Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2020, Síða 18
Berglind Berndsen, innanhússarkitekt FHI, fékk það
verkefni að endurhanna neðri hæð í fallegu húsi í
Breiðholtinu. Dökkar innréttingar, fallegt gólfefni og
veggir í mjúkum litum mætast á heimilinu.
Marta María mm@mbl.is
Andar betur á
milli rýma í
Breiðholtinu
Berglind hannaði heimilið fyrir fjölskyld-una á árunum 2018-2019. „Ég tók að mér að endurhanna
neðri hæð hússins, sem var komin til ára
sinna og þurfti á upplyftingu að halda. Út-
gangspunktur var einfaldleiki og tímaleysi,“
segir Berglind þegar hún er spurð út í
áherslurnar í vinnu hennar.
Hverju vildu húsráðendur ná fram?
„Neðri hæðin var mjög aflokuð og dimm.
Lokað anddyri, illa skipulagt baðherbergi og
aflokað eldhús sem nýttist mjög illa og engin
tenging var við borðstofu. Við vildum því
opna anddyrið og fá þannig birtuna inn. Eins
vildum við tengja saman eldhús og borðstofu
og ná fram einföldu og góðu vinnufyr-
irkomulagi og miklu skápaplássi. Draumurinn
var að hafa stóra og góða eyju en þar sem
plássið bauð ekki upp á þá dýpt hannaði ég í
staðinn langa neðri einingu með aukinni dýpt
til að ná þessum eyjufíling. Svo er búr- og
tækjaskápurinn innst eitt best falda leyndar-
mál eldhússins,“ segir hún.
Eldhúsið er með stórri innréttingu og
miklu skápaplássi. Innréttingarnar í eldhús-
inu eru úr sprautulökkuðum aski, sem Berg-
lind er sérlega hrifin af.
„Leyndarmálið við askinn er að hann hent-
ar einstaklega vel þegar maður sprautulakk-
ar viðinn því æðarnar eru svo stórar og
dramatískar. Á móti notaði ég hvítan carrara-
marmara, sem er ofboðslega fallegur.“
Í eldhúsinu er risastór skápaveggur. Þegar
Berglind er spurð að því hvað sé í þessum
skápavegg spyr hún einfaldlega á móti:
„Hvað er ekki í honum?“
„Það er einfaldlega allt til alls. Ég er með
stóran tækja- og búrskáp, auka búrskápa,
ofna og leirtausskáp sem nýtist fyrir daglegt
leirtau og fyrir borðstofuna,“ segir hún.
Veggurinn á móti stóra skápaveggnum er
einfaldur. Einn gluggi er á þeim vegg og
setti Berglind léttar hillur. Þær koma frá
VIPP, sem er danskt hönnunarfyrirtæki sem
er einna þekktast fyrir ruslafötur sínar. Í
hillunum er pláss fyrir smá skraut sem skap-
ar stemningu og gerir eldhúsið heimilislegt.
Á hæðinni eru sérlega fallegar flísar sem
koma frá versluninni EBSON. Það er léttur
marmarafílingur í flísunum sem passar vel
við Carrera-marmarann í eldhúsinu. Flís-
arnar eru þó örlítið grófar og passa vel við
byggingarstíl hússins.
Nú mætast stofa og forstofa á heillandi
hátt. Segðu mér betur frá því?
„Eins og ég sagði fyrr var eldhúsið aflokað
og óheillandi með litlu sem engu skápaplássi
og engin tenging við borðstofu.
Húsið er með skemmtilega glugga í sitt-
hvora áttina. Stórir gluggar eru í borðstofu
með rennihurð og stór gluggi er í eldhúsi.
Mér fannst því mikilvægt að nota þessa
gegnumbirtu til að skapa þessa björtu um-
gjörð. Ég tengdi því háu eldhússkápana við
borðstofuna með því að láta þá flæða þangað
inn og eru því óskýr skil á milli eldhúss og
borðstofu. Til að tengja rýmin enn frekar
setti ég eins gluggatjöld í eldhús og borð-
Berglind Berndsen innanhússarkitekt hannaði
þetta huggulega hús í Breiðholtinu.
Morgunblaðið/Eggert
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2020
LÍFSSTÍLL
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
LEVI
La-z-boy hægindastóll.
Grátt eða svart áklæði.
Stærð: 85 × 92 × 106 cm
95.992 kr. 119.990 kr.
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN