Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
É
g held að ég hafi ákveðið það átta eða níu
ára gamall að mig langaði til að fara í
lögfræði,“ segir Markús spurður um
upphaf lögfræðiáhugans. „Faðir minn
var ekki lögfræðingur sjálfur og ekki móðir mín
heldur, en hins vegar kynntist maður barn að
aldri vinum þeirra sem voru menntaðir lögfræð-
ingar,“ segir Markús, en viðurkennir um leið að
þá hafi hann lítið vitað af þeim fjölbreyttu störf-
um sem lögfræðingar sinna. „Einhvern veginn
sat í mér að þetta væri það sem mig langaði til
að gera, og ég komst aldrei upp úr því fari.“
Eftir að Markús útskrifaðist úr Mennta-
skólanum við Tjörnina lá því beinast við að fara
í laganám. Þar komst hann fljótt að því hvert
hugur sinn stefndi innan lögfræðinnar. „Á þeim
tíma þurftu laganemar að „afplána“ tveggja
mánaða skylduvinnu við lögfræðistörf að loknu
öðru námsárinu af fimm. Ég hóf störf hjá bæj-
arfógetanum í Keflavík um sumarið, og endaði á
að vera þar í þrjátíu mánuði í stað tveggja,“ seg-
ir Markús.
Sú reynsla gaf Markúsi margt. „Þar kynntist
ég í raun lögfræðistörfum og má segja að maður
sá allt í einu allt annan enda á þessu en maður
fékk með því að sitja og lesa bækur. Þetta gerði
það meðal annars að verkum að ég sat afar lítið
kennslustundir á þriðja og fjórða námsárinu í
lagadeild, því þetta var í raun eins og verknám,“
segir Markús og bætir við að þegar svo kom að
próflestri hafi hann þá allt í einu séð hvað bæk-
urnar höfðu að segja um það sem hann hafði
kynnst af eigin raun. „Það var mjög sérstakt og
gerði þetta allt meira lifandi. Maður greip betur
gildi og tilgang fræðikenninganna þegar maður
var búinn að vinna og sjá raunhæfu vandamálin
sem nú var hægt að setja í þetta fræðilega sam-
hengi sem allt gekk út á.“
Á þeim tíma var ekki búið að skilja að fram-
kvæmdarvald og dómsvald í héraði. „Bæjarfóg-
etaembættið var eins og þetta var á þeim tíma,
nánast blanda af því sem er í dag sýslumanns-
embætti og héraðsdómur, og við það bættist
skattheimta og útibú Tryggingastofnunar, jafn-
vel tollgæsla. Þannig að þetta var afskaplega
fjölbreytt, og raunar ótrúlegt hvað kom upp af
skrítnum vandamálum,“ segir Markús.
Hliðarspor úr dómstólum í Háskólann
Markús lauk embættisprófi frá lagadeild Há-
skóla Íslands 1979 og hélt sama ár til fram-
haldsnáms í einkamálaréttarfari við Det Retsvi-
denskabelige Institut við Kaupmannahafnar-
háskóla og var þar í tæp tvö ár. Markús sneri
svo heim árið 1981 og hóf störf hjá borgarfóg-
etanum í Reykjavík og var þar til ársins 1988.
Markús hóf stundakennslu í lögfræði við Há-
skóla Íslands árið 1984, sem vatt fljótlega upp á
sig. „Eftir þrjú til fjögur ár af stundakennslunni
var ég nánast kominn með fangið fullt af
kennslu, og það orðið að fullu starfi.“ Það var
því að hrökkva eða stökkva og úr varð að Mark-
ús var skipaður prófessor í réttarfari við laga-
deildina. Markús segir bakgrunn sinn bæði í
námi og starfi hafa fallið vel að því fræðasviði.
„Þetta var nauðalíkt því sem ég var að fást við
áður, það er réttarfar, sem er í raun um máls-
meðferð fyrir dómstólum, fullnustu dóma og svo
allt þetta kerfi, gjaldþrotaskipti, dánarbússkipti
og svo framvegis. Fræðistörfin í Háskólanum
voru því nokkuð vægt hliðarspor frá dómstól-
unum, því ég hélt áfram að sinna því sem ég
hafði gert þar, bara nú frá fræðilegu hliðinni.“
Skömmu eftir að Markús varð prófessor féll
honum í skaut það verkefni að í raun gjörbreyta
íslensku réttarfari með aðskilnaði fram-
kvæmdarvalds og dómsvalds. „Það voru ham-
farir í Strassborg,“ segir Markús kíminn á svip,
en í október 1987 komst mannréttindanefnd
Evrópuráðsins að þeirri niðurstöðu að mál
manns, sem hafði verið dæmdur fyrir umferð-
arlagabrot hjá bæjarfógetanum á Akureyri,
væri tækt til efnismeðferðar, þar sem bæjarfóg-
etinn var jafnframt yfirmaður lögreglunnar sem
rannsakaði málið.
„Það var alveg ljóst að það þurfti að bylta
þessu kerfi,“ segir Markús en bætir við að ekki
hafi verið eining um þær breytingar sem þurfti
að gera. „Eins og alltaf vill verða, að þeir sem
eru starfandi í þessu umhverfi vilja kannski
ekki alltaf sjá breytingar á sínu lífi og það var
þungur róður á köflum.“
„Það var bæði pólitískur vilji til að gera þess-
ar breytingar og ekki síður var það óumflýj-
anlegt og þá var vandinn bara sá að koma þessu
saman þannig að kerfið gengi upp. Þetta var
heilmikil vinna sem stóð frá 1988 til 1992,“ segir
Markús, en vinna hans fólst í að semja laga-
frumvörp sem afgreidd voru eitt af öðru, en að-
skilnaðurinn tók fullt gildi 1. júlí 1992.
Aðbúnaðurinn verri í upphafi
Markús var skipaður hæstaréttardómari 1. júlí
1994, þá á fertugasta aldursári. En sá hann þá
fyrir sér að hann myndi sitja í rúmlega 25 ár, og
dæma í 4.885 málum? „Mig óraði nú ekki í eitt
augnablik fyrir að málin yrðu 4.885, manni datt
það varla í hug, en hitt var kannski auðveldara
að sjá fyrir sér.“ Markús rifjar upp að Þorsteinn
Geirsson ráðuneytisstjóri hafi heimsótt sig til að
afhenda skipunarbréfið. „Þegar hann afhenti
mér þetta, þá hafði ég á orði að nú myndi hefj-
ast „afplánun“ mín á 25 árum, tveimur mán-
uðum og 24 dögum, sem var tíminn frá skip-
uninni að afmælisdegi mínum nú á síðasta ári.
Ég gekk bara út frá því að yrði manni lífdaga
auðið, þá yrði þetta það jarðarmen sem ég
þyrfti að ganga undir.“
Markús segir að bakgrunnur sinn í réttarfari,
bæði úr fógetaembættunum og Háskólanum
hafi reynst sér vel. „Þegar maður fer að vinna í
þessu á þennan hátt þá skynjar maður hvað það
hefur raun mikið að segja til að létta manni lífið
að vera með fræðilegan bakgrunn líka af þessu
sviði lögfræðinnar, því að það þarf að máta
hvert einasta mál sem kemur upp við reglur um
málsmeðferð. Þetta er sú grein sem hvað virk-
ast reynir á í daglegum störfum dómara.“
Spurður um tilfinninguna þegar hann hóf að
dæma sín fyrstu mál í Hæstarétti segir Markús
hana hafa verið sérstaka. „Ég hafði aldrei hlust-
að á málflutning í Hæstarétti fyrr en ég settist
þar sem dómari. Ég hafði aldrei komið þangað
sem áheyrandi, sem er nokkuð sérstakt, því að
maður hefði haldið að einhvern tímann á lífsleið-
inni yrðu mál sem maður vildi heyra eða að ég
myndi fara þangað með nemendur mína, en það
artaðist bara ekki svo.“ Markús segir það hafa
því verið nokkur viðbrigði að sitja í fyrstu mál-
unum frá því sem hann var vanur úr fyrri störf-
um.
