Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Side 22
Stofnendur og stjórnarmenn Dickenbauch eigast við, Brynjólfur Klinsmann til
vinstri og Björgvin Tor-Mann Kahn í miðið. Til hægri er svíperinn Andri Schürrle.
Breitner finnurMagath á miðj-unni. Hann út á
hægri kantinn á Litt-
barski sem tekur á rás
framhjá felmtri slegn-
um bakverðinum og gef-
ur hárnákvæmt fyrir mark-
ið beint á kollinn á Rummenigge
sem skilar knettinum með bravúr í
netið. Svo sem hans er von og vísa.
Þótt ótrúlegt megi virðast erum við
ekki stödd á landsleik með vestur-
þýska karlalandsliðinu snemma á ní-
unda áratugnum heldur á æfingu ís-
lenska bumbukarlafélagsins Dicken-
bauch Sportverein GmbH í Fífunni í
Kópavogi í ársbyrjun 2020. Fyrir þá
sem eru að heyra um það ágæta félag
í fyrsta skipti þá er um að ræða
samfélag liðugra karla sem hefur
tvíþætt markmið; að stuðla að
knattspyrnufegurð og vexti þýskrar
menningar. Og færri komast að en
vilja enda slagorð félagsins einfalt:
Keine Amateure. Echte Profis.
Enginn er gjaldgengur í Dicken-
bauch öðruvísi en að hafa hlotið þýskt
eftirnafn. Þannig sest ég niður fyrir
æfinguna með stjórnarmönnunum og
stofnendunum Brynjólfi „Klins-
mann“ Eyjólfssyni og Björgvini Þór
„Tor-Mann Kahn“ Björgvinssyni og
Rúnari „Rummenigge“ Höskulds-
syni, sem lengi hefur átt aðild að fé-
lagsskapnum. Sá síðastnefndi hefur
raunar aldrei verið almennilega
ánægður með sitt nafn. „Ég á auðvit-
að að vera Beckenbauer,“ trúir hann
mér fyrir, „en það var því miður frá-
tekið.“
Gündogan varð Hasselhoff
Í lögum félagsins kemur fram að
þýsk eftirnöfn skuli ákvarðast af ein-
hverju af eftirfarandi: Útlitslegum
þáttum svipar saman, knattspyrnu-
legum einkennum, nafni eða öðru
sem stjórn þykir sniðugt.
Sjaldgæft er að skipt sé um nöfn á
leikmönnum en það hefur þó komið
fyrir. Þannig var nafni Vilhjálms
Gündogans breytt í Vilhjálm Hassel-
hoff eftir að yngismeyjar gerðu aðsúg
að kappanum á knæpu. Svo er það
„slátrarinn“, Hörður Schlachter, sem
vann sér inn nafnauka eftir að honum
mistókst að kveikja í þrettánda-
brennunni á Ægisíðunni í byrjun árs-
ins. Hann heitir nú Hörður Schlach-
ter-Brandt. Nema hvað?
Dickenbauch Sportverein var
formlega stofnað 27. janúar 2007.
Brynjólfur var þá nýfluttur heim frá
útlöndum og langaði að koma á fót
knattspyrnuhópi. „Ég gerði liðs-
könnun innan gamla vinahópsins úr
Kópavogsskóla og sex menn skráðu
sig í fyrsta tímann sem fram fór í Ing-
unnarskóla,“ rifjar hann upp. Sá sem
skráði sig af mestum ákafa, Jón
Hitzlsperger, mætti raunar ekki í
tímann, þrátt fyrir fögur fyrirheit. Er
hann upp frá því heiðursfélagi og goð-
sögn í félaginu en þess má geta að
Jón Hitzlsperger hefur aðeins tekið
„Die Mannschaft“ klárir í slaginn.
Bundesrepublik Deutschland að
ofan og Deutsche Demokrat-
ische Republik að neðan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þar sem kviðfita er dyggð
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2020
LÍFSSTÍLL
Aðeins er eitt dæmi um að leik-
maður hafi sjálfur fengið nafni sínu
breytt í sögu Dickenbauch. Fékk sá
lögmann í lið með sér, eins og bréf-
ið hér að neðan gefur til kynna.
„Efni: Beiðni um nafnabreytingu
á grundvelli laga um knattspyrnu-
nöfn nr. 45 - 17. maí 1996, 4. grein
liður D65: Berist til: Björgvins
Kahn og Binna Klinsmann.
Liebe Herr Kahn, und Klins-
mann. Með bréfi þessu (Mandat)
fer umbjóðandi minn, Sváfnir Sig-
urðarson fram á tafarlausa breyt-
ingu á nafni því (Ziege), sem hon-
um hefur verið úthlutað af stjórn
Dickenbauch (Vorsitzender des
Vorstands).
Það þykir hafið yfir skynsamleg-
an vafa að æ síðan umbjóðandi
minn hreppti verðlaun fyrir
ástundun og framfarir (Streben
nach Fortschritt) í 5. flokki ÍK árið
1979 hefur einkennandi stíll hans á
knattspyrnuvellinum verið dreng-
lyndi og yndisþokki, auk þess sem
það er samdóma álit málsmet-
andi sérfræðinga innan knatt-
spyrnuheimsins (sjá viðhengi:Fuß-
ball und Kunst, e. Karlheins
Helmut Förster) að nálgun hans
hafi alla tíð verið léttleiki og fágun
(Ästhetik) samkvæmt orðanna
hljóðan. Því sé allur samanburður
við bakvörðinn sem sparkar í
knöttinn með vinstri fæti og hefur
oftar en tölu verður á komið gerst
sekur um refsiverð tískuslys (das
mode unfall) (s.s. eins og að aflita á
sér hárið) algerlega úr lausu lofti
gripinn. Umbjóðandi er reiðubúinn
að falla frá fjárkröfum ef gengið
verður að þessari ósk, þrátt fyrir
umtalsvert tilfinningalegt tjón sem
nafnbótin hefur sannarlega valdið
(sjá viðhengi, mat sálfræðings
Horsts Tapperts cand psych. við
háskólasjúkrahúsið í Mannheim).
Að öðrum kosti verður málið
rekið fyrir dómstólum.
Virðingarfyllst
Günter Wallraff
(Rechtsanwalt)
Lögfræðistofa Schults, Schults,
Jürgen und Klaus.“
Stjórn Dickenbauch féllst á rök-
semdirnar og heitir leikmaðurinn
nú Sváfnir Schuster.
Tafarlaus breyting á nafni
Knattspyrnufélagið
Dickenbauch Sport-
verein GmbH, sem er
með varnarþing í
Kópavogi, hefur tví-
þætt markmið; að
stuðla að knattspyrnu-
fegurð og útbreiðslu
þýskrar menningar.
Stjórn félagsins heldur
ítarlegt bókhald í þeim
fróma tilgangi að nið-
urlægja liðsmenn sem
allir bera þýsk ætt-
arnöfn – sem stjórnin
þröngvar upp á þá.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is