Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2020, Side 24
24 FÓKUS 18. SEPTEMBER 2020 DV
ERFIÐ ÆSKA
Pamela Anderson fæddist 1. júlí árið 1967 í Kanada. Hún átti mjög erfiða
æsku og opnaði sig fyrst um æskuárin á góðgerðarviðburði árið 2014. Hún
sagðist hafa verið misnotuð af kvenkyns barnapíu sinni frá því sex ára aldri
til tíu ára aldurs. Þegar hún var tólf ára var henni nauðgað af 25 ára karl
manni. Pamela vitnaði í móður sína þegar hún sagði frá þessum hræðilegu
atburðum: „Stundum brosir þú ekki vegna þess hversu hamingjusöm þú
ert, heldur vegna þess hversu sterk þú ert.“
HEILSAN
Árið 2001 var Pamela greind með
lifrarbólgu C. Hún segist hafa
smitast eftir að hún og Tommy Lee
notuðu sömu tattúnál. Í viðtali við
Esquire sagði Pamela að Tommy
hefði aldrei sagt henni að hann
væri með lifrarbólgu. „Augljós
lega er egóið hans mikilvægara
en líf mitt,“ sagði hún. Árið 2015
sagðist Pamela vera læknuð af
sjúkdómnum. „Þetta er mjög
spennandi, það bætast 20 ár við líf
mitt núna,“ sagði hún við People.
RAUNVERULEIKAÞÆTTIR
Pamela hefur komið fram í fjölda
raunveruleikaþátta, eins og Big
Brother: Australia, Dancing with
the Stars og Dancing on Ice.
LÍKAMLEG HEILSA
Pamela sneiðir hjá dýraafurðum,
drekkur ekki og leggur áherslu á
líkamlega og andlega heilsu. Hún
stundar hugleiðslu og Pilates. Hún
hljóp einnig maraþon árið 2013.
HJÓNABAND OG KYNLÍFSMYNDBAND
Á sama tíma og Pamela Anderson varð þekkt andlit á sjónvarpsskjánum
varð hún einnig þekkt andlit slúðurblaðanna, enda hvimleiður fylgifiskur
frægðarinnar. Þegar hún var 27 ára giftist hún trommuleikara Mötley Crüe,
Tommy Lee, eftir að hafa þekkt hann í fjóra daga. En það var ekki það sem
vakti hvað mesta athygli. Einhver stal kynlífsmyndbandi sem Pamela og
Tommy gerðu í brúðkaupsferð sinni og lak því á netið. Fyrirtækið IEG hóf
dreifingu á myndbandinu og fóru hjónin í mál við fyrirtækið. Það endaði
með því að sátt náðist í málinu, sem leyfði fyrirtækinu að sýna myndbandið
sem hluta af áskriftarþjónustu þess, gegn greiðslu.
Pamela útskýrði í viðtali að hún hefði hætt að berjast gegn dreifingu mynd
bandsins því að það hafði slæm áhrif á heilsu hennar, en þá var hún ólétt
að sínu öðru barni.
BAYWATCH
Pamela Anderson skaust upp á stjörnuhimininn þegar
hún fór með hlutverk Casey Jean Parker í geysivinsælu
þáttunum Strandverðir eða Baywatch. Pamela nældi
sér í hlutverkið án þess að þurfa að fara í áheyrnar
prufu. Aðspurð hvað henni þótti um að klæðast sund
fötum á hverjum degi sagði Pamela: „Mér leið mjög vel
í eigin skinni og pældi lítið í því. Enginn er fullkominn
og gallar eru kynþokkafullir. Ég var hissa á að ég hefði
verið valin í hlutverkið. Mér fannst ég aldrei vera rosa
lega aðlaðandi manneskja.“
RITHÖFUNDUR
Pamela Anderson skrifaði sína
fyrstu bók, Star, árið 2004, sem
var að hluta til byggð á hjónabandi
hennar og Tommy Lee.
MÓÐURHLUTVERKIÐ
Pamela eignaðist tvö börn með Tommy Lee. Brandon Thomas Lee (1996)
og Dylan Jagger Lee (1997). Pamela og Tommy skildu árið 1998 og vildi
Pamela gera allt sem hún gat til að vera til staðar fyrir börnin sín. Hún tók
að sér mun færri hlutverk eftir að börnin fæddust og steig um tíma út úr
sviðsljósinu. „Mikilvægasta vinnan mín var að sjá um börnin mín. Ég var
aldrei með barnapíur og ég vildi bara vera eins mikið með þeim og ég gat,“
sagði hún í viðtali við Contributor.
KVIKMYNDIR
Á tíunda áratug síðustu aldar hafði Pamela slegið í
gegn á sjónvarpsskjánum og einnig sem fyrirsæta.
Árið 1993 lék hún svo í sinni fyrstu kvikmynd, Snap
dragon. Hún lék fallega ljóshærða vændiskonu sem
glímdi við minnisleysi og drap viðskiptavini sína. Ári
seinna lék hún aftur vændiskonu í kvikmyndinni Raw
Justice. Síðan þá hefur hún leikið í ótal þáttum og kvik
myndum.
Hæðir og lægðir Pamelu
Það eru fáir sem ekki þekkja
Pamelu Anderson sem varð
hvað frægust fyrir hlutverk sitt
í Strandvörðum. Hún hefur upp-
lifað miklar hæðir og lægðir í
gegnum árin, verið í storma-
sömum samböndum og farið í
gegnum miklar breytingar, bæði
líkamlega og andlega.
MYNDIR/GETTY