Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Múlinn Jazzklúbbur efnir til tónleika á Björtuloftum í Hörpu á
miðvikudagskvöldið kl. 20 þar sem tímabil í sögunni, sem kallast
„The Roaring Twenties“, verður í hávegum haft. Á tónleikum
verður haldið upp á 100 ára útgáfuafmæli tónsmíða sem gefnar
voru út árið 1920. Titlar eins og My little Margie, Avalon og The
Japanese Sandman munu vera á efnisskránni. Fram koma Ei-
ríkur Orri Ólafsson, trompet, Kristján Martinsson, píanó, Andri
Ólafsson, bassi og Magnús Trygvason Eliassen, trommur.
Á föstudaginn kl. 20 er svo komið að Hljómsveit Unnar Birnu
og Bjössa Thor að troða upp í Múlanum á Björtuloftum. Björn
Thoroddsen hefur verið þungavigtarmaður í íslensku djass-
senunni frá táningsaldri og Unnur Birna hefur ekki látið sitt eft-
ir liggja á umliðnum árum. Með þeim koma fram sunnlenska
rytma-parið Skúli Gíslason á trommur og Sigurgeir Skafti
Skúlason á bassa.
Unnur Birna kem-
ur fram á föstu-
dagskvöldið.
Morgunblaðið/Ómar
Aldargamall djass í öndvegi
Magnús Trygvason Eliassen verður í Múlanum á
miðvikudagskvöldið ásamt félögum sínum.
Ljósmynd/Magnús Andersen
Tvennir djasstónleikar verða á
Björtuloftum í Hörpu í næstu viku.
Sú var tíðin að sjónvarps-
dagskrárkynningar voru hressi-
legar í íslenskum dagblöðum og
nokkuð í þær lagt. Tökum sem
dæmi laugardagskvikmynd sjón-
varpsins 23. febrúar 1980, en það
var bandaríska sjónvarps-
kvikmyndin Dead Men Tell No
Tales, eða Látnir tala ekki af sér.
Í Morgunblaðinu sagði: „Í
myndinni er fjallað um það fyrir-
brigði sem nokkuð algengt er í
skáldsögum og kvikmyndum, en
að sama skapi sjaldgæft í raun-
veruleikanum, þegar menn eiga
sér tvífara, eða þegar tveir menn
eru nánast alveg eins, án þess þó
að vera nokkuð skyldir.
Raunar eru slík tilfelli til, og
mun til dæmis þekkt að frægt
fólk leggi áherslu á að fá tvífara
sína til að gegna ýmsum erfiðum
eða hættulegum verkefnum.“
Og enn fremur: „En í myndinni
í kvöld gerist það að Larry Towers
nokkur kemur til hinnar frægu
borgar í Kaliforníu, Los Angeles, á
Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Í
LA hittir hann stúlku sem villist á
honum og unnusta sínum, og
einnig hittir hann flokk morðingja
sem telur hann vera annan en
hann raunverulega er. Fjallar
myndin um það er Larry þessi
hefur leit að tvífara sínum til að
bjarga lífi hans.“
GAMLA FRÉTTIN
Látnir tala
ekki af sér
Christopher George og Judy Carne fóru með aðalhlutverk í myndinni.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Danielle Harris
Að sögn oft ruglað saman við Markle
Rósa Guðmundsdóttir
lista- og athafnakona
Meghan Markle
hertogaynja af Sussex