Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2020, Síða 29
Shameless. Hann hlýtur raunar að
vera siðblindasti maður sjónvarps-
sögunnar, Joð gamli Err og allir
taldir með, en á þó ekki bót fyrir
boruna á sér. Þannig að sú blinda
sprettur af annarri rót en pen-
ingum.
Þrátt fyrir ótrúlegt innrætið er
Frank Gallagher mun sympatískari
persóna en fjórmenningarnir í Út-
rás; mögulega vegna þess að mikl-
um auði getur fylgt hroki; ekki síst
þegar auðurinn er á undanhaldi,
eins og einn þeirra útrásenda vitn-
ar um. Meðan útrásendur
berja bara mann og annan
mislíki þeim eitthvað í fari
þeirra er Frank Gal-
lagher seinþreyttur til
vandræða. Skýringin er
sú að hann gæti ekki verið
sáttari í eigin skinni og með
hlutskipti sitt í þessu lífi sem
örlagafyllibytta. Honum er slétt
sama um umtal og álit
annarra svo lengi sem
hann hefur ráð á sín-
um guðaveigum. Það
lengsta sem Frank
hefur enst í vinnu
er 37 dagar og
hann dauðsér
eftir hverri mín-
útu sem hann
hefur þurft að
vinna ærlegt
handtak.
Svo er karl-
kvölin auðvitað
mælskari en and-
skotinn á sterum
og lýgur sig án
áreynslu inn á alls-
konar fólk – þang-
að til það áttar sig á því hvað
klukkan slær í raun og veru. Og ól-
seigur er hann. Frægt var þegar
hann hlaut opið lærbrot og lækn-
irinn skipaði læknanemanum á
spítalanum að sinna öllum öðrum
sjúklingum á undan honum.
„Hvers vegna?“ spurði aumingja
læknaneminn hvumsa enda mað-
urinn sárþjáður.
„Jú, sjáðu til, vinur minn,“ svar-
aði læknirinn án þess að blikna.
„Að afstöðnum heimsendi þá verð-
ur ekkert hér nema tveir eða þrír
kakkalakkar og Frank Gallagher!“
Hafir þú, lesandi góður, ekki séð
Shameless, legg ég til að þú gefir
þér nú augnablik til að skammast
þín! Leikið sjónvarpsefni verður
ekki betra.
Skúrkur allra skúrka
En talandi um Joð gamla Err;
hann er auðvitað skúrkur allra
skúrka í sjónvarpi og hið endanlega
viðmið fyrir fugla eins og útrás-
endur. Klækjakóngur dauðans sem
sveifst einskis til að ná sínu fram
og gladdist eins og barn á jólum
yfir óförum annarra. Joð Err var
eins og United-maðurinn sem fagn-
ar meira þegar Liverpool tapar en
þegar hans menn vinna. Ekki satt?
Svo gat hann á köflum verið svo-
lítið sympatískur. Eða er það bara
fjarlægðin að gera fjöllin blá og
langt til Húsavíkur? Í minningunni
varð kappinn svo afskaplega aumur
þá sjaldan að Cliff Barnes eða aðr-
ir fjandmenn komu höggi á hann.
Eða Bobby bróðir las honum pist-
ilinn og henti honum jafnvel öfug-
um út í sundlaug á eftir.
Alltént. Ætli megi ekki halda því
fram að Joð Err hafi verið eilít-
ið mýkra illmenni en þeir út-
rásendur? Mögulega voru
það bara tímarnir.
Sjöan og áttan
voru ekki alveg
eins harð-
neskjulegar og tím-
arnir sem við lifum á
núna. Eða er það bara
Húsavíkurheilkennið
að villa manni
sýn aftur?
Í öllu
falli ætla
ég að
leyfa mér
að halda
því fram
að mun-
urinn á Joð
Err og
norsku útrás-
endunum sé sá
að íslenska
þjóðin hafi elsk-
að að hata þann
fyrrnefnda
meðan hún hat-
ar bara útrás-
endurna.
Útrásendurnir norsku í
sínu allra fínasta pússi.
NRK
Allir elskuðu
að hata Joð
Err Ewing.
CBS
23.2. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
SJÓNVARP Eins og fram hefur komið
eru sýningar á lokaseríu bandaríska
spennuþáttanna Homeland hafnar, en
hún er sú áttunda í röðinni. Áhorfs-
tölur sýna að áhugi á þættinum
dróst saman eftir að Damian Lewis
hvarf á braut eftir þriðju seríu. Ef
marka má grein eftir James Do-
naghy, gagnrýnanda The Gu-
ardian, hafa margir misst af
miklu enda hafi mestu snilldar-
tilþrifin átt sér stað „eftir að þú
hættir að horfa“, eins og hann
orðar það í pistli sínum.