Þegar Markús hóf störf sem dómari var ekki
búið að reisa núverandi hús Hæstaréttar, held-
ur sat rétturinn í gamla dómhúsinu við Lind-
argötu, sem þá hafði verið í notkun frá árinu
1949. Markús segir aðstæður þar ekki hafa ver-
ið upp á það allra besta. „Það var tekið í notkun
skömmu eftir stríð, og var eflaust mikill munur
fyrir Hæstarétt að koma í það hús þá eftir að
hafa hírst í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg
frá stofnun 1920. Þetta hús var hannað fyrir
réttinn, og það má segja að dómsalurinn hafi
verið mjög glæsilegur, en skrifstofurnar voru
svona um 4-6 fermetrar,“ segir Markús. „Það
var gjarnan sagt í gamni að þær væru svo litlar
að ekki væri hægt að skipta um skoðun þar
inni!“
Dómhúsið sjálft var síðan kapítuli út af fyrir
sig. „Húsið leið fyrir það að því hafði ekki verið
haldið við í áratugi, þannig að allir gluggar voru
ónýtir með tilheyrandi fúkkalykt.“ Þá þurftu
menn að hlaupa til ef rigndi og forða dóm-
araskikkjunum undan því að lekablettur var
beint fyrir ofan skápinn sem þær voru geymdar
í. „Aðbúnaðurinn var hræðilegur og auðvitað
var búið að tala um það í langan tíma að gera
eitthvað en það sóttist seint,“ segir Markús og
rifjar upp að mörgum árum hafi verið eytt í
hvort koma ætti réttinum fyrir í Safnahúsinu
við Hverfisgötu.
Húsakostur Hæstaréttar stóð þó fljótt til
bóta. „Fyrsta skóflustungan að nýja húsinu var
tekin um sumarið, stuttu eftir að ég byrjaði. Svo
horfði maður bara á húsið rísa hægt og örugg-
lega út um gluggann á Lindargötu með löng-
unaraugum.“ Ekki var þó einhugur um stað-
setningu hússins og rifjar Markús upp að
einhverjir hafi haft áhyggjur af því hvernig
myndi takast til við að nýta það pláss sem þarna
var. „En það tókst að mínu mati alveg merki-
lega vel og eiginlega frá þeirri stundu sem mað-
ur steig fyrst inn í þetta hús á byggingarstigi
var maður alveg dolfallinn.“
Löng bið eftir úrlausn mála
– Hvað annað myndi koma fólki á óvart sem
þekkir ekki annað en núverandi ástand? „Maður
myndi helst segja að allt gekk miklu hægar,“
segir Markús og bætir við að í aðskilnaðarferli
framkvæmdar- og dómsvaldsins var Hæstirétt-
ur geymdur, og ekki farið að huga að nýjum
reglum um málsmeðferð þar
fyrr en árið 1993. Sú lagasetn-
ing tók gildi 1. júlí 1994, sama
dag og Markús var skipaður
sem dómari.
„Það létti mjög á en þær
reglur sem höfðu verið voru
líklega fengnar að arfi frá
Landsyfirrétti og jafnvel
Hæstarétti Danmerkur býst
ég við en allt var svifaseinna,“
segir Markús. Meðal annars hafi undirbúningur
mála áður en hægt var að flytja þau fyrir dómi
tekið mun lengri tíma. „Og málflutningurinn var
miklu seinlegri, menn tóku heilu dagana undir
eitt mál.“
Þar sem hinar nýju málsmeðferðarreglur
tóku gildi sama dag og Markús var skipaður í
embætti kynntist hann því þó ekki af eigin raun.
„En maður sá menjarnar lengi á eftir. Þetta
varð til þess að þegar ég byrjaði við réttinn var
skelfilegur málahali,“ segir Markús. „Elstu mál-
in sem ég sat yfir veturinn 1994-95 höfðu beðið,
tilbúin til málflutnings, í á fimmta ár,“ segir
Markús og tekur eftir undrunarviðbrögðum
blaðamanns. „Þú getur rétt ímyndað þér hvaða
afleiðingar það hefur fyrir málsaðila að vera
með mál sín í óvissu í allan þennan tíma.“
Þá hafi einhverjir séð sér leik á borði á tímum
neikvæðra vaxta og áfrýjað málum, með þeim
afleiðingum að kröfur voru að engu orðnar þeg-
ar dómur loksins féll í Hæstarétti nokkrum ár-
um síðar. „Þannig að þetta var mjög vont
ástand, en sem betur fer tókst að vinna þetta
mjög fljótt upp,“ segir Markús.
