Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 13
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 13 Eftir Aðalheiði Jóhannsdóttur, forseta lagadeildar Háskóla Íslands Þ egar Lagaskólinn var stofnaður á Ís- landi árið 1908 náðist fram langþráð takmark og baráttumál sem var sam- ofið sjálfstæðisbaráttu Íslendinga allt frá miðri 19. öld, en skólinn varð síðan að laga- deild Háskóla Íslands við stofnun Háskólans árið 1911. Þannig skapaðist grundvöllur fyrir mótun og uppbyggingu kennslu og rannsókna í íslenskri lögfræði sem meðal annars stuðlaði að því að embættismenn í landinu, þar á meðal dómarar, hefðu íslenskt lagapróf. Segja má að það hafi verið rökrétt skref í átt til fullveldis og um leið mikilvæg forsenda þess að flytja æðsta dómsvald til íslenskrar stofnunar. Með stofn- un Hæstaréttar samkvæmt lögum nr. 22/1919, sem komu til framkvæmda 1. janúar 1920, var æðsta dómsvald í íslenskum málum flutt frá Hæstarétti Danmerkur til Hæstaréttar Ís- lands. Eins og segir í upphafsgrein laganna: „Stofna skal hæstarjett á Íslandi, og er dóms- vald hæstarjettar Danmerkur í íslenskum mál- um jafnframt afnumið.“ Varla þarf að koma á óvart að Einari Arnórssyni, sem þá var alþing- ismaður og prófessor við lagadeild Háskóla Ís- lands og síðar dómari við Hæstarétt Íslands, hafi verið falið að semja frumvarpið sem varð lítið breytt að framangreindum lögum nr. 22/ 1919. Eins má segja að það hafi verið táknrænt að Lárus H. Bjarnason sem hafði verið skip- aður forstöðumaður Lagaskólans 1908 og varð síðar prófessor við lagadeild Háskólans skyldi vera í hópi þeirra fimm manna sem skipaðir voru hæstaréttardómarar þegar dómstóllinn tók til starfa. Í upphafi stofnuðust því sterk bönd á milli lagadeildar Háskóla Íslands og Hæstaréttar, sem birtist til dæmis í því að formlegur afmælisdagur Hæstaréttar sem við fögnum nú og miðast við fyrsta þinghald rétt- arins 16. febrúar 1920, hefur um áratuga skeið verið sérstakur hátíðisdagur Orators, félags laganema við deildina Mikilvægur þáttur í laganámi við lagadeild Háskóla Íslands er að tileinka sér dómafram- kvæmd Hæstaréttar, en dómsniðurstöður hans eru mikilvæg fordæmi sem skýra og þróa réttinn á öllum réttarsviðum og veita löggjaf- anum og öðrum stjórnvöldum aðhald og leið- beiningu. Þá þurfa laganemar að hafa vald á réttarfari, bæði á sviði einkamála og sakamála, og gera sér grein fyrir hverjar séu heimildir dómstólsins, hlutverk dómara og hvernig stað- ið er að málflutningi. Erfitt er að ímynda sér laganám, lögfræðilegar rannsóknir eða kennslu í lögfræði án þess að hafa tileinkað sér ákveðna færni í að greina forsendur og nið- urstöður Hæstaréttar í dómsmálum. Kenn- arar og nemendur heimsækja dómstólinn iðu- lega, einkum þegar athyglisverð og stefnumarkandi mál eru flutt fyrir réttinum. Það er ávallt sérstök upplifun fyrir laganema að hlýða á málflutning fyrir Hæstarétti, enda starfsemin og umgjörðin formföst og virðuleg og rósemdin hvílir yfir hlýlegri byggingu rétt- arins og réttarsölum. Óhætt er að fullyrða að tengsl Hæstaréttar Íslands og lagadeildar Háskóla Íslands hafi verið mikil og margvísleg í gegnum tíðina og afar gefandi. Fjölmargir akademískir starfs- menn deildarinnar hafa