umsókn sinni.
Öllum umsóknum verður svarað. Snæfellsbær áskilur sér rétt til að taka
eða hafna öllum umsóknum.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, kristinn@snb.is
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, lilja@snb.isSnæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is
Sjávarútvegsfyrirtækið
G.Run í Grundarfirði fékk
Forvarnaverðlaun VÍS á ráð-
stefnu sem tryggingafélagið
hélt nú í vikunni. G.Run, sem
er rótgróið fjölskyldufyr-
irtæki, er bæði í veiðum og
vinnslu á bolfiski. Gerir út
nokkra báta og opnaði í byrj-
un síðasta árs nýja og vel út-
búna fiskvinnslu. Sú er ein sú
tæknilegasta á landinu og af-
ar sterkt brunavarnarkerfi.
Að auki er fiskvinnslan útbúin
tæknilegum öryggis- og for-
varnabúnaði. Aðbúnaður og
öryggi starfsmanna er til
mikillar fyrirmyndar og end-
urspeglar umhyggju fyrir
starfsfólkinu, segir í frétt frá
VÍS.
„G.RUN á heiður skilið fyr-
ir áherslur sínar á forvarnir
og öryggismál og er svo sann-
arlega öðrum fyrirtækjum
góð fyrirmynd,“ segir Helgi
Bjarnason, forstjóri VÍS, í til-
kynningu.
Þjálfun, fræðsla,
afstaða og umgengni
Auk verðlauna til G.Run
veitti VÍS viðurkenningu til
tveggja fyrirtækja sem þykja
hafa staðið vel í forvarna- og
öryggismálum. Það voru
heildverslunin Garri og hús-
bílaleigan McRent. - For-
varnafólk VÍS heimsótti fyrir-
tækin og gerði úttekt á
lykilþáttum sem hafa sýnt sig
tengjast lágri slysatíðni; en
það eru m.a. afstaða til örygg-
ismála, þjálfun nýliða,
fræðsla, umgengni, bruna- og
innbrotavarnir.
Tryggt Frá vinstri talið: Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, Unn-
steinn Guðmundsson og Runólfur Guðmundsson frá G.Run og
Hafdís Hansdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu hjá VÍS.
Verðlaun frá VÍS
Forvarnir G.Run í góðum
málum Garri og McRent
Langt er í land að fjármögnun
Háskóla Íslands og annarra
hérlendra háskóla standist
samanburð við fjármögnun
háskóla á hinum löndunum á
Norðurlöndum. Þetta segir í
ályktun háskólaráðs HÍ sem
hvetur ríkisstjórn og Alþingi
til að endurskoða fimm ára
fjármálaáætlun fyrir 2021-
2025 og tryggja meiri fjár-
muni til skólanna svo hið nor-
ræna meðaltal náist 2025.
Í ályktuninni segir að á ald-
arafmæli HÍ árið 2011 hafi
verið stofnaður afmælissjóður
sem hafi að markmiði að
koma skólanum í röð fremstu
háskóla í heiminum og að
stuðla þannig að samkeppn-
ishæfni Íslands. Tilkoma
sjóðsins hafi verið afl til
margra góðra verka en betur
megi ef duga skuli. Fjárveit-
ingar verði að standa á pari
við það sem gerist meðal ann-
arra þjóða; það er ákveðið
hlutfall af landsframleiðslu
fari til háskólastarfs. - Mik-
ilvægum áfanga á þessari veg-
ferð hafi verið náð og nú sé
fjármögnunin sambærileg því
sem gerist að meðaltali hjá
háskólum í ríkjum OECD.
Hvað öðrum viðmiðum við-
víkur verði að bæta úr.
Norrænu viðmiði í fjármögnun
háskólastarfsins verði náð
Strætó bs. hefur sett af stað
nafnasamkeppni um nýtt raf-
rænt greiðslukerfi. Fyrir-
mynd kerfisins er þekkt í al-
menningssamgöngum um
allan heim þar sem kort eða
farsími er settur upp við
skanna þegar fargjaldið er
greitt í vagninum. Kerfi þetta
á Íslandi mun veita aðgang í
Strætó á höfuðborgarsvæðinu
ogborgarlínunni.
Áætlanir eru uppi um að
kerfið veiti aðgang að fleiri
samgöngumátum eins og
hjólaleigum og deilibílum og
jafnvel enn frekari þjónustu í
framtíðinni, segir í frétt frá
Strætó. Dæmi um þekkt
greiðslukerfi í öðrum borgum
heimsins eru Oyster-kortið í
London, Rejsekort í Kaup-
mannahöfn og OV-chipkaart í
Amsterdam.
Áætlað er að fyrsti hluti
greiðslukerfisins nýja verði
tekinn í notkun í lok þessa
árs. Opnað var fyrir tillögur í
nafnasamkeppnina í dag nú í
vikunni og er hún opin til og
með 21. febrúar. Sigurvegari
keppninnar fær frítt árskort í
Strætó á höfuðborgar-
svæðinu. Þegar tillögur eru
sendar inn er nauðsynlegt að
skrá nafn, símanúmer og net-
fang til að taka þátt. Hægt er
að senda tillögur í keppnina á
slóðinni straeto.is/is/
nafnasamkeppni. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strætó Þjónustan er í stöðugri þróun og breytingar örar.
Leita að nafni
á greiðslukerfi
Nýtt og rafrænt í stræó