Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Blaðsíða 13
landi og allt í einu vildi Mikki Mús vera vinur
okkar!“ segir Jónas.
Munaðarlaus börn á Grænlandi
Þættirnir eiga sem fyrr segir að gerast á
Grænlandi en þangað höfðu vinirnir aldrei
komið.
„Við vorum fljótir að fatta að það væri lítils-
virðing og hreinlega bara dónaskapur að skrifa
um þjóðfélag í landi sem við höfðum ekki heim-
sótt. Þannig að við ákváðum að fara til Græn-
lands. Okkur var boðið til Uummannaq, sem er
bær á norðvesturströnd Grænlands. Þar
kynntumst við konu sem rekur munaðarleys-
ingjahæli og þangað fórum við með hljóðfærin
til að spila fyrir börnin,“ segir Jónas.
„Við vorum þarna í janúar og þegar við ætl-
uðum heim kom stormur. Og við sátum fastir
þarna lengi! Ég varð þrítugur þarna, þrett-
ánda janúar. Birkir 29 ára þann fjórtánda.
Krakkarnir bökuðu fyrir okkur og héldu veislu
og þetta var eftirminnilegasta afmæli sem ég
hef átt,“ segir Jónas.
„Jónas var engu að síður búinn að bjóða til
mikillar veislu heima. Það var fólk mætt alla
leið frá Noregi,“ segir Birkir.
„Já, það var svaka partí en ég komst ekki
sjálfur,“ segir Jónas og hlær.
„Við fórum svo oftar til Grænlands með
Hróknum en þessi ferð og það að vera þarna á
þessu munaðarleysingjahæli hafði djúpstæð
áhrif á okkur báða. Sem dæmi þá hætti Jónas í
vinnu sinni stuttu seinna. Það breyttist ein-
hvern veginn lífssýnin.“
Myrkfælni í draugahúsi
Þið þraukuðuð báðir í gegnum drepleiðinlega
lögfræði, að ykkar sögn, og enduðuð báðir í
handritsgerð að sjónvarpsseríum. Eruð þið
búnir að finna ykkar hillu?
„Já, á meðan við fáum að vera á þessari hillu
erum við mjög ánægðir!“ segir Jónas og Birkir
er hjartanlega sammála.
„Og ég finn hvað ég er tilbúinn að leggja
mikið á mig til að fá að stússast í þessu áfram.
Því hinn möguleikinn er einhvern veginn að
gráta ofan í lögfræðibók,“ segir Birkir.
„Svo erum við ógurlega heppnir að hafa átt
hvor annan að í þessu; þá er maður ekki einn,“
segir Jónas.
„Við erum orðnir óvenjugóðir og nánir vinir.
Það er virkilega dýrmætt traust á milli okkar,“
segir Birkir.
Nú eru þið báðir Ingólfssynir, halda ekki
sumir að þið séuð bræður?
„Jú, allir nema þeir sem halda að við séum
hjón,“ segir Birkir.
„Já, það hefur gerst ítrekað á fundum er-
lendis að þegar sést sama eftirnafn þá er pönt-
uð hjónasvítan fyrir okkur. Og það hefur
stundum verið hvíslað að okkur þegar við er-
um að innrita okkur á hótel, „sko, þetta er al-
veg frjálslynt hótel, þið megið vera saman í
herbergi“, segir Jónas.
„Þá segi ég alltaf, já, takk fyrir. En Jónas
vill það ekki. Ég er nefnilega myrkfælinn. Jón-
as hefur ekki alveg skilning á því,“ segir Birkir
og Jónas hlær dátt.
„Það var sérstaklega erfitt á Grænlandi því
þegar dvölin þar var hálfnuð komst ég að því
að við værum í draugahúsinu í bænum. Og eft-
ir það svaf ég eiginlega ekkert. Draugar eru
eitt, en grænlenskir draugar eru ógnvekjandi
á allt öðru kalíberi.“
Klúðraði afmælisgjöfinni
Hvað er framundan?
„Við vorum gríðarlega þreyttir eftir þessa
miklu keyrslu en nú er neistinn og starfs-
þrekið að koma aftur. Við erum að kasta upp
boltum fyrir nýjar hugmyndir. Mögulega
vinnum við að seríu tvö af Ráðherranum eða af
Thin Ice, en ekkert er enn ákveðið í þeim mál-
um,“ segir Birkir.
„Svo var Jónas að eignast barn; litla stúlku,“
segir Birkir.
„Hún heitir Góa Björk; Góa eftir móður
minni og Björk eftir Birki,“ segir Jónas.
„Ég hefði aldrei trúað hvað mér þótti það
fallegt,“ segir Birkir.
Áður en við sláum botninn í samtalið spyr
blaðamaður hvort þeir eigi ekki góða sögu af
settinu á Thin Ice. Birkir heldur það nú.
„Það fyrsta sem ég gerði á setti fór úrskeið-
is. Tökur hófust einmitt á afmælisdegi mínum,
14. janúar. Jónas gaf mér þá afmælisgjöf að ég
fengi að segja „action“ í þessari allra fyrstu
töku. Hann hafði talað við leikstjórann og
komið því í kring. Leikstjórinn kom til mín og
sagði að sér fyndist heiður að geta veitt mér þá
afmælisgjöf. Hjartað á mér sökk í buxurnar af
stressi. Svo var mér stillt upp með action-
spjaldið. Það voru þarna tugir manns að horfa.
Svo gaf hún mér merki að segja action. Ég
reyndi að segja „action“ en það kom ekkert.
Smá svona lágt „ahhss …“ og ekkert meir. Það
heyrði þetta enginn. Svo þarna stóð bara heilt,
rándýrt, hundrað manna „crew“ í biðstöðu þar
til aðstoðarleikstjórinn kom hlaupandi, ruddi
mér frá og hrópaði „action“. Þetta er allt til á
filmu, afmælisgjöfin mín sem ég klúðraði.
Stórstjörnur að horfa. Takk fyrir pent.“
Morgunblaðið/Ásdís
Sænska stjarnan Lena Endre leikur í Thin Ice sem á að gerast á Grænlandi. Hér er hún við tökur en
flestar fóru þær fram í Stykkishólmi. Serían er frumsýnd á Íslandi þann 16. febrúar.
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
9.2. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13