verið skipaðir dóm- arar við Hæstarétt Íslands og þannig flutt með sér djúpa fræðilega þekkingu inn í raðir dóm- ara á nær öllum sviðum réttarins. Má þar nefna auk Einars Arnórssonar og Lárusar H. Bjarnasonar í árdögum dómstólsins eins og fyrr var nefnt, meðal annars Ármann Snæv- arr, Arnljót Björnsson, Eirík Tómasson, Guð- rúnu Erlendsdóttur, Magnús Torfason, Mark- ús Sigurbjörnsson, Pál Hreinsson, Viðar Má Matthíasson, Þór Vilhjálmsson, Þorgeir Ör- lygsson og Þórð Eyjólfsson. Til skamms tíma voru prófessorar í lögum meðal lögbundinna varadómara við Hæstarétt. Hæstaréttardóm- ararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson, gegna til viðbótar dómarastarfinu akademísku hlutastarfi við lagadeild. Nokkrum fyrrver- andi hæstaréttardómurum hefur verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Háskól- ans. Þessu til viðbótar hafa starfandi og fyrr- verandi dómarar Hæstaréttar, í gegnum tíð- ina, iðulega tekið þátt í kennslu ýmissa námsgreina við lagadeild, verið prófdómarar í mörgum námsgreinum ásamt því að taka sæti dómara í málflutningskeppnum laganema. Allt þetta skiptir miklu máli í þjálfun laganema til að takast á við fjölbreytt lögfræðistörf, þar með talið innan dómstólanna eða sem málflytj- endur, auk þess að styrkja innra starf laga- deildar að öðru leyti. Hafa dómarar við Hæsta- réttar með öllum þessum störfum sínum í þágu lagadeildar því veitt deildinni mikilvægan fag- legan stuðning í 100 ár. Hæstarétti Íslands og starfsmönnum hans eru færðar bestur árnaðaróskir á þessum tímamótum. lagadeild Háskóla Íslands væntir þess að hið góða samstarf og samskipti sem deildin hefur átt við Hæstarétt Íslands á lið- inni öld haldi áfram til framtíðar. Hæstiréttur Íslands og lagadeild Háskóla Íslands Ljósmynd/Háskóli ÍslandsAðalheiður Jóhannsdóttir, forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Lagadeild Háskóla Íslands er um margt samofin sögu Hæstaréttar og kynnast nemendur dómstörfum. Eftir Hervöru Þorvaldsdóttur, forseta Landsréttar H æstiréttur Íslands fagnar aldarafmæli sínu og það er full ástæða til þess að samfagna réttinum á þessum miklu tímamótum. Íslenskt þjóðfélag hefur tekið stakkaskiptum á starfstíma réttarins. Ís- lensk heimastjórn var ekki gömul þegar tekið var að vinna að stærsta formlega skrefinu í átt til þess að taka yfir fyrirsvar allra meginmála ríkisins með samningi við Danmörku um full- veldi landsins og þeim samningi fylgdi vegvísir að því hvernig lokaskrefið skyldi stigið, stefndi hugur og þjóðarvilji til þess, sem varð, góðu heilli þótt aðstæðurnar gæti enginn séð fyrir; Danmörk hersetin, heimsstyrjöld hafði geisað í nokkur ár og Ísland reyndist ekki eins langt frá heimsins vígaslóð og skáldin bundu vonir við. Ísland hafði aðeins státað af fullveldi í örfá misseri þegar íslenskur Hæstiréttur var tekinn til starfa og tilkoma réttarins var þýðingarmik- ill áfangi á leið landsins á vit nýrra tíma, og um leið heitstrenging um að allar þær kvaðir og öll hin mikla ábyrgð sem fullveldi ríkis fylgja skyldu menn axla af fullum styrk og alvöru og gefa engan afslátt þótt ytri vanefni nýfrjálsrar þjóðar væru vissulega til staðar. Landsmenn voru á sama tíma minntir ræki- lega á það að