Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Blaðsíða 32
Una í eldhúsinu
Morgunverðar tortilla-kaka
Morgunverðar tortillur eru hrika-
lega góðar og fljótlegar. Það er
snilld hversu fljótlegt er að skella
í þær og nýta má nánast hvað sem
er til í ísskápnum. Ég miða við eina
tortilla köku á mann, ½ avókadó
og 1 egg á hverja pönnuköku.
Tortilla-kökur
Salsasósa
Rifinn ostur
Avókadó
Egg
Salt og pipar
Kóríander
Sýrður rjómi
Byrjið á því að útbúa eggjahræru:
Þeytið egg í skál, kryddið með salti
og pipar og steikið á pönnu.
Smyrjið tortilla-pönnukökur með
salsasósu, skerið niður avókadó
bita og leggið í pönnukökuna,
eggjahrærunni er svo bætt ofan
á, rifnum osti stráð aðeins yfir og
kökurnar settar inn í ofn í um 5
mínútur eða þannig að osturinn fái
aðeins að bráðna og kökurnar verði
ljósbrúnar, forðist að hafa þær of
lengi inni ef þið hyggist rúlla þeim
upp áður en þið berið þær fram,
þær eiga það til að verða stökkar
í ofninum mjög fljótt.
Klippið niður ferskar kryddjurtir
eins og steinselju eða kóríander
og setjið yfir og berið fram með
sýrðum rjóma.
Verði ykkur að góðu.
Ketóbolla með steiktu eggi og kotasælu
1 ketóbolla skorin í tvennt
1 egg
3 msk. kotasæla
1 avókadó
Rifinn ostur
Steinselja
Salt og pipar
Béarnaisesósa til hliðar
Byrjið á því að setja kotasælu
á annan helming ketóbollunnar
(botninn).
Stráið rifnum osti yfir kotasæluna
og setjið í ofninn við 180 gráður í
um 5 mínútur.
Á með spælið þið egg á pönnu,
setjið vel af salti og pipar yfir.
Leggið eggið á brauðbolluna, sker-
ið niður avókadó í þunnar sneiðar
og leggið ofan á eggið.
Klippið niður ferska steinselju yfir
og berið fram með béarnaisesósu
og steiktum kartöflum til hliðar.
Steiktar kartöflur
Kartöflur
Olía
Rósmarín
Salt
Pipar
Smjör
Skerið nokkrar kartöflur niður í
smáa bita, setjið í eldfast form.
Kryddið kartöflurnar með salti, pip-
ar og smá rósmaríni, hellið ólífu-
olíu yfir kartöflubitana og setjið í
ofn við 200 gráður í um 20 mínútur.
Eftir að kartöflurnar hafa aðeins
fengið að mýkjast í ofninum, setjið
þið þær á heita pönnu og steikið
þær upp úr smjöri þar til þær verða
stökkar og fallega brúnleitar.
Dögurður eða „brunch“ sameinar morgunmat
og hádegismat í eina máltíð eins og flestir vita,
en sú uppfinning er líklega með þeim betri. Það
er fátt notalegra en að útbúa góðan dögurð um
helgar þegar heimilisfólkið sefur aðeins lengur
og njóta þess að borða svo saman í rólegheitum.
MYNDIR/AÐSENDAR
32 MATUR 18. SEPTEMBER 2020 DV