ÍSÍ fréttir - 15.01.1992, Page 4
FRÉTTABRÉF ÍSÍ
ÞJÓNUSTA SEM ÍSÍ VEITIR
Ljósritun
Sambandsaðilum stendur til boða að fá
ljósritað það sem þeir þurfa og einnig
aðstoð við að setja upp það efni sem þarf
að fjölrita. Til stendur að kaupa nýja ljós-
ritunarvél og verður hún staðsett við fundar-
sali á veitingahæð. Nýja ljósritunarvélin
verður til afnota fyrir sambandsaðila eftir
lokun skrifstofu.
breyta hjá eldri félögum, uppsetning árs-
reikningaog ýmis ráðgjöfvarðandi starfið
almennt. Þessi þjónusta er nauðsynleg því
oft lenda menn í ógöngum vegna tak-
markaðrar þekkingar á flóknum atriðum.
Á skrifstofu ÍSÍ eru 4 af 7 starfsmönnum
með íþróttafræðimenntu auk langrar
starfsreynslu innan íþróttahreyfingarinnar.
Starfsfólkið er því faglega mjög vel í stakk
búið til að veita góða þjónustu.
Umbrc)t~|
Fræðslumál |
Á skrifstofunni er veitt aðstoð við að setja
upp fréttabréf, ársskýrslur og allskonar
eyðublöð hvort sem menn koma með texta
innsleginn á disk eða bara ápappír. ÍSÍ hefur
verið að auka við tölvukost sinn undanfarna
mánuði og er nú betur í stakk búið til að
veita fjölbreyttari þjónustu á þessu sviði.
Keyptur hefur verið góður laserprentari,
myndskanner og gott umbrotsforrit.
Með þessum nýju tækjum er hægt að setja
upp fréttabréf og skýrslur og skila þeim
hvort sem er ádiski eðapappír til fjölföldunar
eða prentunar.
Fagleg þjónusta
Með þessari þjónustu er átt við aðstoð t.d.
við að semja lög og reglugerðir fyrir ný
félög sem verið er að stofna eða verið að
Þessi mál eru þungamiðjan í öllu upp-
byggingarstarfi hjá hreyfingunni og mjög
mikilvægt að þau séu í góðu lagi.
Fræðslunefnd ÍSÍ hefur verið starfandi í
mörg ár og haft sérstakan starfsmann til að
sinna þessum málum. Fræðslunefndin sér
um að semja, þýða og gefa út hin ýmsu
fræðslurit og þá mjög oft í samvinnu við
sérsambönd ÍSI.
í dag er fræðslunefndin með yfir 50 rit bæði
fræðslu- og námsefni og svo leikreglur í
hinum ýmsu íþróttagreinum. Þessi rit eru
alltaf í endurskoðun til að fylgjast með
þróun og brey tingum sem verða hveij u sinni.
Sambandsaðilar ásamt skólum ættu að
kynna sér vel hvaða rit eru til og koma með
tillögur um hvað væri nauðsynlegt að gefa
út. Menn eru hvattir til að koma í heimsókn
og skoða það sem til er og ræða við
fræðslufulltrúa ÍSÍ, Karl Guðmundsson og
mun hann veita alla þá aðstoð sem hægt er.
fbROTTTR
FYRIR ALLA