Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Síða 18
Mjög algeng spurning áþessum fyrstu vikumnýs árs. Til er svolítið
sem heitir á ensku „trend for-
ecast“ – það sem við getum sagt
að sé að lesa í framtíðina þegar
kemur að hönnun í víðum skilningi
og sjá hvað tíðarandi og samfélag
ætti að vilja! Þetta er áhugavert
fag innan hönnunargeirans og
miklu djúpstæðara og margþætt-
ara en fólk getur ímyndað sér. Hér
er ekki verið að kafa grunnt í hlut-
ina, heldur lesa í endalausa þætti í
umhverfi og hegðun. Ekkert sem
lærist í skóla, heldur miklu frekar
fag fyrir forvitið fólk, fróðleiksfúst,
áhugasamt um mannlega tilveru,
næmt og skynugt.
Í svona framtíðarsýn er ekki
verið að skapa eða finna upp hin
sk. „trend“ – það er verið að lesa í
áherslur í umhverfi okkar, menn-
ingu, neyslu og hegðun, rýna í og
ákvarða líftíma. Láta vita af því
hvert stefnir og út frá því vinna
fyrirtæki, og hönnuðir þeirra, sem
skapa og framleiða yfirleitt tvö ár
fram í tímann. Þarna er notast við
upplýsingar sérfræðinga til að
vinna með framtíðina, sem skilar
sér síðan til okkar í nútíðinni!
Fegurðin er ekki lítillækkuð með
þessum hætti, þvert á móti, því
„trend“ hafa í raun sjálfstæðan
vilja og það sem er fallegt og gildi
fegurðar þróast alls óháð því hvað
á að verða vinsælt og söluvænlegt.
Fegurðin þróast í hjarta og ímynd-
unum þeirra sem eru skapandi, í
náttúrunni, menningunni og lífinu
sjálfu. Það getur enginn lítillækkað
hana.
Tískan, „trendin“, er því tíð-
arandinn og það er á valdi hvers
og eins að velja úr henni eftir eigin
smekk, gera að sínu. Smekkur er í
raun sama og stíll og stíll er alls
óháður tísku. Það sem við tökum
úr tískunni á að samsama okkar
smekk á þeim forsendum að end-
ast og verða hluti af heildar-
umhverfi. Ekki lifa í nokkrar vikur
eða mánuði og hverfa svo úr hill-
unni. Það er líka þvert á móti
hugsunin að baki þeirri miklu
vinnu sem „framtíðarlesarar“
leggja í starf sitt og byggist að
stærstum hluta upp á því um þess-
ar mundir að huga að umhverf-
ismálum, umhverfisspori, end-
urnýtingu, gæðum og vönduðu
verki.
Myndirnar sem fylgja hérna
með eru af íbúð í Kaupmannahöfn
sem ég held rosalega mikið upp á.
Íbúðin er til skammtímaleigu og
heitir The Apartment Recidence
og er hluti af versluninni The Ap-
artment, en hún er í fallegu húsi í
borginni. Það er meira um að ræða
gallerí en verslun en einnig er net-
verslun og „pop-up“-verslun í
gangi. Yfirbragðið er einstakt og
ber sterkt merki eigandans en hef-
ur yfir sér stíl og stemningu sem
má tengja við greinina. Um er að
ræða vel valda hluti sem látnir eru
passa saman óháð útliti, aldri, lit
og formi og munu endast og eldast
saman.
Hvað ber 2020 í skauti
sér þegar kemur að
innanhússhönnun?
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður og eigandi vefsins Home and
Delicious rýnir í 2020 og veltir fyrir sér hvað árið muni færa okkur.
Halla Bára Gestsdóttir hallabara@hallabara.com
Halla Bára Gestsdóttir eigandi vefsins Home and Delicius.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Hér mætast bleikur legubekkur og bláir veggir.
Grænn marmari er alltaf fallegur.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2020
LÍFSSTÍLL
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
60%AFSLÁTTUR
ALLT AÐÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN