Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 11

Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 11
vitsmuni fram til þess, að dóms- úrslitin verði ábyggileg og réttlát, enda er þetta bein skylda vor, og þá hefi eg jafnframt þá öruggu von, að vér munum ávinna dómstólnum traust alþjóðar, þannig að almenn- ingur gjarnsamlega leggi málaefni sín undir dóm réttarins, og uni úrslit- um þeim er þau fá þar.“ Fögnuður í hjörtum allra Af málflutningsmönnum voru við- staddir þeir Sveinn Björnsson, Egg- ert Claessen, Lárus Fjeldsted, Guð- mundur Ólafsson, Gunnar Sigurðsson, A.V. Tulinius, Jón Ás- björnsson, Björn Pálsson, Páll Pálmason og Sigfús Johnsen. Féll það Sveini í skaut að ávarpa réttinn fyrstur málflutningsmanna, en hann varð síðar á lífsleiðinni fyrsti sendi- herra Íslands, ríkisstjóri eftir her- nám Danmerkur 1940 og fyrsti for- seti lýðveldisins. Hóf Sveinn mál sitt svo: „Virðulegi Hæstiréttur! Háu dómendur! Þessi stund mun jafnan talin merk- isstund í sögu íslenzku þjóðarinnar. Sú stund er æðstu dómendur í ís- lenskum málum taka aftur sæti til dóma á fósturjörð vorri. Þessi atburður sem hér á sér stað nú í dag, hlýtur að vekja fögnuð í hjörtum allra Íslendinga. Hann er einn af áþreifanlegu vottunum um að vér höfum aftur fengið fullveldi um öll vor mál.“ Að lokinni ræðu Sveins þakkaði dómstjóri honum fyrir ræðuna. Var svo gengið til dagskrá og dómur kveðinn upp í fimm málum. Var setn- ingarathöfninni þar með lokið og gestir gengu á brott. Sagði í Morgunblaðinu svo: „At- höfnin fór öll fram með þeirri viðhöfn, er sæmir svo merkum viðburði, þá er æðsta dómsvald í íslenzkum málum er aftur flutt inn í landið.“ Frá þeirri merkisstundu verða á morgun liðin eitt hundrað ár, og hef- ur Hæstiréttur gengið í gegnum ým- islegt á þeirri tíð. Merkasta breyt- ingin í þeim efnum varð fyrir tveimur árum, þegar Landsréttur tók við hlutverki Hæstaréttar sem áfrýj- unardómstóll, og rétturinn sjálfur varð að fordæmisgefandi dómstól sem æðsta dómstig landsins. Hvernig það mun takast til verður tíminn einn að leiða í ljós, en víst er að Hæstirétt- ur hefur skilað því hlutverki sínu, að vera lokaorðið í íslenskum málum, af samviskusemi og dugnaði. Morgunblaðið/Hari Aðstandendur sakborninga faðmast fyrir utan Hæstarétt eftir að rétturinn ákvað að sýkna þá við endurupptöku málsins árið 2018. Fyrri dómur Hæstaréttar í málinu féll árið 1980. Morgunblaðið/Golli Feðgarnir Björn Sigurðsson og Ólafur Björnsson gátu glaðst eftir að Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms í svonefndu þjóðlendumáli. Morgunblaðið/Ómar Þinghöld Hæstaréttar hafa verið í heyranda hljóði frá stofnun. Margir höfðu áhuga á að fylgjast með niðurstöðu dómsins þegar kom að gildi neyðarlaganna. Morgunblaðið/Ásdís Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, og Ragnar Aðalsteinsson lög- fræðingur eftir lok málflutnings í Öryrkjamálinu. LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.