Snilld eftir að þú hættir að horfa
Claire
Danes er
áfram í
Homeland.
AFP
BÓKSALA 12.-18. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Ennþá ég Jojo Moyes
2 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen
3 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl
4 Svínshöfuð Bergþóra Snæbjörnsdóttir
5 Selta Sölvi Björn Sigurðsson
6
Why We Sleep: The New
Science
Matthew Walker
7 Gréta og risarnir Zoë Tucker/Zoe Persico
8 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
9 Tinni – ferðin til tunglsins Hergé
10
Tinni – í myrkum
mánafjöllum
Hergé
1 Mislæg gatnamót Þórdís Gísladóttir
2 Leðurjakkaveður Fríða Ísberg
3 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson
4
Perlur úr ljóðum íslenskra
kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
5
Ástarljóð Davíðs
Stefánssonar
Davíð Stefánsson
6 Íslensk úrvalsljóð Guðmundur Andri Thorsson valdi
7 Til þeirra sem málið varðar Einar Már Guðmundsson
8 Til í að vera til Þórarinn Eldjárn
9 Úrval ljóða 1982-2012 Pia Tafdrup
10 Kærastinn er rjóður Kristín Eiríksdóttir
Allar bækur
Ljóðabækur
Ég byrjaði mjög ungur að lesa mjög
erfiðar bækur. Ég bjó á Borgarfirði
eystra og það voru bara ákveðið
margar myndir á vídeóleigunni
hverju sinni. Ég
komst reyndar fljótt
að því að bækurnar
toppuðu bíómynd-
irnar auðveldlega.
Ég las Skræpótta
fuglinn eftir Jerzy
Kosinski þegar ég
var 11 ára, Deliver-
ance eftir James Dickey 12 ára og
IT eftir Stephen King þegar ég var
rétt tæplega 13 ára. Ég las síðan all-
ar bækur sem
Stephen King hafði
skrifað fram að þeim
tíma, en ég var svo
heppinn að einhver
hafði losað sig við
allt safnið í kiljum
hjá Valda í Geisla-
diskabúð Valda.
Sögurnar sem ég las gerðu miklu
meira fyrir mig en bíómyndirnar,
skrímslin voru hræðilegri, ofbeldið
var raunverulegra og sögupersón-
urnar voru miklu svalari, fyndnari
og graðari.
Ég fór að lesa aðeins fágaðri bók-
menntir með aldrinum en alltaf
hafði ég mest gaman af að lesa
óheflaða rithöfunda eins og Irvine
Welsh, Charles Bukowski eða Carl
Hiaasen. Í ljósi þess að ég las nán-
ast eingöngu bækur
eftir karlkyns höf-
unda í áraraðir, þá
hef ég undanfarið
verið að einbeita
mér að öðrum kynj-
um og þá aðallega
kvenkyninu.
Erfiðar bækur
heilla mig ennþá, helst vil ég engj-
ast um af sálarkvölum meðan á
lestrinum stendur. Uncle Tom’s
Cabin eftir Harriet Beecher Stowe
var rétt búin að gera út af við mig.
Homegoing eftir Yaa
Gyasi er líka erfið,
eins og flestar bækur
sem fjalla um bar-
áttu innfæddra við
miskunnar- og sálar-
lausa nýlenduherra.
Frankenstein eftir
Mary Shelley er
kannski ekki mjög erfið bók en hún
er vissulega merki-
leg. Mary var aðeins
21 árs árið 1818,
þegar sagan um
Victor Frankenstein
var birt án nafns
höfundar og var
hún svo langt á und-
an sinni samtíð að
hún ól af sér óteljandi eftirlíkingar
og heilu flokkarnir af bókmenntum
mynduðust út frá þessari mögnuðu
sögu.
Barna- og unglingabókmenntir
eru fyrir mér ókannað svæði þann-
ig að ég verð bara að bíða eftir því
að börnin mín tvö verði 18 ára, áð-
ur en ég gef þeim ábendingar um
góðar bækur til að lesa.
ARNAR PÉTURSSON ER AÐ LESA
Arnar Péturs-
son er verk-
efnastjóri hjá
Rannsóknar-
stofnun bygging-
ariðnaðarins.
Allt King-safnið í kiljum
í Geisladiskabúð Valda
ICQC 2020-2022
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is