Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 18. SEPTEMBER 2020 DV ERFIÐ ÆSKA Pamela Anderson fæddist 1. júlí árið 1967 í Kanada. Hún átti mjög erfiða æsku og opnaði sig fyrst um æskuárin á góðgerðarviðburði árið 2014. Hún sagðist hafa verið misnotuð af kvenkyns barnapíu sinni frá því sex ára aldri til tíu ára aldurs. Þegar hún var tólf ára var henni nauðgað af 25 ára karl­ manni. Pamela vitnaði í móður sína þegar hún sagði frá þessum hræðilegu atburðum: „Stundum brosir þú ekki vegna þess hversu hamingjusöm þú ert, heldur vegna þess hversu sterk þú ert.“ HEILSAN Árið 2001 var Pamela greind með lifrarbólgu C. Hún segist hafa smitast eftir að hún og Tommy Lee notuðu sömu tattúnál. Í viðtali við Esquire sagði Pamela að Tommy hefði aldrei sagt henni að hann væri með lifrarbólgu. „Augljós­ lega er egóið hans mikilvægara en líf mitt,“ sagði hún. Árið 2015 sagðist Pamela vera læknuð af sjúkdómnum. „Þetta er mjög spennandi, það bætast 20 ár við líf mitt núna,“ sagði hún við People. RAUNVERULEIKAÞÆTTIR Pamela hefur komið fram í fjölda raunveruleikaþátta, eins og Big Brother: Australia, Dancing with the Stars og Dancing on Ice. LÍKAMLEG HEILSA Pamela sneiðir hjá dýraafurðum, drekkur ekki og leggur áherslu á líkamlega og andlega heilsu. Hún stundar hugleiðslu og Pilates. Hún hljóp einnig maraþon árið 2013. HJÓNABAND OG KYNLÍFSMYNDBAND Á sama tíma og Pamela Anderson varð þekkt andlit á sjónvarpsskjánum varð hún einnig þekkt andlit slúðurblaðanna, enda hvimleiður fylgifiskur frægðarinnar. Þegar hún var 27 ára giftist hún trommuleikara Mötley Crüe, Tommy Lee, eftir að hafa þekkt hann í fjóra daga. En það var ekki það sem vakti hvað mesta athygli. Einhver stal kynlífsmyndbandi sem Pamela og Tommy gerðu í brúðkaupsferð sinni og lak því á netið. Fyrirtækið IEG hóf dreifingu á myndbandinu og fóru hjónin í mál við fyrirtækið. Það endaði með því að sátt náðist í málinu, sem leyfði fyrirtækinu að sýna myndbandið sem hluta af áskriftarþjónustu þess, gegn greiðslu. Pamela útskýrði í viðtali að hún hefði hætt að berjast gegn dreifingu mynd­ bandsins því að það hafði slæm áhrif á heilsu hennar, en þá var hún ólétt að sínu öðru barni. BAYWATCH Pamela Anderson skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með hlutverk Casey Jean Parker í geysivinsælu þáttunum Strandverðir eða Baywatch. Pamela nældi sér í hlutverkið án þess að þurfa að fara í áheyrnar­ prufu. Aðspurð hvað henni þótti um að klæðast sund­ fötum á hverjum degi sagði Pamela: „Mér leið mjög vel í eigin skinni og pældi lítið í því. Enginn er fullkominn og gallar eru kynþokkafullir. Ég var hissa á að ég hefði verið valin í hlutverkið. Mér fannst ég aldrei vera rosa­ lega aðlaðandi manneskja.“ RITHÖFUNDUR Pamela Anderson skrifaði sína fyrstu bók, Star, árið 2004, sem var að hluta til byggð á hjónabandi hennar og Tommy Lee. MÓÐURHLUTVERKIÐ Pamela eignaðist tvö börn með Tommy Lee. Brandon Thomas Lee (1996) og Dylan Jagger Lee (1997). Pamela og Tommy skildu árið 1998 og vildi Pamela gera allt sem hún gat til að vera til staðar fyrir börnin sín. Hún tók að sér mun færri hlutverk eftir að börnin fæddust og steig um tíma út úr sviðsljósinu. „Mikilvægasta vinnan mín var að sjá um börnin mín. Ég var aldrei með barnapíur og ég vildi bara vera eins mikið með þeim og ég gat,“ sagði hún í viðtali við Contributor. KVIKMYNDIR Á tíunda áratug síðustu aldar hafði Pamela slegið í gegn á sjónvarpsskjánum og einnig sem fyrirsæta. Árið 1993 lék hún svo í sinni fyrstu kvikmynd, Snap­ dragon. Hún lék fallega ljóshærða vændiskonu sem glímdi við minnisleysi og drap viðskiptavini sína. Ári seinna lék hún aftur vændiskonu í kvikmyndinni Raw Justice. Síðan þá hefur hún leikið í ótal þáttum og kvik­ myndum. Hæðir og lægðir Pamelu Það eru fáir sem ekki þekkja Pamelu Anderson sem varð hvað frægust fyrir hlutverk sitt í Strandvörðum. Hún hefur upp- lifað miklar hæðir og lægðir í gegnum árin, verið í storma- sömum samböndum og farið í gegnum miklar breytingar, bæði líkamlega og andlega. MYNDIR/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.