Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Side 28
BÍÓ Sáralítið er um kvikmyndir í Hollywood
þar sem svartar konur skrifa handrit og leik-
stýra. Þess vegna fagna margir einni slíkri,
Ljósmyndinni eða The Photograph eftir hina
kanadísku Stellu Meghie, sem frumsýnd
verður í næstu viku. Um er að ræða róman-
tíska mynd um konu, sem Issa Rae leikur,
sem finnur gamla ljósmynd af móður sinni
heitinni ásamt dularfullum manni. Forvitni
vaknar að vonum og fær hún blaðamann,
leikinn af LaKeith Stanfield, í lið með sér og
heillast hann af málinu – en þó meira af kon-
unni sem leitaði til hans. The Photograph er
fjórða kvikmyndin sem Meghie gerir.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2020
LESBÓK
Í blaðinu verður fjallað um
tísku, förðun, snyrtingu, heilsu,
fatnað, umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
SMARTLAND
BLAÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 14. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
BERGLIND GUÐRÚN BERGMANN
Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is
MÁLMUR Ekki jukust líkurnar á því að upprunalegir meðlimir bras-
ilíska málmbandsins Sepultura komi saman á ný eftir að Gloria Cavalera,
eiginkona og umboðsmaður Max Cavalera, sem hætti í bandinu 1996,
hellti sér yfir núverandi söngvara, Derrick Green, á samfélagsmiðlum í
vikunni. Tilefnið var viðtal við Green á hlaðvarpinu Scars And Guitars,
þar sem hann kvaðst ekki nenna að dvelja í fortíðinni og að sumir
ættu greinilega erfitt með að halda áfram
með líf sitt. Gloria tók þetta greinilega til
sín, skammaði Green eins og hund og
bætti við að Max og Iggor bróðir hans
hefðu engan áhuga á að koma aftur fram
með Sepultura. „Hoppaðu upp í rassgatið á
þér. Max og Iggor hafa aldrei talað um endur-
fundi. Hvers vegna heldurðu að þeir hafi hætt?“
Ertu að Greenast?
AFP
Dularfull ljósmynd af mömmu
Issa Rae leikur aðalhlutverkið.
AFP
Danny Trejo er númer eitt á lista.
Hefur látist
65 sinnum
ANDLÁT Danny Trejo er sá leikari
sem látist hefur oftast á hvíta tjald-
inu eða skjánum; hvorki meira né
minna en 65 sinnum. Þetta kemur
fram í nýrri rannsókn sem breska
blaðið The Independent greinir frá.
Á hæla honum kemur gamla kemp-
an Christopher Lee með 60 andlát á
hvíta tjaldinu eða skjánum og verða
þau ekki fleiri þar sem Lee féll
sjálfur frá árið 2015. Hann var efst-
ur á listanum síðast þegar hann var
tekinn saman. Í þriðja sæti er
Lance Henriksen með 51 dauðsfall,
Vincent Price „sálaðist“ 41 sinni á
sínum ferli, eins Dennis Hopper og
Boris Karloff. Þá gaf Fílamaðurinn
sjálfur, John Hurt, upp öndina 39
sinnum í kvikmyndum.
Þegar fjórir síðhærðir piltar úrfásinninu í Birmingham áEnglandi gengu inn í Regent
Sound-hljóðverið í Lundúnum
haustið 1969 benti fátt til þess að
þeir væru að fara að taka upp breið-
skífu sem ætti eftir að breyta rokk-
inu um aldur og ævi. Hvaða erindi
eiga menn með nöfn á borð við Ozzy
og Geezer upp á dekk? spurðu við-
staddir sig og glottu við tönn. Tony
og Bill voru þarna líka.
Enginn þeirra hafði í annan tíma
komið inn í hljóðver, hvað þá tekið
þar upp, og þegar þeim var tjáð að
þeir hefðu einn dag til að taka plöt-
una upp þóttust þeir hafa himin
höndum tekið – það væri heil eilífð.
Bandið var stofnað 1968 til að spila
blúsrokk og hét upprunalega Polka
Tulk Blues Band en því var fljótlega
breytt í Earth sem söngvarinn, téður
Ozzy, hafði skömm á. Ekki var útlit
fyrir að bandið yrði langlíft þegar gít-
arleikarinn, Tony Iommi, hvarf á
braut í desember 1968 til að spila með
Jethro Tull. Ekki gekk rófan þar og
Iommi sneri aftur til Jarðar mánuði
síðar. Earth spilaði grimmt fram eftir
árinu 1969, mest efni eftir aðra, en
smám saman safnaðist frumsamið efni
í sarpinn. Þá þurfti að breyta nafninu
Málmurinn
fimmtugur
Þungarokkið er komið á miðjan aldur en á
fimmtudaginn verður hálf öld liðin frá því að
fyrsta breiðskífa Black Sabbath kom út en hún er
jafnan talin fyrsta þungarokksplatan. Umsagnir
voru alls ekki góðar í fyrstu en áhrifin gríðarleg.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Black Sabbath 2011: Bill Ward, Ozzy Osbourne, Geezer Butler ogTony Iommi.
AFP
Black Sabbath var frá upphafi spyrt
við djöfladýrkun og gekk illa að þvo
þann stimpil af sér. Hefur það með
drungann og þungann á fyrstu plötum
sveitarinnar að gera – og textana upp
að vissu marki. Hirðskáldið Geezer
Butler hefur viðurkennt að hafa sem
ungur maður haft áhuga á djöfladýrk-
un sem fyrirbrigði enda alinn upp í
ströngum kaþólisma og trúði á kölska
og gengst við því að hafa lesið bækur
eftir Aleister Crowley, Dennis Wheat-
ley og fleiri. Hætti því þó snarlega eftir að Ozzy Osbourne lánaði
honum bók um sextándu aldar svartagaldur sem hann mun hafa stol-
ið. Eina nóttina vaknaði Butler við það að honum fannst svartur
skuggi vera við rúmgaflinn – og hafði illt í huga, að því er virtist. But-
ler rauk þá fram til að henda téðri bók úr hillunni en hvað var
a’tarna? Hún var horfin. „Eftir þá reynslu kom ég ekki nálægt þessu.
Þetta hræddi úr mér líftóruna,“ rifjaði hann upp löngu síðar.
Svartur skuggi við rúmgaflinn
Aleister
Crowley
Derrick Green,
söngvari Sepultura.