Morgunblaðið - 04.03.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.03.2020, Blaðsíða 11
Á komandi árum og áratugum munu íslenskar sjávarafurðir þurfa að glíma við æ harðari samkeppni úr öllum áttum. Helstu samkeppn- islönd saxa jafnt og þétt á tækni- og gæðaforskot Íslands og framboð eld- isfisks eykst ár frá ári. Þá hafa orðið örar framfarir í framleiðslu gervi- fisks sem gerður er úr plöntuhráefni og ekki ósennilegt að áður en þessi áratugur er á enda muni neytendur geta fundið, í hillum stórmarkaða, fiskbita sem ræktaðir voru á til- raunastofum. Ingi Björn Sigurðsson, fjárfest- ingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði at- vinnulífsins, segir brýnt að greinin átti sig á þessari þróun og leiti leiða til að aðgreina íslenskar sjávaraf- urðir frá þeim vörum sem eiga eftir að keppa um hylli neytenda. „Við þurfum að fá sem gleggsta sýn af því hvernig íslenskur sjávarútvegur á að líta út eftir tíu ár og í hverju sér- staða íslensks sjávarfangs verður fólgin.“ Að mati Inga Björns er líklegt að útflytjendur þurfi að hampa þeirri staðreynd að íslenskur fiskur er villtur, náttúrulegur próteingjafi; gúrme-vara í hæsta gæðaflokki. „Eftir því sem samkeppni frá fisk- eldi og plöntufiski fer vaxandi verð- ur æ minna vit í því að selja íslensk- an fisk sem hrávöru. Það er t.d. sennilegt að fisknaggar framtíð- arinnar verði gerðir úr plöntupró- teinum frekar en villtum fiski.“ Enginn fiskur verður í fiskborgurum framtíðarinnar Ingi Björn minnist samtals sem hann átti fyrir skemmstu við starfs- bróður sinn hjá Horzion Ventures, sem er stærsti fjárfestingasjóður Asíu og leiðandi í fjárfestingum í plöntuafurðum: „Blasti við honum að kjöt og fiskur munu ekki geta keppt við plöntukjöt, plöntufisk og til- raunastofuprótein þegar kemur að verkuðum matvælum eins og ham- borgurum eða fisknöggum. Villt, hreint og náttúrulegt prótein mun áfram eiga erindi við markaðinn, en þá frekar sem sælkerafæða,“ segir Ingi og bætir við að á sumum stöð- um sé þessi þróun mjög langt komin. „Þannig sló það mig í nýlegri ferð til Svíþjóðar að hjá sænsku hamborg- arakeðjunni Max Burgers sýndu viðskiptavinir plöntuborgurum meiri áhuga en kjötborgurum.“ Öflugt og úthugsað markaðsstarf þyrfti að vega mun þyngra, að sögn Inga Björns, enda vandséð að hægt sé að auka útflutningstekjur hefð- bundinna fiskveiða með öðrum hætti. „Það eru blikur á lofti og við sjáum að á markaðssvæðum eins og Portúgal og Spáni var áður hægt að fá mjög gott verð fyrir íslenskan saltfisk enda sú vara sem neyt- endum þótti bera af. Smám saman hefur þetta sterka orðspor gefið eft- ir, og greinilegt að vönduð markaðs- setning skiptir máli við sölu á fiski. Spurningin er hvort að tekst að standa rétt að markaðsstarfinu, og hvort að útflutningsverðmæti ís- lenskra sjávarafurða verði þá nær 250 milljörðum króna eða 300 millj- örðum að tíu árum liðnum. Eina leið- in til þess að auka útflutnings- verðmætið er að bæta í þegar kemur að markaðsetningu enda erum við ekki að fara að veiða meira magn í náinni framtíð.“ Próteinbylting að bresta á Ingi Björn segir líka rétt að at- huga að hvaða marki íslenskur sjáv- arútvegur geti tekið þátt í prótein- byltingu komandi áratuga. Frekar en að líta á grænmetisfisk, fiskeldi, eða frumuræktaðan fisk sem óvin gæti greinin tekið virkan þátt í ný- sköpuninni. „Það er ekki spurning að ýmis tækifæri, og jákvæð sam- legðaráhrif, felast í því að geta boðið upp á íslensk hnakkastykki annars vegar og fisk úr plöntuhráefni hins vegar, innan sömu virðiskeðjunnar. Í því sambandi er gott að muna að í þeim grænmetisfiski sem fram- leiddur er í dag er fiskbragðið fengið með próteinum úr alvöru fiski, og grundvallast þróunin á vönduðum vísindalegum rannsóknum. Við bú- um að því að eiga vísindafólk á heimsmælikvarða hjá stofnunum eins og Matís og gætum byggt á ára- tugalöngum rannsóknum. Hingað til hefur ekkert land tekið forustu í þessum geira, það tækifæri er opið fyrir okkur.“ Ekki nóg með það heldur gætu að- stæður á Íslandi reynst mjög hent- ugar fyrir prótein-nýsköpun. „Það svið sem mér þykir hvað forvitnileg- ast er ræktun próteins með örver- um. Er um að ræða framleiðslu sem byggist umfram allt á efnafræði, og notar sem hráefni vatn, orku og koltvísýring. Eftir að hafa svipast um sýnist mér að hvergi í heiminum eigi þannig framleiðsla betur heima en hjá íslenskum jarðvarmavirkj- unum og væri t.d. hægt að brugga þar prótein sem hefði í reynd nei- kvætt kolefnisspor.“ Gætum tekið forystu í prótein-nýsköpun Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sérfræðingar spá því að eitthvað allt annað en villtur fiskur verði notað sem hrá- efni í fisknagga og -borg- ara. Skerpa þarf á sérstöðu íslensks sjávarfangs en líka skoða hvar tækifærin liggja í þeirri prótein-byltingu sem er framundan. AFP Fisksali afgreiðir viðskiptavin í fiskbúð í Sjanghaí. Villtur fiskur, dreginn úr sjó, þarf í framtíðinni að keppa við bæði eldisfisk, frumuræktaðan fisk og gervifisk gerðan úr plöntum. Sérstaða íslensks fisks má ekki fara milli mála. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ingi Björn segir aðstæður á Íslandi henta vel til að „brugga“ prótein. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020 11 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 3. mars 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 348,76 Þorskur, slægður 389,60 Ýsa, óslægð 323,26 Ýsa, slægð 291,16 Ufsi, óslægður 168,79 Ufsi, slægður 205,92 Gullkarfi 218,78 Blálanga, slægð 78,87 Langa, óslægð 227,00 Langa, slægð 207,01 Keila, óslægð 83,33 Keila, slægð 169,99 Steinbítur, óslægður 205,00 Steinbítur, slægður 288,85 Skötuselur, slægður 692,16 Grálúða, slægð 376,00 Skarkoli, slægður 433,58 Þykkvalúra, slægð 948,17 Langlúra, óslægð 229,74 Sandkoli, slægður 92,00 Bleikja, flök 1.577,75 Gellur 900,00 Grásleppa, óslægð 32,00 Hlýri, slægður 384,76 Hrogn/þorskur 435,74 Lúða, slægð 617,45 Lýsa, óslægð 13,29 Lýsa, slægð 113,42 Rauðmagi, óslægður 236,16 Skata, slægð 63,37 Tindaskata, óslægð 6,62 Undirmálsýsa, óslægð 101,00 Undirmálsýsa, slægð 203,79 Undirmálsþorskur, óslægður 266,74 Undirmálsþorskur, slægður 172,00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.