Vísbending - 04.02.2016, Blaðsíða 4
VíSBENDING
“V---------
Aörir sálmar
Gosinn er tromp
framh. afbls. 1
og sumir ganga svo langt að tala um að
það verði leyst upp.
Twitter hefur vakið áhuga margra
sem samfélagsmiðill sem leggur áherslu
á stutt skilaboð. Þetta hentar orðheppn-
um stjórnmálamönnum vel því að þeir
þurfa ekki að semja nema eina snjalla
setningu til þess að komast í fréttir
fremur en heila ritgerð. En fyrirtækinu
hefur ekki gengið vel og EBIDTA var
neikvæð hjá því. Eiginfjárhlutfall er
Heimild: Seðlabanki tslands
aungengi er mælikvarði á hvern-
ig verðlag eða kaupgjald breytist á
Islandi miðað við viðskiptalöndin.
Hækkun raungengis felur í sér að verð-
lag eða launakostnaður hér á landi hafi
hækkað meira en í viðskiptalöndunum,
að teknu tilliti til gengisbreytinga, þ.e.a.s.
samkeppnisstaða innlendra fyrirtækja hef-
ur versnað. A sama tíma má segja að staða
neytenda hafi batnað, því að þeir fá meira
fyrir krónurnar sínar en áður.
Utflytjendur og innlendir framleið-
endur sem keppa við innflutning þurfa
annaðhvort að hækka verð á afurðum
sínum og fá minni markaðshlutdeild eða
sætta sig við minni hagnað og veikjast í
samkeppni til lengri tíma litið. Launþegar
sem fá laun í íslenskum krónum verða
að sætta sig við skarðan hlut þegar gengi
krónunnar lækkar. Þeir sem búa yfir þekk-
ingu sem eftirspurn er eftir erlendis, til
dæmis læknar og hjúkrunarfólk eða tækni-
menn eru þá líklegri en ella til þess að vilja
flytja til útlanda þar sem launin eru miklu
hærri í krónum talið. Hættan á fólksflótta
afar lágt og jafnvel þó að það eigi feik-
inóg veltufé til skamms tíma litið er út-
litið ekki nógu gott. Það er nú aðeins
virði um þriðjungs af því sem það var
fyrir réttum tveimur árum.
Þessi yfirferð sýnir að netrisun-
um getur gengið afar vel, en gæfan er
fallvölt á þessum markaði og ekkert er
víst um framtíðarvelgengni þó að menn
setji fram snjallar hugmyndir. Líftími
þeirra í netheimum er oft álíka langur
og ferskleiki banana. Q
minnkar eftir því sem raungengi krón-
unnar styrkist.
Fræg er hin svonefnda Big Mac-vísitala
en hún gengur út á að bera saman verð á
borgaranum fræga í ýmsum löndum og
meta út frá því hvort krónan er hátt eða
lágt skráð. Hugmyndin er sú að í öllum
löndum sé um að ræða nákvæmlega sömu
vöru og því ætti hún að kosta sem næst
það sama ef gengið væri rétt skráð. Meðan
þessi gæðavara fékkst enn á Islandi koma
landið afar illa út úr verðsamanburði.
Talið var að gengi krónunnar þyrfti að
lækka mikið samkvæmt vísitölunni.
Skýringin er væntanlega sú að hráefni á
Islandi hefúr verið dýrt og framleiðni lítil
miðað við önnur lönd. Samkvæmt kenn-
ingum hagfræðinnar ætti verðmunur á
milli landa að jafnast út því að annars væri
hægt að hagnast ótæpilega á því að kaupa
vöru þar sem hún er ódýrari og selja hana
þar sem hún er dýrari. Flutningskostnaður,
viðskiptahöft og annar viðskiptakostnaður
valda því að í raun er munur milli landa og
svæða þó að sama mynt sé notuð. Ö
Iprófkjörum í kosningunum í Banda-
ríkjunum er urmull af frambjóðend-
um, en af einhverjum ástæðum virðist
„venjulegt fólk“ hika við að gefa kost á
sér. Augljóst er að margir anda léttar eftir
að Donald Trump mistókst að ná fyrsta
sætinu í prófkjöri repúblikana í Iowa.
Samt vita flestir tiltölulega lítið um Ted
Cruz og ef vel er skoðað virðast skoðanir
þessara tveggja frambjóðenda um margt
fara saman. Cruz setur þær bara fram á
hófsamari hátt.
Stjórnmálin í Bandaríkjunum sýna hve
mikill munur er á umræðunni hérlendis
og þar. Talað er um hægri og vinstri, en
hægri menn í Bandaríkjunum eru sumir
bókstafstrúar, á móti fóstureyðingum,
hjónaböndum samkynhneigðra, vel-
ferðarkerfinu og almannatryggingum. Að
vísu eru til slíkir menn hér á landi sem
kenna sig við hægri stefnu, en flokkar hafa
ekki tekið upp þessi mál. Bernie Sanders
er talinn vera stórhættulegur vinstrimað-
ur og hann lýsir sér sem sósíalista. Hann
lítur á Norðurlönd sem fyrirmynd að
hugmyndum sínum um velferðarkerfið.
Islendingum er ekki tamt að kenna sam-
félagið við sósíalisma, en af frambjóð-
endunum fara skoðanir Sanders líklega
einna næst skoðunum flestra Islendinga.
Skoðanakannanir sýndu að 98% Is-
lendinga vildu að Obama næði endur-
kjöri árið 2012. I Reykjavíkurbréfi kom
fram að höfundur þess var einn af 2%.
Sanders hefúr ekki fjallað um þessi 2%
svo vitað sé, en honum verður tíðrætt
um eina prósentið sem á 99% af öllum
heimsins auð. Það er athyglisvert að fylgi
verkalýðsins skiptist í tvennt samkvæmt
skoðanakönnunum. Milli sósíalistans
Sanders og auðkýfingsins Trumps. Þeim
tekst, hvorum með sínum hætti, að spila
á tilfinningar almennings.
I undanförnum forsetakosningum
völdu repúblikanar tiltölulega „venju-
lega“ menn sem frambjóðendur, þá John
McCain og Mitt Romney. Sarah Palin var
að vísu skrautlegt viðhengi við McCain
og hefúr nú lýst yfir stuðningi við Trump,
sem kom kannski ekki á óvart.
Margir sjá hliðstæður á milli banda-
rískra og íslenskra stjórnmála. Sífellt færri
„venjulegir“ gefa kost á sér í kosningum.
Það er hættuleg þróun þegar gosarnir taka
völdin. bj
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Utgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfang: benedikt@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök.
öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án ieyfis útgefanda.
Raungengi styrkist
Raungengi krónunnar miðað við verðlag
og kaupgjald 2000-2015
4 VÍSBENDING • +. TBI. 201«