Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2020
Skeifunni 8
Sími 588 0640 casa.is
Borðstofuborð
DESALTO
SKIN Hönnun: Marco Acerbis
NAVER COLLECTION
PLANK GM3200 Hönnun: Nissen & Gehl
KNOLL INTERNATIONAL
TULIP Hönnun: Eero Saarinen
RODAM
PASSION Hönnun: Designschneider Berlin
DEXO
COCOON Hönnun:Tonetti design
Stuttmyndina Volcano Lines má finna á Vimeo og hefur hún nú
þegar farið á flug erlendis að sögn Víðis Björnssonar kvik-
myndatökumanns. Fylgdi hann snjóbrettakappanum Rúnari
Pétri eftir og er myndin samstarfsverkefni þeirra félaga.
„Þetta byrjaði sem tilraun en svo vorum við svo ánægðir með
efnið að úr varð að gera þessa mynd,“ segir Víðir sem segir
myndina vera um „free ride“-snjóbrettamennsku, sem þýðir að
renna sér niður utan almennra skíðasvæða.
„Okkur langaði að gera öðruvísi snjóbrettamynd en aðrir hafa
gert og skutum hana því að vori til þegar sést í meira landslag,“
segir Víðir.
Í myndinni má sjá mikla náttúrufegurð á Austfjörðum og
Tröllaskaga og vildi Víðir vekja athygli á náttúrunni.
„Við vorum í raun að skreyta náttúruna með snjóbretta-
rennslinu.“
Í myndinni blasir við nátt-
úrufegurð landsins en
hún er tekin upp á Aust-
fjörðum og á Tröllaskaga.
Ljósmynd/Rowan
Náttúra og snjóbretti
Snjóbrettakappinn Rúnar Pétur er stjarna
myndarinnar Volcano Lines.
Ljósmynd/Domi
Í vikunni kom út snjóbrettamyndin
Volcano Lines með snjóbretta-
kappanum Rúnari Pétri.
Sú var tíðin að skipafréttir voru
algengar í íslenskum dagblöðum
enda þótti gjarnan fréttnæmt
hverjir voru að koma eða fara
frá landinu.
Í Morgunblaðinu 9. febrúar
1940 var frétt þess efnis að
Goðafoss hefði komið deginum
áður úr Ameríkuferð. Hafði
skipið verið tólf daga á leiðinni
frá New York. Skipið mun hafa
fengið gott veður en varð að
fara heldur sunnar en áður, svo-
kallaða djúpleið, þar sem búast
mátti við ís á nyrðri leiðinni.
„Með Goðafossi voru aðeins
tveir farþegar, Halldór Kjart-
ansson, kaupmaður og Mr.Tay-
lor. Mr. Taylor er ungur rithöf-
undur, sem ætlar að skrifa um
Ísland. Vill hann helst komast á
gott sveitaheimili yfir vetrartím-
ann, því hann mun hafa í hyggju
að skrifa um lífið á íslenskum
bóndabæ að vetrarlagi,“ sagði í
fréttinni.
Ennfremur kom fram að
Goðafoss hefði verið fullfermdur
af vörum. Um 200 smálestir af
mjölvöru komu með skipinu og
einnig mikið af járni alls konar,
t.d. var mikið af efni í stáltunnur.
Goðafoss var réttan mánuð í
vesturferðinni.
GAMLA FRÉTTIN
Amerískur
rithöfundur
í Reykjavík
Þýskur kafbátur sökkti Goðafossi árið 1944, á heimleið frá New York.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kate Winslet
leikkona
Elísabet Ormslev
söngkona
Adele
söngkona