Málahalinn var horfinn að mestu eða öllu leyti
árið 1998. „Það var mjög skrítin stund í kring-
um páskana 1999, að þá gerðist það í fyrsta sinn
svo elstu menn mundu, að engin mál voru til,
þannig að fella þurfti niður málflutning í um
tvær vikur aukalega í kringum páskafríið. Það
þótti mikil hátíðarstund.“
Tvöföldun mála á 25 árum
Um það leyti sem Markús hóf störf við Hæsta-
rétt bárust til hans um það bil 400 mál á hverju
ári, en þeim átti eftir að fjölga upp í rúmlega 850
mál á ári. „Það þarf samt aðeins að taka með í
reikninginn að það voru tvenns konar mál í
Hæstarétti, annars vegar áfrýjanir og hins veg-
ar kærumál, en segja má að munurinn liggi í því
að úrskurðir sem gangi í tengslum við máls-
meðferð í héraðsdómi sæta kæru, en málalykt-
irnar, efnisdómurinn sæti
áfrýjun.“
Markús segir kærumál eðli
sínu samkvæmt oftar en ekki
fjalla um mjög afmörkuð efni
sem séu vanalega fljót-
afgreidd. Í áfrýjunarmálum
fylgi hins vegar allt litróf
heimsins, þar sem mörg deilu-
eða úrlausnaratriði séu til um-
fjöllunar og allt annað við að
eiga en kærumálin. „Aukningin sem verður í
þessum málum er hlutfallslega miklu meiri í
kærumálum, þannig að það voru fljótafgreiddu
málin sem spruttu meira upp,“ segir Markús,
sem áætlar að þegar hann hóf störf við dóminn
hafi áfrýjunarmál verið meira en helmingur
þeirra mála sem rétturinn tók fyrir, en það hafi
snúist við og mun meira.
– En hvað veldur þessari aukningu? „Heim-
urinn hefur breyst mikið á 25 árum en ég myndi
halda að málin þá hafi verið miklu einfaldari al-
mennt séð en þau eru nú,“ segir Markús. Hann
segir ýmislegt spila þar inn í, meðal annars
lagasetningu sem sé nú orðin mun ítarlegri og
nákvæmari. „Tilhneigingin í lagasetningu hefur
orðið sú að reyna að sjá við sem flestum vanda-
málum sem sprottið gætu upp, en um leið verð-
ur það til að búa til fleiri atriði sem menn geta
farið að þræta um,“ segir Markús. Þá sé aukinn
málafjöldi einnig afleiðing af aukinni velmegun
samfélagsins þar sem hagsmunir verði meiri og
fleiri tegundir eigna og viðskipta leiði af sér
fleiri deilumál.
„Í raun má segja að það sé nokkuð dæmigert
að þegar ný yfirgripsmikil löggjöf kemur til, að
þá fari alltaf í gang fasi aðlögunar og jafnvel til-
raunastarfsemi þar sem þurfi að reyna á deilu-
atriðin, og við þetta bætist að það sé orðin gríð-
arleg fjölgun í hópi lögfræðinga.“
Markús rifjar upp að þegar hann útskrifaðist
tóku 35 lögfræðingar prófið og úr einum há-
Forréttindi að
kynnast samfélaginu
úr sæti dómarans
Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, lét af störfum í október síðastliðnum eftir
að hafa starfað sem hæstaréttardómari í rúm 25 ár. Á þeim tíma dæmdi Markús í 4.885 málum.
Þá sat hann sem forseti Hæstaréttar í tvígang, á árunum 2004-2005 og 2012-2016. Áhrif Markúsar
á störf Hæstaréttar og íslenskt réttarfar eru umtalsverð og ræddi Morgunblaðið því við Markús
um starfsferil hans í tilefni af hundrað ára afmæli Hæstaréttar.
„Mig óraði nú ekki í eitt
augnablik fyrir að málin
yrðu 4.885, manni datt
það varla í hug, en hitt
var kannski auðveldara
að sjá fyrir sér.“
Markús Sigurbjörnsson var skipaður í
Hæstarétt 1. júlí 1994. Hann sat þar í 25 ár
og hafði umtalsverð áhrif á íslenskt réttarfar.