um sumt yrðu þeir enn og um alla tíð að slást við óvænt ofurefli erfiðra skilyrða. Kötlugos, frostavetur og hin miskunnarlausa spænska veiki, sem lagðist á marga og ekki síst ungt fólk sem varð margt undir í baráttu við pestina. Svo ekki voru þetta endilega upplagðir tímar fyrir stórvirki manna. En nú öld síðar er alþjóðlega viðurkennt að Ísland sé komið í fremstu röð ríkja, og er þá nánast sama á hvaða mælikvarða er horft. Og þjóðfélagsgerðin hefur heldur betur breyst, er bæði fjölbreytt og flókin. Leikreglunum, sem nú gilda í landinu um stórt og smátt, hefur fjölgað mjög og regluverkið þenst út, svo mörg- um þykir nóg um. Stundum er fullyrt að land- inn sé þrætugjarn og fylginn sér um sinn rétt. Hvað sem um það má segja þurfa úrræðin til að leysa úr efnislegum deilum og árekstrum við réttarreglur að vera ljós, og fallin til þess að skapa traust á vönduðum niðurstöðum þannig að langflestir uni úrslitum bærilega, þótt seint taki allir vel dómum sem þeim þykir halla á sinn málstað. En skapi dómskerfið traust til lengri tíma unir þjóðin sem heild bærilega málalokunum og einnig flestir þeir ein- staklingar sem undir urðu, þegar tímar líða frá. Hæstiréttur Íslands hefur löngum átt loka- orðið, þótt aldrei hafi öll mál aðila átt skilyrð- islausa kröfu til að ganga þangað til dóms. En það á við um mörg meiriháttar mál, hvort sem þau eru einkaréttarlegs eðlis eða á sviði opinbers réttar, einkum áður ódæmd álitaefni. Svo var loks komið þegar aldarafmæli Hæstaréttar nálgaðist að málafjöldinn, sem til hans gat með réttu farið, var að verða óviðráð- anlegur. Því var ráðist í kerfisbreytingu á dómskerfinu og um það náðist bærileg sátt og má segja að hún hafi náðst í gegn á tiltölulega skömmum tíma. Áfram á Hæstiréttur lokaorðið þótt mál hafi þá þegar gengið í gegnum tvö dómstig og málum sem til hans berast hafi af þeim sökum fækkað verulega. En óhætt er að fullyrða að viðfangsefni réttarins séu um margt jafn mikilvæg og áður þótt málafjöldinn hafi skroppið saman, eins og að var stefnt með breytingunum. Engin ein fullyrðing fengi sam- þykki allra í þessu landi. En ég leyfi mér að halda því fram á þessu aldarafmæli Hæsta- réttar Íslands að hann hafi reynst sú stofnun sem að var stefnt í upphafi. Hann hafi risið und- ir þeim verkefnum sem honum voru falin og þótt umfangið yxi ár frá ári og þungi vinnunnar, sem að hluta til var mætt með fjölgun dómara, kiknaði rétturinn aldrei undan álaginu og lauk jafnan hverju dagsverki sínu af ábyrgð og festu. Landsréttur skynjar vel sína miklu ábyrgð sem því fylgir að veita lokasvar í mjög stórum hluta þeirra mála sem til dómstólanna ratar. Ég veit að ég tala fyrir munn allra dómara rétt- arins þegar ég færi hugheilar kveðjur til Hæstaréttar á hátíðarstundu og það fylgir því öryggi fyrir almenning í landinu og fyrir hin dómstigin tvö að til atbeina Hæstaréttar getur enn komið þegar ástæður kalla á það. Hann veitir þá lokaúrskurð eins og áður og um leið varðar hann með þeim ákvörðunum veginn sem héraðsdómstólar og Landsréttur fylgja. Heillaóskir og kveðjur frá Landsrétti, dómurum hans og öðrum starfsmönnum Hervör Þorvaldsdóttir, forseti Landsréttar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.